Fréttablaðið - 19.06.2004, Blaðsíða 43
31LAUGARDAGUR 19. júní 2004
400 kr. miðinn kl. 12 í dag!
THE BUTTERFLY EFFECT kl. 10 B.i. 16SÝND kl. 4, 6 og 8
SÝND kl. 5.30, 8 og POWERSÝNING kl. 10.30 B.I. 16SÝND kl. 3, 5.50, 8.30 og 11
SÝND kl. 3, 5.30, 8 og 10.50 B.i. 16 SÝND kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10
SÝND kl. 4, 7 og 10
SÝND kl. 12, 2, 4, 6, 8 og 10.10
SÝND kl. 12. 2, 5 og 8 M/ENSKU TALI
SÝND kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20
HHH
Ó.H.T. Rás 2
HHH
S.V. Mbl.
HHH
Skonrokk
HHH Skonrokk
HHHH HP kvikmyndir.com
HHHHH
„Gargandi snilld!“
ÞÞ FBL
HHH
Ó.H.T. Rás 2
HHH
H.L. Mbl.
HHH
Kvikmyndir.com
HHH
Kvikmyndir.is
SÝND kl. 4, 6, 8 og 10
HHHH
"stílhreint
snilldarverk"
HP Kvikmyndir.com
HHH1/2
kvikmyndir.is
HHH
Mbl.
HHH
Ó.Ö.H. DV
HHH1/2
H.L. Mbl.
HHH1/2
kvikmyndir.is
...hreinn gullmoli
...Brilljant mynd. Þ.Þ. FBL
Þær eru
illgjarnar.
Hún er ný.
Og fljótlega
fær hún alveg
nóg af þeim.
Frábær og frumleg gamanmynd sem
hefur svo sannarlega slegið í gegn í
Bandaríkjunum. Með Lindsay Lohan
úr „Freaky Friday“.
Frá framleiðanda
Spiderman
BJÖRN BRÓÐIR kl. 12 M/ÍSL. TALI
■ KVIKMYNDIR
HJÁ OPRAH
Cattrall, lengst til hægri, ásamt stöllum sín-
um í Sex and the City þegar þær komu í
heimsókn til spjallþáttarstjórnandans.
Cattrall tók
erfiða ákvörðun
Kim Cattrall, sem lék Samönthu í
þáttunum Sex and the City, segir það
hafa verið eina af erfiðustu ákvörð-
unum sínum í lífinu þegar hún neitaði
að taka þátt í kvikmynd sem gera átti
eftir þáttunum. Olli ákvörðunin því
að hætt var við gerð myndarinnar.
„Lífið snýst um byrjun og endi og
þetta er ein erfiðasta ákvörðun sem
ég hef þurft að taka bæði í einkalífinu
og sem leikkona,“ sagði Cattrall. „Ég
átti sex frábær ár í Sex and the City
og vil bara þakka öllum aðdáendum
þáttanna fyrir stuðninginn.“ ■
„Við ætlum að breyta ímynd ör-
yrkjans í hressa gaurinn,“ segir
Leifur Leifsson en hann og félagar
hans í Sjálfsbjörg ætla að halda
sundlaugarpartí í dag. „Plötu-
snúðurinn Eiki úr Dáðadrengjum
þeytir skífum og á svæðinu verður
djasshljómsveitin Vinir Kela. Það
verður haldin keppni þar sem fólk
fær að spreyta sig í hjólastólum á
slæmu aðgengi og svo verðum við
líka með eldspúandi menn og maga-
dansmeyjar og boðið verður upp á
pylsur og kók.“
Leifur segir að hópur ungs fólks
hafi fengið styrk frá Hinu húsinu til
að breyta ímynd þeirra sem eru í
hjólastólum. „Við erum orðin þreytt
á neikvæðri ímynd og langar að
sýna að við erum oft í góðu flippi að
gera skemmtilega hluti.“
Hópurinn verður virkur í sumar
og ætlar meðal annars að halda
harðkjarnatónleika í Tónabæ á mið-
vikudagskvöldið. „Svo við erum
líka búin að semja lag um hressan
öryrkja og erum að vinna að mynd-
bandi við það og næst ætlum við að
búa til heimildarmynd um hjóla-
stólaaðgengi til að sýna í sjón-
varpinu.“
Aðspurður um aðgengi á
skemmtistöðum miðborgarinnar
segir Leifur. „Mín reynsla er sú að
þó að aðgengið sé lélegt þá eru
dyraverðirnir með gífurlega þjón-
ustulund og eru til í að gera allt fyr-
ir mann. Til dæmis á Hverfis-
barnum, þar þarf maður ekki einu
sinni að bíða í röð og er því bara
feginn því að vera í hjólastól þegar
maður fer út að skemmta sér.“
Sundlaugarpartíið í dag verður í
Hátúni 12, stendur milli fjögur og
sjö og allir eru hjartanlega vel-
komnir. ■
PARTÍ
SUNDLAUGARPARTÍ
■ verður haldið í dag í Hátúni 12 með
grilli, magadansmeyjum og tilheyrandi
stemningu. Fólk fær að spreyta sig í
hjólastólum á slæmu aðgengi.
Í GÓÐUM GÍR
Hópur ungs fólks vill breyta ímynd fólks í hjólastólum og heldur af því tilefni hressilegar
uppákomur úti um allan bæ í sumar.
Breyta ímynd öryrkjans
í hressa gaurinn
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.