Fréttablaðið - 15.06.2004, Blaðsíða 1
▲
SÍÐA 23
● 29 ára í dag
Finnur Beck:
▲
SÍÐA 20
Venjulegur
vinnudagur
Iceguys:
▲
SÍÐA 30
Enskan hentar eðli
strákasveitarinnar
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
ÞRIÐJUDAGUR
FYLKIR MÆTIR VÍKINGI Tveir leikir
verða í Landsbankadeild karla klukkan
19.15. Fylkir tekur á móti Víkingi og Keflavík
sækir ÍBV heim. Í Landsbankadeild kvenna
mætast Breiðablik og Fjölnir í Kópavogi.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
BJARTUR HIMINN MEÐ KÖFLUM
Horfur dagsins eru góðar. Þurrt og bjart
með köflum. Hiti 10-17 stig, hlýjast á
Austur- og Suðausturlandi. Sjá síðu 6
15. júní 2004 – 161. tölublað – 4. árgangur
HARKA Í BENSÍNSTRÍÐIÐ Atlantsolía
reið á vaðið með lækkun á bensíni í gær.
Lítrinn er nú kominn undir 100 krónur eftir
hækkun í tvo mánuði. Sjá síðu 2
VANTRAUST FELLT Ísraelska ríkis-
stjórnin lifði af þrjár vantrauststillögur á
þingi í gær, þar sem forysta Verkamanna-
flokksins ákvað að sitja hjá og veita stjórn-
inni þar með öryggisnet. Sjá síðu 2
BRUGÐIST VIÐ ÓKOMNUM TIL-
MÆLUM Í nýjum mjólkursamningi sem
landbúnaðarráðuneytið hefur gert við kúa-
bændur og tekur gildi á næsta ári er dregið
úr framleiðslutengdum greiðslum. Sjá síðu 4
REGLUR UM BOÐSFERÐIR
Framkvæmdastjórn Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss hefur sett strangar reglur um
boðsferðir erlendra fyrirtækja til starfs-
manna spítalans. Sjá síðu 10
Sa
m
kv
æ
m
t f
jö
lm
i›l
ak
ön
nu
n
Ga
llu
ps
m
ar
s
'0
4
48%65%
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
DÓMSMÁL „Mín skoðun er að það
hafi áhrif á trúverðugleika forsæt-
isráðherra þegar það sem hann
lætur hafa eftir sér sem slíkur er
dæmt dautt og ómerkt,“ segir Sig-
ríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður
Jóns Ólafssonar í meiðyrðamáli
gegn Davíð Oddssyni. Ummæli
Davíðs voru dæmd dauð og ómerk
í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Jón Ólafsson vildi ekki tjá sig
um málið í gær en sendi frá sér
yfirlýsingu þar sem hann fagnaði
niðurstöðu Héraðsdóms. Sigríður
Rut segir að komin sé staðfesting á
að þessi ummæli forsætisráðherra
hafi farið yfir strikið. Forsætisráð-
herra muni þá væntanlega gæta
orða sinna í framtíðinni. Það skipti
máli þegar forsætisráðherra,
stöðu sinnar vegna, sé jafnvel í yf-
irmannsstöðu yfir skattinum,
stjórnsýslunni eða rannsakendum.
„Það verður að teljast alvarlegt að
hafa uppi slík ummæli um mann
sem hefur aldrei verið dæmdur af
dómstólum. Þetta er náttúrlega
merkilegur dómur að því leyti að
forsætisráðherra eins og aðrir á að
virða grundvallarmannréttindi um
að fólk er saklaust uns sekt er
sönnuð fyrir dómi.“
Davíð getur ekki áfrýjað mál-
inu til Hæstaréttar þar sem hann
lét þingsóknina falla eftir að hafa
skilað greinargerð.
Sjá nánar síðu 4.
Ummæli forsætisráðherra dæmd dauð og ómerk:
Fór yfir strikið með
ummælum sínum
VIÐSKIPTI Tveir íslenskir bankar
báru víurnar í danska bankann
FIH. Landsbankinn og KB banki
höfðu báðir áhuga á að kaupa
bankann. KB banki keypti bank-
ann fyrir 84 milljarða í gær. Fleiri
bankar vildu kaupa danska bank-
ann samkvæmt heimildum, meðal
annars stærsti banki Norður-
landa, Nordea, sem var tuttugu
sinnum stærri en KB banki fyrir
kaupin á FIH. Lokaspretturinn
var spennandi og ekki ljóst fyrr
en langt var liðið á aðfaranótt
mánudagsins að KB banki myndi
kaupa danska bankann.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins vissu íslensku bankarnir
ekki hvor af öðrum þegar ferlið
hófst. Landsbankinn bakkaði út,
samkvæmt heimildum þar sem
þar á bæ var talið að hærri arð-
semiskröfu þyrfti að gera á svo
stór kaup. Aðrar heimildir herma
að keppni hafi verið milli
bankanna um kaupin fram að
síðustu helgi. KB banki stefnir að
því að koma sér fyrir sem leiðandi
fjárfestingarbanki á Norðurlönd-
um. Barátta íslensku bankanna
hækkaði hins vegar verðið sem KB
banki þurfti að greiða fyrir kaupin.
Eftir kaupin verður KB banki
áttundi stærsti banki á Norður-
löndum. „Þetta er mjög öflugur
banki, vel rekinn og með frá-
bæra stjórnendur,“ segir Sigurð-
ur Einarsson, stjórnarformaður
KB banka. FIH er banki sem sér-
hæfir sig í fjármögnun fyrir-
tækja og er með 17% af fyrir-
tækjalánamarkaðnum í Dan-
mörku. Sigurður segir þessa
fjárfestingu falla vel að stefnu
KB banka og færa bankann nær
því markmiði sínu að verða leið-
andi fjárfestingarbanki á Norð-
urlöndum.
Eftir kaupin verða heildar-
eignir KB banka 1.470 milljarðar
króna, en voru 601 milljarður
króna áður. Gengi bréfa KB
banka hækkaði um 12,5% í gær
og er markaðsvirði bankans nú
170 milljarðar króna. Kaupin
verða fjármögnuð með útgáfu
víkjandi láns og hækkun hluta-
fjár sem boðið verður forgangs-
rétthöfum til kaups. Meirihluti
eigenda KB banka hefur lýst því
yfir að þeir muni taka þátt í
hlutafjáraukningunni.
haflidi@frettabladid.is
Sjá nánar síðu 6.
TÓM HANDJÁRN Í ABU GHRAIB Hundruðum fanga var sleppt úr hinu alræmda Abu Ghraib-fangelsi í Írak í gær. Bandaríkjaher hefur
gefið fyrirheit um að rúmlega þúsund föngum verði annað hvort sleppt eða komið til íraskra löggæsluyfirvalda fyrir valdaframsalið 30.
júní. Abu Ghraib-fangelsið er helst þekkt vegna pyntinga sem bandarískir hermenn beittu fanga þar inni.
Tveir íslenskir bankar
bitust um danskan
KB banki keypti í gær danska bankann FIH fyrir 84 milljarða króna. Landsbankinn var einnig að skoða
kaup á bankanum auk stærsta banka Norðurlanda. KB banki liðlega tvöfaldast að stærð við kaupin.
● fyrsta lagið komið í spilun
Dagbjört Hákonardóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Gaman að
hjóla
● heilsa o.fl.
M
YN
D
/A
P
EM í fótbolta:
● stórsigur Svía
Krufningarskýrsla:
Staðfestir
voðaskot
LÖGREGLA Krufningarskýrsla
vegna voðaskots sem varð Ás-
geiri Jónsteinssyni að bana á
Selfossi um miðjan mars hefur
borist lögreglunni á Selfossi.
Ólafur Helgi Kjartansson,
sýslumaður á Selfossi, segir að
ekki verði annað ráðið af
skýrslunni en að um voðaskot
hafi verið að ræða. Skýrslan
hafi ekki leitt neitt nýtt í ljós.
Þó má samkvæmt skýrslunni
leiða að því líkur að skotið hafi
hlaupið úr byssunni af stuttu
færi.
Það var mánudaginn 15. mars
sem Ásgeir, sem var ellefu ára
þegar hann lést, fannst látinn
skammt frá lítilli tjörn á tjald-
svæðinu á Selfossi. Hann lést af
völdum byssuskots sem hæfði
hann í höfuðið. ■
DAVÍÐ ODDSSON
Ummæli forsætisráðherra um Jón Ólafsson
voru dæmd dauð og ómerk.
Tvö frá
Henke