Fréttablaðið - 18.06.2004, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 18.06.2004, Blaðsíða 30
„Að grilla er alls ekki ósvipað því að semja tónlist, reyndar eru langflest tónskáld sem ég þekki mjög góðir kokkar almennt,“ seg- ir Kolbeinn Einarsson, tónskáld og markaðsstjóri Margmiðlunar. „Ferlið hefst auðvitað með því að fara út í búð og sjá hvað er fallegasta og besta hráefnið þann daginn. Það er auðvitað mjög árstíðabundið, sérstaklega hvað varðar grænmeti og ávexti. Svo semur maður eitthvað bragðgott úr því sem maður vel- ur sér,“ segir Kolbeinn. „Það hefur skapast sú hefð hjá mér að grilla um áramót en ég byrjaði á því í rómantískum vetrarferðum með konunni minni þar sem við fórum tvö út úr bænum eftir jólin með góðan mat, vín og jólabækurnar í farteskinu. Um áramótin grillaði ég yfirleitt nautalundir en síð- ustu ár hef ég snúið mér að lambinu,“ segir Kolbeinn en hann velur sér lambafillet með fiturönd úr Gallerí Kjöti og segir hann það erfitt að klikka með því úrvals hráefni sem þar fæst. „Þetta krydda ég með leyni- legri kryddblöndu og ber fram með bakaðri kartöflu og spínat- salati. Kartöflurnar eru bakaðar inni í ofni en væri í sjálfu sér hægt að taka þær á grillinu líka, en það verður að gefa þeim góð- an tíma. Síðustu tvö ár hef ég borið fram með þessu rifsberja Hagalín, sem er sósa sem vinur minn Stefán Hrafn á heiðurinn af.“ Kolbeinn segist grilla í hvaða veðri sem er, það þurfi bara smá skjól. Vindinum hættir til að feykja burt heita loftinu og kæla um of á meðan verið er að grilla. Þegar verið er að grilla kjöt skiptir miklu máli að loka því fyrst með háum hita og taka hann svo niður og jafnvel loka grillinu til þess að eldamennskan verði sem jöfnust. Þá er mikil- vægt að færa kjötið til hliðar en ekki hafa það beint yfir gasinu. „Það er dauðasynd að eyði- leggja gott hráefni með því að elda það svo mikið að það sé ekki nothæft til neins nema skógerð- ar,“ segir Kolbeinn. Áramótalamb tónskáldsins með Hagalínsósu lambafillet með fiturönd frá Gallerí Kjöti lambakjötskryddblanda Jónasar Þórs (fæst í Gallerí Kjöti) bökunarkartöflur Þrífið kartöflurnar, stingið í þær með gafli ótal göt allan hring- inn og stráið yfir þær salti. Setjið þær inn í ofn á grind. Ekki setja þær í álpappír því þá soðna þær bara. Forkryddið kjötið og látið það vera í klukkustund eða lengur í ísskáp. Grillið kjötið og kryddið lítið eitt á meðan. Salat fersk spínatblöð tómatar ristuð sólblómafræ balsamedik, hvítlaukur og ólífuolía Hendið hráefninu saman í skál. Hrærið saman ediki, hvítlauk og olíu og setjið yfir salatið rétt áður en það er borið fram. Hagalínsósa 1 gráðaostur rifsberjahlaup, eftir smekk 1 peli rjómi Gráðaosturinn og rjóminn sett- ur í pott og hrært saman. Rifs- berjahlaup sett út í. ■ 18. JÚNÍ 2004 FÖSTUDAGUR Kolbeinn Einarsson: Grillar allt árið um kring Að grilla svipar til tón- smíða, segir Kolbeinn, sem segir kollega sína flesta vera góða kokka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.