Fréttablaðið - 18.06.2004, Blaðsíða 53
FÖSTUDAGUR 18. júní 2004
Kynn ingar verð á vö ldum v ínum í jún í .
með gr i l lmatnum
Vínið
Njót ið góðra v ína með gr i l lmatnum í sumar.
Nýr bæk l ingur kominn í V ínbúð i rnar.
Silungsveiðin byrjar vel og veiði-
menn eru víða að fá fína veiði,
laxinn veiðist betur og betur,
mikið var að ganga af laxi í Norð-
urá í fyrradag.
„Það er fjör við Norðurá
núna, laxinn er að hellast inn
þessa dagana,“ sagði Bjarni
Ómar Ragnarsson, er við leituð-
um frétta.
Á Eyrinni í Norðurá voru
veiðimenn að veiða og þeir settu
í fimm laxa í beit á fluguna á
stuttum tíma. Í fyrradag var ver-
ið að moka út úr ósnum í
Gljúfurá í Borgarfirði, með stór-
virkum vinnuvélum. Ennþá á að
gera tilraun til að laga ósinn.
„Það eru þrjú ár síðan veiðin
byrjaði svona vel í Skógá og eru
menn farnir að tala um að met
veiði verði í júní,“ sagði Ásgeir
Ásmundsson, er við spurðum um
stöðuna við Skógá undir Eyja-
fjöllum. En fyrir fáum dögum
var sett nýtt hús við ána, eftir
miklar ævintýraför á svæðið,
sem reyndar endaði vel.
„Núna eru komnir næstum
400 fiskar af Skógár svæðinu og
það er mjög gott. Kverá kemur
sterk inn þessa fyrstu daga í
sumar. Fyrsta vaktin gaf yfir 20
bleikjur frá einu uppí þrjú pund.
Fiskur er út um allt og virðast
þeir hyljir sem gerðir voru núna
í vor, gefa sérstaklega vel,“ sagði
Ásgeir að lokum.
„Veiðin er að glæðast á
Hrauni í Ölfusá, en þar hefur sjó-
birtingurinn mikið verið að koma
á síðustu flóðum,“ sagði Ingólfur
Kolbeinsson, er við spurðum um
fréttir af veiðiskapnum. „Mest
hefur hann verið að gefa sig á síli
með spinner og spúnasíli, makríl
og sandsíli. Hróarlækurinn hef-
ur verið að gefa vænar bleikjur
og sjóbirtinga. Þórisvatnið hefur
byrjað vel, ágæt veiði af falleg-
um urriða,“ sagði Ingólfur enn
fremur.
Veiðimenn voru að koma úr
Þórisvatni fyrir fáum dögum og
einn af þeim veiddi 12 ágæta
fiska. ■
Blússandi
gangur í Skógá
INGÓLFUR KOLBEINSSON OG BERGÞÓR PÁLSSON
Með góðan afla úr veiðilækjum í Húnavatnssýslu, fallega veiði á ýmsar flugur.
VEIÐIHORNIÐ
GUNNAR BENDER
■ skrifar um veiði.