Fréttablaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 34
17. júní 2004 FIMMTUDAGUR Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ ROCKY ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Martin Kellerman Eftir Frode Överli STUÐ MILLI STRÍÐA KRISTJÁN HJÁLMARSSON UPPLIFÐI ERFIÐA TÍMA ÞEGAR HÁRIÐ FÓR AÐ ÞYNNAST Skallinn sem hvarf Ég er og hef lengi verið með há koll- vik. Þau plaga mig ekki. En það gerði skallinn sem ég fékk einu sinni. Ég veit ekki hvað kom fyrir. Einn daginn var ég bara kominn með myndarlegt tungl á hnakkann og hárlausa rönd aftan við vinstra eyra. Ég vissi ekki af þessu hárleysi mínu fyrr en besti vinur minn benti mér á það. Í kjölfarið fylgdu and- vökunætur og ég fann hvernig kvenhylli minni hrakaði dag frá degi. Þá voru góð ráð dýr. Tunglið stækkaði og stækkaði. Áðurnefndur vinur minn sýndi mér mikinn skilning og einstak- an stuðning. Bjó til súlurit sem sýndi hlutfall hárs og skalla og sagði að ég þyrfti ekki að hafa áhyggur fyrr en skallasúlan væri orðinn stærri en hin. Hár- greiðslumaðurinn sem ég fer yfirleitt til sýndi mér einnig mik- inn stuðning – klippti mig þannig að ég gat greitt yfir tunglið. Ég taldi sjálfum mér trú um að skallinn væri vel falinn. Svo reyndist hins vegar ekki vera. Þannig gekk lífið fyrir sig í nokkra mánuði og tunglið stækk- aði og stækkaði. Í annað eða þriðja sinn sem ég fór til hárgreiðslumannsins sagði hann mér að það væri ekkert að hársverðinum. Ráðlagði mér því að leita til læknis sem ég og gerði. Læknirinn sýndi mér einnig mik- inn stuðning. Skoðaði skallann og hló. Sagði að ég þyrfti sterakrem sem átti að bera á blettinn – eins og að sá fræjum. Ég fór að ráðum læknisins og títtnefndur vinur minn líka. Hann vildi einnig fá að taka þátt í að græða landið. Og viti menn, að nokkrum vikum liðnum hvarf skallinn. Sjaldan eða aldrei hefur mér verið eins létt, og hárið vex sem aldrei fyrr að kollvikun- um undanskildum. ■ Æska mín var gegnsýrð af sviðakjömmum og stretsbuxum! Mamma átti fjórar bækur með sviðakjamma- uppskriftum! Á hverju þriðjudags- kvöldi gerði hún sviða- kjammapizzu! Í miðjum Kojak-þætti ældi... Er að koma! Viltu heyra um Geithildi frænku, sem gat troðið jógúrtdollu í naflann á sér? Já, endilega! Sjúddi- rarirei... Þvílík snilldarhugmynd að gera bara lasagna fyrir heila viku! Pældu í hvað við spörum að éta ekki drasl- mat tvisvar á dag! Sjáum til... eigum við lasagnaplötu? Nei! Ferskan basil? Ertu að grínast? HAAA?? Tvo línubáta með engum lauk! Taka með... ...og... Getið hver er með ofnæmi? Æjjj. Dauð fluga.Pabbi, sjáðu. Já *andvarp* Þessir hlutir bara gerast. Já. En hvernig dó hún? Setti hana í bað. PILLUR! Tómatpúrru? Hakk? Nei, nei... Það verða þá 4.873 krónur!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.