Fréttablaðið - 17.06.2004, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
FIMMTUDAGUR
ÞJÓÐHÁTÍÐIN HALDIN Haldið
verður upp á 17. júní um allt land í dag.
Skrúðganga frá Hlemmi hefst klukkan
13.40 og verður gengið niður á Austur-
völl undir leik Lúðrasveitar Reykjavíkur.
Ýmis skemmtiatriði verða í boði.
ÞJÓÐHÁTÍÐ Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VEÐURBLÍÐA á Suður- og Vesturlandi í dag
en dálítil væta á Norður- og Austurlandi. Vindur
þó hægur víðast hvar. Sjá nánar á bls. 6.
17. júní 2004 – 163. tölublað – 4. árgangur
NEMEND-
UM HAFN-
AÐ Um 600
nemendum hef-
ur verið hafnað
af Háskóla Ís-
lands vegna skorts á fjármagni. Sjá síðu 2.
JÁTAR AÐ HAFA STUNGIÐ LÍKIÐ
Sakborningarnir þrír í líkfundarmálinu, þeir
Grétar Sigurðarson, Jónas Ingi Ragnarsson
og Tomas Malakauskas, voru allir viðstaddir
þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. Jónas Ingi heldur fast við fyrri
framburð og neitar allri sök. Sjá síðu 4.
RÁÐHERRA ANDVÍGUR ÞJÓN-
USTUSKERÐINGU Heilbrigðisráðherra
beitir sér gegn því að þjónustustig Land-
spítala - háskólasjúkrahúss verði lækkað
meira en orðið er. Niðurstaðan ræðst við
gerð fjárlaga fyrir næsta ár, en verið er að
fara yfir það hvernig fjármál spítalans verði
meðhöndluð. Sjá síðu 6.
VILDU RÁÐAST Á TÍU SKOTMÖRK
Upphaflega hugmyndin að hryðjuverka-
árásum al-Kaída á Bandaríkin gerði ráð fyrir
að tíu flugvélum yrði rænt. Sjálfstæð nefnd
sem rannsakaði aðdraganda árásanna segir
engar sannanir fyrir því að nokkurt sam-
starf hafi verið milli al-Kaída og íraskra
stjórnvalda, þvert á yfirlýsingar Bandaríkja-
forseta. Sjá síðu 12.
Guðrún Kristjánsdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Ekki bara
Strikið og Tívolí
● ferðir ● tilboð
Kvikmyndir 32
Tónlist 32
Leikhús 32
Myndlist 32
Íþróttir 24
Sjónvarp 36
VIÐSKIPT Eftir kaupin á danska
bankanum FIH er KB banki
þrisvar sinnum stærri en næsti
banki. Sú staða þýðir að bankinn
hefur yfirburðastöðu varðandi
stór verkefni utan lands sem inn-
an. Umhverfi bankanna breyst og
sameining Íslandsbanka og Lands-
banka er að mati sérfræðinga auð-
veldari í framkvæmd gagnvart
samkeppnissjónarmiðum.
Landsbankinn hafði mikinn
áhuga á sameiningu við Íslands-
banka. Meðal þáverandi stjórnar
bankans var andstaða við stöðu-
töku Landsbankamanna í hlutafé í
bankanum. Dregið hefur úr áhuga
Landsbankans á sameiningu.
Ástæðan er fyrst og fremst við-
brögð stjórnmálamanna við þreif-
ingum í þá átt. Meðal eigenda
Landsbankans er talið að stjórn-
málamenn séu ekki tilbúnir fyrir
stórar breytingar í viðskiptalífinu.
Viljinn er þó óbreyttur en engin
áhersla á málið í bili.
Bankaráð Íslandsbanka hefur
ekki rætt sameiningu bankanna. Í
þeim herbúðum er allt eins talið að
tækifæri felist í meiri áherslu KB
banka á erlenda starfsemi.
Innan beggja bankanna viður-
kenna menn að staða KB banka
gagnvart stórum viðskiptavinum
sé þó afar sterk þegar sameiningin
við FIH verður gengin í gegn.
Allir bankarnir vildu kaupa
danska bankann. Íslandsbanki
datt snemma út úr hópnum en
Landsbankinn kom inn í verkefn-
ið með seinni skipunum og hafði
tryggt sér fjármögnun hjá
Straumi fjárfestingarbanka, auk
þess sem Burðarás og eigendur
Landsbankans voru tilbúnir að
koma að verkefninu.
Innan úr Íslandsbanka er skýr-
ing þess að bankinn hætti í ferlinu
sú að verðið hafi verið hátt. Lands-
bankinn var hins vegar tilbúinn að
greiða svipað verð fyrir danska
bankann og KB banki. Talið er að
eignarhald á Íslandsbanka hafi
veikt samkeppnisstöðu hans. Stór-
ir eigendur eru með eignarhluti
sína í framvirkum samningum.
Það þýðir að í augum erlendra selj-
enda ríkir óvissa um framtíðar-
eignarhald bankans.
haflidi@frettabladid.is
Sameining auðveldari
en viljinn mun minni
KB banki verður með yfirburðastöðu gagnvart stærstu viðskiptavinum eftir sameiningu
við danska bankann FIH. Stærð KB banka gerir sameiningu hinna bankanna auðveldari,
en áhuginn á því hefur minnkað í bili.
Landsbankadeildin:
SÍÐA 25
Fjórða mark
Atla Sveins
● ka vann fram, 1-0
Masters of the Universe:
▲
SÍÐA 30
Brjálað
rokkfestival
● brugðist við skorti á harðkjarna
Sailesh:
▲
SÍÐA 28
Heimsþekktur
dávaldur
● ætlar að rugla íslendinga
FORSKOT Á SÆLUNA Leiklistarfólk tók forskot á þjóðhátíðarhöldin þegar íslensku leiklistarverðlaunin voru afhent í Borgarleikhúsinu í
gær á verðlaunahátíðinni Grímunni. Hér eru leikararnir góðkunnu Halldóra Geirharðsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson og Bergur Þór Ingólfsson.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Getulaus grunaður
um nauðgun:
Skotheld
vörn
ÞÝSKALAND Ekki verður hægt að at-
huga hvort þýskur karlmaður á
níræðisaldri sem ákærður var
fyrir fjölda nauðgana sé getulaus
eins og hann heldur fram.
Verjendur mannsins kærðu
dóm undirréttar um að maðurinn
skyldi sæta sjúkraskoðun og
rannsóknum á líkamsástandi í
svefni til hæstaréttar landsins.
Það væri brot á mannréttindum
hans. Þeim var dæmt í vil þar sem
læknar héldu því fram að þó at-
hugunin færi fram gæfi það ekki
afdráttarlausa sönnun. Réttar-
höldin yfir manninum er ekki
lokið. ■
ÞJÓÐHÁTÍÐ Að sögn Önnu Kristins-
dóttur, formanns þjóðhátíðar-
nefndar, hefur hvergi verið til
sparað í tilefni stórafmælisins og
er mikil áhersla lögð á að gera
þjóðfánann sem sýnilegastan.
„Við viljum draga fram það þjóð-
lega, eins og íslenska fánann, og
svo verðum við einnig með
glímusýningu í fyrsta skipti í
mörg ár.“ Hundrað fánar voru
saumaðir sérstaklega fyrir tilefn-
ið og munu skátar dreifa veifum
og blöðrum meðal almennings.
Hátíðardagskráin hefst með
formlegum hætti þegar Herra
Ólafur Ragnar Grímsson forseti
Íslands leggur blómsveig frá
þjóðinni að styttu Jóns Sigurðs-
sonar á Austurvelli. Að því loknu
flytur Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra ávarp til þjóðarinnar.
Að lokinni guðsþjónustu í Dóm-
kirkjunni hefst almenn skemmti-
dagskrá þar sem allir ættu að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Fyrir yngstu börnin verður dag-
skrá bæði í Hjómskálagarðinum
og við Arnarhól, en áhugamenn
um dans, ljósmyndir, fornbíla og
rapp-, rokk- og harmonikku-
tónlist geta allir fundið atriði við
sitt hæfi svo fátt eitt sé nefnt.
Gert er ráð fyrir hægri norð-
vestanátt sem hægir með kvöld-
inu og björtu veðri svo borgar-
búar geta skilið regnhlífarnar
eftir heima.
Sjá nánar síðu 33
Hátíðarhöld í dag:
Sextíu ára lýðveldisafmæli
Veldu
ódýrt
bensín
▲