Fréttablaðið - 13.06.2004, Page 1
Ráðist gegn heimilisofbeldi
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
Kvikmyndir 34
Tónlist 32
Leikhús 32
Myndlist 32
Íþróttir 30
Sjónvarp 36
SUNNUDAGUR
EM Í FÓTBOLTA Alliance Française og
Fransk-íslenska verslunarráðið hvetja alla
fótboltaáhugamenn til að mæta á Kaffi
Sólon sunnudaginn 13. júní kl. 18:30 og
horfa með þeim á leik Frakka og Eng-
lendinga í Evrópumeistarakeppninni.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
13. júní 2004 – 159. tölublað – 4. árgangur
Heimilisofbeldi er jafnan vandlega falið og sá glæpur sem einna helst dylst öðrum en þeim sem fyrir verða.
68 konur féllu fyrir hendi maka síns á Spáni á síðasta ári en þar í landi er heimilisofbeldi mjög útbreitt þrátt
fyrir opinskáa umræðu og aðgerðir yfirvalda.
ÞURRT ALLRA NORÐAUSTAST Þar
verður bjart með köflum sem og á Austur-
landi. Annars staðar skúrir. Hiti 10-18 stig,
hlýjast á Austurlandi. Sjá síðu 6.
ÁLFHEIÐUR ÍDA OG FAÐIR HENNAR KJARTAN
Litla stúlkan var vakandi þegar faðir hennar kom og sótti hana. Hún sat aftur í bíl fjölskyldunnar sem stolið var frá Sóltúni í gær. „Hún
var mjög hress. Hún virðist ekkert hafa fattað þetta,“ segir Kjartan. Hann segir að rótað hafi verið í hanskahólfi en bílinn sé í lagi og þau
sakna einskis nema GSM-símans sem maðurinn hringdi úr til lögreglu.
KONUR MEÐ UNGABÖRN Í
FANGELSI Ófrísk kona var tekin með
5.005 e-töflur við komu til landsins á
föstudag. Hún verður í tveggja vikna
gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni. Verði hún
dæmd þarf hún aðeins að sitja inni helm-
ing refsivistarinnar segir sérfræðingur í
afbrotamálum. Sjá síðu 2.
HRINGBRAUT Í OPINN STOKK
Átakshópur um betri byggð hefur lagt til að
Hringbraut verði grafin í opinn stokk til að
bjarga landrými. Lítil röskun á framkvæmd-
um segir forsvarsmaður. Borgarfulltrúa
hugnast ekki tillagan. Sjá síðu 4.
KOSTNAÐUR HUGSANLEGA OF-
METINN Kostnaður við þjóðaratkvæða-
greiðslu um fjölmiðlalögin nær líklega ekki
50 milljónum. Forsætisráðherra sagði við
fjölmiðla að gera ætti ráð fyrir 100-200
milljóna króna kostnaði við að halda
atkvæðagreiðsluna. Sjá síðu 6.
FJÖLDI ÓSKRÁÐRA VOPNA Skot-
vopnaskrá ríkislögreglustjóra verður fullkláruð
árið 2010. Eftirlit með vopnum var lengi
dapurt segir formaður Skotvís. Sjá síðu 8.
SÍÐA 30 og 31
▲
▲
STJÓRNMÁL „Auðvitað er það
áhyggjuefni að þreyta komi í
samstarf sem er á þriðja kjör-
tímabili. Það er eitt stærsta verk-
efnið fyrir okkur sem störfum
fyrir og styðjum Reykjavíkurlist-
ann að verða ekki valdþreytunni
að bráð,“ segir Helgi Hjörvar al-
þingismaður og varaborgarfull-
trúi og einn helsti hvatamaðurinn
að stofnun Reykjavíkurlistans í
helgarviðtali við Fréttablaðið í
dag.
Um þessar mundir eru tíu ár
liðin frá stofnun Reykjavíkurlist-
ans en afmælið er haldið í skugga
innbyrðis deilna. Málþingi sem
halda átti í vor var frestað til
hausts vegna ágreinings um fyr-
irkomulag og fyrir rúmri viku
skrifaði Sverrir Jakobsson á vef
Vinstri grænna að það væru
„...teikn á lofti um það að undan-
farin ár hafi myndast umboðslaus
„ráðhúsklíka“ embættismanna
sem sé engu betri en klíkan sem
stjórnaði borginni á valdatíma
Sjálfstæðisflokksins“.
Helgi segist í viðtalinu við
Fréttablaðið hafa áhyggjur af því
að Reykjavíkurlistinn sé að verða
lítil klíka í Ráðhúsinu og segir
stjórnmálaflokkana hafa mun
sterkari stöðu í samstarfinu nú en
áður. „Reykjavíkurlistinn er
greinilega kosningabandalag
stjórnmálaflokka og ekki lengur
sú breiða hreyfing sem hún var.“
Sjá viðtal við Helga á síðum 32 og 33.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
. Ó
L.
Bjarni Felixson hefur áhyggjur af að Melavöllurinn
falli í gleymskunnar dá og vill að minningu hans
verði haldið á lofti.
EM í knattspyrnu hófst í
gær. Sagt er frá úrslitum
leikja gærdagsins og
spáð í spilin fyrir viður-
eignir dagsins.
Íslenskar lófatölvur:
Mikill áhugi
í útlöndum
VIÐSKIPTI Lófatölvufyrirtækið
Handpoint á í viðræðum við stórt
erlent flugfélag og þjónustufyrir-
tæki við flugfélög um sölu á þráð-
lausu búðarkassakerfi. Davíð Guð-
jónsson, framkvæmdastjóri Hand-
point vill ekki greina nánar frá
viðræðunum.
Hins vegar muni slíkur samn-
ingur verða fyrirtækinu mikil
lyftistöng. Búnaður Handpoint er
nú í notkun í Levi’s búðinni á
Oxfordstreet og vonir standa til að
sölukeðja Levi’s í Bretlandi muni
notast við lausnir Handpoint. Fyr-
irtækið framleiðir nú eigin lófa-
tölvur, auk hugbúnaðarlausna
fyrir verslunarfyrirtæki. Fleiri
erlend fyrirtæki eru að skoða
kaup á lausnum Handpoint meðal
annars stærsta matvöruverslana-
keðja Dana, Dansk Supermarked.
Sjá síðu 16.
Reykjavíkurlistinn
að verða lítil klíka
Einn af upphafsmönnum Reykjavíkurlistans segir að hann sé ekki
lengur sú breiða hreyfing sem hann var. Hann hefur hefur áhyggjur
af því að R-listinn sé að verða lítil klíka í Ráðhúsinu.
Minnumst
Melavallarins
SÍÐUR 30 & 31
Boltinn byrjaður
að rúlla
▲
SÍÐA 20
Mannrán í Reykjavík:
Barni rænt
við bílstuld
BARNSRÁN Fjögurra mánaða barn
var í bíl sem stolið var frá Sóltúni
rétt fyrir hádegi í gær. Átta mín-
útum síðar hringdi maður úr síma
föðurins og tilkynnti lögreglu
staðsetningu bílsins við Hall-
grímskirkju. Lögreglan í Reykja-
vík rannsakar málið.
Fjölskyldan var í orlofi og á
leið heim til Akureyrar. Kjartan
Vilbergsson, faðir stúlkunnar, var
að hlaða bílinn þar sem hún svaf.
„Ég ákveð að stökkva upp og ná í
nokkra poka. Þegar ég kem niður
aftur eftir eina mínútu eða tvær
er bíllinn farinn.“
Foreldrarnir ákváðu að fresta
brottför til Akureyrar um sólar-
hring og leggja af stað heim í dag.
„Þetta var mikið áfall,“ segir
Kjartan.
Maðurinn sem stal bílnum yfir-
gaf hann án þýfis sem hann hafði
með úr öðrum þjófnaði. Foreldr-
arnir hafa kært mannránið en bíll-
inn er nú í vörslu lögreglu. ■