Fréttablaðið - 14.06.2004, Síða 1

Fréttablaðið - 14.06.2004, Síða 1
▲SÍÐA 22 Zidane skoraði tvö undir lokin ● ætlaði ekki að verða rithöfundur Steinunn Sigurðardóttir: ▲ SÍÐA 18 Gaf fyrstu ljóða- bókina út 19 ára Micke Pollock: ▲ SÍÐA 30 Gamli Utangarðs- maðurinn í stuði MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500 MÁNUDAGUR TÓNLEIKAR KRIS KRISTOFFER- SON Bandaríski tónlistarmaðurinn Kris Kristofferson heldur tónleika í Laugar- dagshöll í kvöld. Enn eru til miðar á tón- leikana. KK og Ríó Tríó hita upp fyrir kappann. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG BJART MEÐ KÖFLUM AUSTAN TIL Annars staðar fremur skýjað og víða skúrir. Hiti 10-16 stig, hlýjast á Austurlandi. Sjá síðu 6. 14. júní 2004 – 160. tölublað – 4. árgangur FÍKNIEFNASALAR GERA ÚT FRÁ SELFOSSI Sýslumaðurinn á Selfossi fylgist vel með fíkniefnamálum. Þrjú sjálf- stæð mál sem leiddu til upptöku fíkniefna komu upp fyrir helgina. Innbrot hafa einnig verið tíð í mánuðinum. Sjá síðu 2. TÓLF FÉLLU Tólf Írakar biðu bana í sjálfsmorðssprengjuárás í Bagdad. Þetta er þriðja bílasprengjuárásin á einni viku í Írak. Sjá síðu 8. AL-KAÍDA GERÐI HUGMYND HITLERS AÐ VERULEIKA Hitler ráð- gerði árásir á skýjakljúfa New York-borgar í seinni heimsstyrjöld og var undirbúningur langt á veg kominn. Sjá síðu 10. FÓRNARLAMB EIGIN VEL- GENGNIKærur flæða yfir Mannréttinda- dómstólinn í Evrópu þannig að hann hefur ekki undan. Fyrir dyrum standa breytingar sem fækka eiga málum. Mál héðan hafa haft margvísleg áhrif á löggjöf og vinnulag réttarkerfis hér á landi. Sjá síðu 12. Sa m kv æ m t f jö lm i›l ak ön nu n Ga llu ps m ar s '0 4 48%65% Kvikmyndir 26 Tónlist 26 Íþróttir 20 Sjónvarp 28 KOSNINGAR Kosningum til Evrópu- þingsins er lokið í öllum 25 aðild- arríkjum Evrópusambandsins. Kosningaþátttaka var dræm á heildina litið eða 43%. Áhugaleysi og innanríkismál settu mark sitt á kosningarnar. Í mörgum aðildarríkjunum not- uðu kjósendur tækifærið og refsuðu stjórnvöldum fyrir stefnu sína. Í Þýskalandi beið flokkur Gerhards Schroeder kanslara af- hroð og það sama má segja um stjórnarflokkinn Venstre í Dan- mörku sem tapaði tveimur þing- sætum. Kosningarnar á Spáni sýndu aftur á móti að fylgisaukn- ing sósíalista í síðustu þingkosn- ingunum er varanleg en talið var að hryðjuverkin í Madrid hefðu litað þau úrslit um of. Hér á landi gafst Pólverjum kostur á að kjósa utan kjörfundar og var á fjórða tug Pólverja sem nýtti sér það. Að sögn Pawels Bartoszek, kjör- stjórnarmanns, er það mun dræmara þátttaka en í síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu þegar kos- ið var um inngöngu landsins í ESB. Sjá síðu 6. Evrópuþingkosningum lauk í gær: Mjög léleg kjörsókn BORGARMÁL Borgarfulltrúar Reykjavíkurlistans vísa á bug fullyrðingum um að stjórnar- kreppa og valdþreyta sé farin að setja mark á stjórnarsamstarfið. Í viðtali við Fréttablaðið um helgina sagði Helgi Hjörvar að R-listann skorti afdráttarlausa, pólitíska forystu og að hann ótt- aðist að listinn væri að breytast í litla klíku. Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar, segist ekki deila þeirri sýn Helga að pólitísk völd þurfi að vera á einni hendi til að forystan sé afdráttarlaus. Stein- unn Valdís Óskarsdóttir, formað- ur borgarstjórnarflokks R-list- ans, fagnar gagnrýni en segir að núverandi valddreifing í borgar- stjórn sé lýðræðislegri en áður var. Alfreð Þorsteinsson Fram- sóknarflokki segir það „út í hött“ að tala um forystukreppu. Þórólfur Árnason borgar- stjóri fagnar umræðunni en seg- ist ekki hafa ákveðið hvort hann ætli að taka að sér pólitískt burðarhlutverk, það skýrist þeg- ar nær dregur kosningum. Jóhann M. Hauksson, doktor í stjórnmálafræði, segir það af- káralega stöðu til lengdar ef borgarstjóri gegni aðeins stöðu framkvæmdastjóra borgarinn- ar, en Þórólfi sé hins vegar snið- inn þröngur stakkur þar sem hann hefur ekki pólitískt umboð kjósenda heldur er ráðinn í stöð- una. Sjálfstæðismenn segja um- mæli Helga staðfesta það sem þeir hafi lengi bent á. Reykja- víkurlistinn standi á brauðfótum og það eina sem haldi samstarf- inu saman sé vilji þeirra sem ráða til að sitja við kjötkatlana. Sjá nánar síðu 4. FYRIRLIÐARNIR SÁTTIR AÐ LOKNUM ÆSISPENNANDI LEIK Þeir David Beckham, fyrirliði Englendinga, og Zinedine Zidane, fyrirliði Frakka, féllust í faðma að lokinni æsispennandi viðureign liða sinna á Evrópumótinu í Portúgal í gær. Englendingar komust yfir í fyrri hálfleik en Frakkar skoruðu tvö mörk eftir að venjulegur leiktími var liðinn og höfðu sigur í einum dramatískasta leik á EM hin síðari ár. Ísraelar beina augum frá átökum: Salómons- dómur hinn nýi FORRÆÐISDEILA Fréttir af ófriðará- standi í Ísrael hafa vikið fyrir for- ræðisdeilu milli hjóna og líffræði- legra foreldra þrettán mánaða drengs sem vilja fá hann aftur. Líffræðileg móðir barnsins hafði skilið við mann sinn þegar hún ákvað að láta barnið til ættleiðingar. Hún skipti um skoðun þegar barnið var þriggja mánaða gamalt. Í hér- aðsdómi tapaði hún málinu en líf- fræðilegi faðirinn áfrýjaði. Dóms er beðið frá hæstarétti Ísraels. Allt frá skemmtikröftum til rabbía hafa rætt málið í fjölmiðlum. Baráttunni hefur verið líkt við úr- skurð Salómons í Biblíunni, sem vildi skipta barni í tvennt til að fá úrskurð um hvor tveggja kvenna ætti lítinn dreng. Móðirin ákvað þá að gefa sinn hluta eftir en fékk barnið að launum. ■ Hafna fullyrðingum um forystukreppu Borgarfulltrúar Reykjavíkurlistans segja samstarfið innan hans gott. Borgarstjóri hefur ekki ákveðið hvort hann tekur að sér pólitískt forystuhlutverk. Sjálfstæðismenn segja ummæli Helga Hjörvar staðfesta að R-listinn standi á veikum grunni. ● gaf tvær breiðskífur út á dögunum Guðbergur Garðarsson: ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS Ævintýragarður í Hafnarfirði ● fasteignir ● hús M YN D /A P EM í Portúgal: ● frakkar unnu englendinga, 2–1 ATKVÆÐI GREITT Í VARSJÁ Pólverjar tóku þátt í sínum fyrstu kosningum til Evrópuþings í gær.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.