Fréttablaðið - 22.06.2004, Blaðsíða 31
23ÞRIÐJUDAGUR 22. júní 2004
VONBRIGÐI
Einn af mörgum sorgmæddum Spánverj-
um sést hér eftir tapið gegn Portúgal.
Gagnrýnisraddir heyrast nú í hverju horni
og Inaki Saez á ekki sjö dagana sæla um
þessar mundir.
Spænsku landsliðsmenn-
irnir sárir og svekktir:
Viljum spila
sóknarbolta
EM Í FÓTBOLTA Spánverjar eru að von-
um í sárum eftir að hafa verið
slegnir út af Portúgölum á EM.
Gagnrýnisraddir dúkka nú upp í
hverju skúmaskoti og leikmenn
landsliðs Spánverja láta þar ekki
sitt eftir liggja. Vicente og Joaquin
eru þar á meðal og þeir voru ekki
sáttir við varnarleikskipulagið hjá
Inaki Saez, landsliðsþjálfara. Byrj-
um á Vicente:
„Við erum ekki góðir í því að
liggja til baka og halda fengnum
hlut. Við viljum sækja og pressa
hátt uppi en í þessum leik voru það
Portúgalar sem gerðu það og upp-
skáru,“ sagði sár og svekktur
Vicente.
„Við mættum til að verjast,“
sagði bitur og beiskur Joaquin og
bætti við: „Við vissum að þeir
myndu mæta af krafti til leiks enda
þurftu þeir sigur. Eftir markið hjá
þeim brugðumst við of seint við og
náðum ekki að snúa leiknum okkur í
hag – náðum ekki að spila eins og
við viljum helst, en það er sóknar-
bolti og ekkert annað. Í raun
gleymdum við okkur alveg í vörn-
inni og þar sem við erum ekki sér-
lega vanir því að verjast svona mik-
ið hlaut að fara illa. Við gerðum of
mörg mistök og skorti líka heppni
en það verður þó að segjast eins og
er að Portúgalar voru einfaldlega
betri.“ ■
Moyes ekki ánægður með
ummæli Sven Göran:
Á að vita betur
FÓTBOLTI Framkvæmdastjóri Ev-
erton, David Moyes, er ekki sáttur
við ummæli Sven Göran Eriksson,
þjálfara Englendinga, þess efnis að
hann væri tilbúinn að hringja í um-
boðsmann Wayne Rooney væri
hann þjálfari einhvers félagsliðs og
reyna að fá hann til liðs við sig.
„Ég geri fastlega ráð fyrir því að
Sven Göran viti að það er ólöglegt
að hafa samband við umboðsmann
samningsbundins leikmanns áður
en haft er samband við félag við-
komandi leikmanns,“ sagði Moyes
en viðurkenndi að þótt Everton vildi
halda Rooney yrði erfitt að hafna
risaboði í hann: „Ef einhver býður í
kringum 50 milljónir punda í Roon-
ey verður augljóslega erfitt að
hafna því,“ sagði David Moyes. ■
B-RIÐILL
England – Króatía 3–2
0–1 N.Kovac (5.), 1–1 Scholes (40.), 2–1
Rooney (45.), 3–1 Rooney (68.), 3–2
Tudor (73.), 4–2 Lampard (79.).
Frakkland – Sviss 2–1
1–0 Zidane (20.), 1–1 Vonlanthen (26.),
2–1 Henry (76.), 3–1 Henry (84.).
STAÐAN Í RIÐLINUM
Frakkland 3 2 1 0 7–4 7
England 3 2 0 1 8–4 6
Króatía 3 0 2 1 4–6 2
Sviss 3 0 1 2 1–6 0
ÁTTA LIÐA ÚRSLIT
Portúgal – England fös. 24. jún 18.45
Frakkland – Sviss lau. 25. jún 18.45
■ STAÐA MÁLA
Frakkar lögðu Svisslendinga í lokaleik sínum í B-riðli:
Henry opnaði markareikninginn
KNATTSPYRNA Thierry Henry náði
loksins að stimpla sig inn í Evr-
ópukeppnina í gær þegar hann
skoraði tvö mörk fyrir Frakka
gegn Svisslendingum. Sigurinn
tryggir Frökkum efsta sætið í B-
riðli og mun liðið mæta Grikkjum
í átta liða úrslitum.
Fyrir fram var búist við því að
það yrði aðeins formsatriði fyrir
Frakka að ljúka þessum leik. Ann-
að kom á daginn og veittu Sviss-
lendingar Evrópumeisturunum
verðuga mótspyrnu, greinilega
staðráðnir í því að falla úr keppni
með sæmd. Zinedine Zidane kom
Frökkum yfir á 20. mínútu með
sínu þriðja marki á EM, en fram-
herjinn Johann Vonlanthen náði
óvænt að jafna metin á 26. mínútu
fyrir Sviss. Vonlanthen er aðeins
18 ára og 141 dags gamall og varð
með markinu yngsti markaskor-
ari í sögu EM. Eftir þetta sóttu
Frakkar stíft undir dyggri for-
ystu fyrirliða síns Zidane, sem
átti enn einn stórleikinn. Leik-
menn Sviss vörðust hins vegar
vel og aftarlega og gáfu fá færi á
sér. Eftir því sem á leið jókst
pressan og fengu Frakkar fjöl-
mörg dauðafæri sem ekki nýtt-
ust. Á 76. mínútu náði síðan
Henry loks að brjóta ísinn, og var
það Louis Saha sem lagði upp
markið aðeins einni mínútu eftir
að hafa komið inn á sem varamað-
ur. Henry bætti við öðru marki
tæpum tíu mínútum síðar og var
efsta sætið í riðlinum þar með
tryggt.
„Það var gott að ná að skora
loksins. Ég, eins og liðið í heild,
hef verið gagnrýndur það sem af
er móti og stundum hefur sú
gagnrýni haft rétt á sér. Það sem
öllu máli skiptir er að við enduð-
um á toppi riðilsins. Ég vil alls
ekki gera lítið úr Grikkjum, sem
verða án efa mjög erfiðir viður-
eignar, en það er gott að sleppa
við að mæta Portúgal,“ sagði
Thierry Henry að leiknum lokn-
um. ■
HETJAN HYLLT
Wayne Rooney er orðinn óskabarn ensku þjóðarinnar eftir frammistöðu sína á EM. Hér sjást stuðningsmenn enska liðsins í Portúgal fagna sínum manni.
Áfram heldur Rooney
Skoraði tvö af fjórum mörkum Englands í góðum sigri á Króötum í gær og munu Englendingar
mæta Portúgölum í átta liða úrslitum. Rooney á góðri leið með að verða maður mótsins. Eriks-
son líkir honum við sjálfan Pele.
KNATTSPYRNA Enn einu var það
Wayne Rooney sem reyndist Eng-
lendingum betri en enginn, en hann
skoraði tvö mörk og átti frábæran
leik í sigri liðsins á Króötum í gær.
Sigurinn tryggði þeim ensku annað
sætið í riðlunum og munu þeir
mæta Portúgölum í átta liða úrslit-
um keppninnar. Enska liðið spilaði
sinn jafnbesta leik í keppninni það
sem af er, og með Wayne Rooney
innanborðs verða Englendingar að
teljast til alls líklegir hvað varðar
framhaldið.
Það voru Króatar sem byrjuðu
betur í leiknum í gær og komust
yfir á 5. mínútu með marki Niko
Kovac. Enska liðið náði fljótlega
undirtökunum og á 40. mínútu skil-
aði pressan loks marki. Þar var á
ferð Paul Scholes, með sitt fyrsta
landsliðsmark í þrjú ár, og var það
áðurnefndur Rooney sem lagði upp
markið. Rooney, ásamt Ashley Cole
og Steven Gerrard, hélt áfram að
vera potturinn og pannan í leik Eng-
lands og skoraði hann gott mark á
45. mínútu með skoti af um 20
metra færi. Rooney bætti síðan við
sínu öðru marki á 69. mínútu þegar
hann slapp einn inn fyrir vörn
Króata eftir sendingu Michael
Owen, sem átti enn einn slaka leik-
inn í keppninni. Skömmu eftir að
hafa skorað það mark var Rooney
skipt út af, enda þreyttur eftir að
hafa verið mjög atkvæðamikill í
leiknum. Hann var hylltur gríðar-
lega er hann gekk af velli, allir á
leikvanginum stóðu á fætur og
klöppuðu, og var þetta lýsandi
dæmi um álitið sem ensku áhang-
endurnir hafa á sínum manni, sem
er ekki nema 18 ára gamall. Króatar
sóttu í sig veðrið og náðu að minnka
muninn með marki Igor Tudor fjór-
um mínútum síðar, en það var síðan
Frank Lampard sem slökkti síðasta
vonarneista Króata með fínu marki
á 79. mínútu.
Eins og áður segir var það
Rooney sem var maður kvöldsins,
ekki í fyrsta sinn það sem af er EM.
David Beckham, fyrirliði enska
liðsins, sagði eftir leikinn að kapp-
inn verðskuldaði allt hrós sem hann
hefur fengið. „Þið sjáið hvernig
hann spilar, það fær ekkert á hann.
Þetta var virkilega stór leikur hér í
kvöld en Rooney spilar bara eins og
honum er lagið. Hann á allt hrós
sem hann fær skilið.“
Rooney hélt sömu hógværðinni
áfram og kvaðst heppinn að vera sá
sem skorar mörkin. „Liðið spilaði
mjög vel hér í kvöld og við gerðum
okkar besta.“ Spurður um samstarf
sitt í framlínunni með Owen sagði
Rooney það vera mjög gott. „Við
náum mjög vel saman. Hann er ekki
að skora í augnablikinu en er búinn
að leggja upp tvö af mörkum mín-
um og það tel ég vera mjög gott,“
sagði Rooney.
Sven-Göran Eriksson var að
sjálfsögðu hinn ánægðasti með pilt
og sagðist engu geta bætt við það
sem þegar hefur verið sagt um
Rooney. „Hann skoraði tvö góð
mörk og lagði sig allan fram fyrir
liðið í kvöld. Hann er stórkostlegur.
Ég man ekki eftir neinum leikmanni
sem hefur haft slík áhrif á stórmót
síðan Pele sló í gegn á HM 1958,“
segir Eriksson. ■
ÍSINN BROTINN
Zinedine Zidane reynir að ná í Thierry Henry eftir að sá síðarnefndi hafði náð að opna
markareikning sinn á EM. Frakkar mæta Grikkjum í átta liða úrslitum.
SKOTFÓTURINN MUNDAÐUR
Wayne Rooney skorar hér fyrsta mark sitt í gær með góðu skoti af um 20 metra færi.