Fréttablaðið - 21.06.2004, Page 1
● nuno gomes tryggði portúgal sigur
EM í fótbolta:
▲
SÍÐA 23
Portúgal áfram en
Spánverjar úr leik
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
MÁNUDAGUR
REYKJAVÍKURSLAGUR Einn leikur
fer fram í Landsbankadeild karla í kvöld.
Íslandsmeistarar KR taka á móti Fram.
Leikurinn hefst klukkan 21 vegna leikja í
Evrópukeppninni í Portúgal.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
HANN HANGIR ÞURR Í DAG og
víða verður bjart yfir. Vindur er áfram
hægur og tiltölulega hlýtt ennþá Sjá bls. 6.
21. júní 2004 – 167. tölublað – 4. árgangur
LOKS ANDLIT Á ESB Sérstakur forseti
ráðherraráðs Evrópusambandsins verður
nú kjörinn í fyrsta skipti. Eiríkur Bergmann
segir að loks sé komið andlit á samband-
ið. Sjá síðu 2
ÞRÝST Á STJÓRNVÖLD Fyrrverandi
formaður Bændasamtakanna segir ljóst að
þrýst verði á stjórnvöld að lækka styrki til
landbúnaðarins. Bændur séu ekki undir
það búnir. Sjá síðu 4
ÓTTAST ÖLDU OFBELDIS Írakar búa
sig nú undir öldu ofbeldis sem búist er við
í kjölfar valdaafsals bandamanna þann 30.
júní næstkomandi. Forsætisráðherra Íraks
telur upplausn Írakshers mistök. Sjá síðu 2
MISFERLISMÁLUM MUN FÆKKA
Ný lög um fasteignasölur munu fækka slysum
og misferlismálum, segir formaður Húseig-
endafélagsins. Með tilkomu þeirra verði „bönd-
um komið á svörtu sauðina.“ Sjá síðu 6
36%50%
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 20
Sjónvarp 28
Einar Páll Kjærnested:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Fjölbreytt að
vera fasteignasali
● hús ● fasteignir
Skálholtshátíðin:
▲
SÍÐA 18
Skilur við
hátíðina í blóma
● hætt eftir 30 ára starf
Benedikt Erlingsson:
▲
SÍÐA 30
Veit hvernig á að
gera gott leikhús
● notar stærðfræðiformúlu
BANDARÍKIN Bill Clinton, fyrrver-
andi forseti Bandaríkjanna, seg-
ir það hafa verið mistök hjá
stjórn George Bush að ráðast til
innrásar í Írak án samþykkis og
samvinnu Sameinuðu þjóðanna.
Þetta kemur fram í viðtali sem
birt verður í fréttaskýringaþætt-
inum 60 mínútur innan tíðar en
Clinton fékkst í viðtal vegna út-
gáfu nýrrar bókar hans um sitt
eigið líf.
Hann segir íbúa Íraks án efa
búa við betri skilyrði eftir að
Saddam Hussein var steypt af
stóli en telur þó að starfsemi
hryðjuverkamanna í landinu
hafi aukist eftir innrásina og
segir að varast verði að leyfa
þeim að ná fótfestu þar. Hann
segir innrásina hafa verið þess
virði þrátt fyrir að tímasetning
Bush hafi ekki verið sem best að
hans áliti.
Bók Clintons, My Life, kemur
út næstu daga í Bandaríkjunum
en þar segir hann hispurslaust
frá lífi sínu frá unga aldri fram
til dagsins í dag. ■
SJÁVARÚTVEGUR „Það er engin skýr-
ing á því af hverju loðnustofninn
ætti að vera hruninn og persónu-
lega hef ég ekki trú á því,“ segir
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Síldarvinnslunnar og formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna. Hver sá dagur sem líður án
þess að tangur né tetur finnist af
loðnu á Íslandsmiðum gerir útvegs-
menn áhyggjufyllri og fer þeim
fjölgandi sem grunar að stofninn sé
einfaldlega hruninn. Mun Hafrann-
sóknastofnunin gera úrslitatilraun
næstu tvær vikur til leitar fyrir
vestan og austan land og hafa
fjölda loðnuveiðiskipa sér til full-
tingis.
Björgólfur segir að ef í ljós
komi að stofn loðnu hér við land sé
hruninn sé það áfall fyrir þjóðarbú-
ið í heild og ekki einungis sjávarút-
veginn. „Það hefur engin vísinda-
leg úttekt verið gerð á efnahagsleg-
um áhrifum þessa ef satt reynist en
mér telst lauslega til að þjóðarbúið
verði af tíu til ellefu milljörðum
króna í útflutningstekjum. Þá eru
ótalin öll önnur áhrif sem slíkt
hefði óneitanlega í för með sér.
Mörg störf í landvinnslunni mundu
tapast og bræðslur færu strax að
finna fyrir loðnuskorti. Þá er
ómögulegt að segja til um áhrifin á
aðra fiskistofna en fræðingar segja
að loðnan sé mjög mikilvæg fæðu-
tegund og enginn veit í hvað annar
fiskur sækir ef engin er loðnan.“
Jón Kristjánsson fiskifræðingur
telur ekki ólíklegt að loðnustofninn
sé hruninn. „Það hafa komið fram
ákveðnar vísbendingar í þá átt.
Sjórinn hefur hitnað talsvert og
það er sannað að loðnan þolir það
illa. Í þokkabót má ekki gleyma því
að veturinn 2001-2002 var mikill
fugladauði fyrir norðan land, sem
gaf til kynna að lítið væri af fiski á
ferðinni. Það er í raun undarlegt að
menn skuli vera hissa á þessu því
náttúran hefur verið síbreytileg í
milljónir ára og furðulegt að ganga
að því sem vísu að allt sé á sínum
stað ár eftir ár.“
„Seint verður gert of mikið úr
mikilvægi loðnu við strendur
landsins. Hún er ein mikilvægasta
fæða margra tegunda, þar á meðal
hvala, sela, sjófugla og bolfisks.
albert@frettabladid.is
Fyrrverandi Bandaríkjaforseti tjáir sig um Íraksstríðið:
Clinton gagnrýnir Bush
Hrun loðnustofnsins kostar
þjóðarbúið ellefu milljarða
Örvænting hefur gripið um sig meðal útvegsmanna enda líður nú hver dagurinn án þess að vart
verði við loðnu á miðum landsins. Sé stofninn hruninn munu áhrifin vara um langa hríð og kosta
þjóðarbúið tugi milljarða króna.
Opnun Elliðaáa:
Borgarstjóri
landaði laxi
STANGVEIÐI Þórólfur Árnason borgar-
stjóri landaði fyrsta laxinum úr Ell-
iðaánum í gærmorgun, en borgar-
stjóri opnaði árnar að venju. Er
þetta fyrsti lax Þórólfs úr Elliðaám
og annar laxinn sem hann landar
um ævina. Laxinn sem Þórólfur
veiddi á maðk í Fossinum var grá-
lúsug fjögurra punda hrygna sem
hann landaði eftir snarpa viðureign
klukkan hálf átta í gærmorgun. Þrír
laxar voru komnir á land um hádegi
í gær. Guðmundur Þóroddsson, for-
stjóri Orkuveitu Reykjavíkur, land-
aði 5,5 punda laxi í Teljarastreng og
Helga Jónsdóttir borgarritari
veiddi fimm punda lax í Ullarfossi.
Bergur Steingrímsson, formaður
Stangaveiðifélags Reykjavíkur,
sagði veiðina fara vel af stað og að
hann væri bjartsýnn fyrir sumarið.
Sjö laxar voru gengnir í gegnum
teljarann við rafstöðina í Elliðaár-
dal þegar veiðin hófst í gær. ■
VISKUBRUNNUR BILL CLINTON
Í viðtali við 60 mínútur segir Clinton að
innrás Bandaríkjamanna í Írak án sam-
þykkis SÞ hafi verið mistök.
BORGARSTJÓRI ÁNÆGÐUR MEÐ FENGINN Þórólfur Árnason borgarstjóri var að vonum glaður með fyrsta lax sumarsins úr Elliðaánum.
Borgarstjóri veiddi laxinn, sem var fjögurra punda grálúsug hrygna, á maðk í Fossinum. Er þetta annar laxinn sem Þórólfur landar um ævina.
M
YN
D
/A
P