Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.06.2004, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 24.06.2004, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000 FIMMTUDAGUR ÞINGBLÓT ÁSATRÚARMANNA Hið árlega þingblót ásatrúarmanna verður haldið við Lögberg á Þingvöllum í kvöld. Safnast verður saman við Valhöll og þaðan gengið í skrúðgöngu að Lögbergi þar sem Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði helgar þingblótið. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG KALT Í VEÐRI og víða vætusamt á landinu í dag. Nokkur vindur suðvestan til og gæti jafnvel orðið hvassviðri um tíma í dag. Sjá nánar á bls. 6. 24. júní 2004 – 170. tölublað – 4. árgangur SAMEINING Í LAGI Samkeppnisráð leggur blessun sína yfir samruna Fréttar við Norðurljós og segir að ekki sé ástæða til íhlutunar. Stjórnarformaður Norðurljósa er sáttur við niðurstöðuna. Sjá síðu 2 ALLIR FÁ SKÓLAVIST Menntamála- ráðherra hefur ákveðið að leggja 250 milljónir króna í framhaldsskólanna svo allir nýnemar sem sótt hafa um fái skólavist. Sjá síðu 6 ÓLAFUR GETUR VEL VIÐ UNAÐ Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi for- sætisráðherra, telur það ekki vera áhyggju- efni fyrir Ólaf Ragnar Grímsson þótt hlutfall auðra seðla verði hátt í forsetakosningun- um. Sjá síðu 2 VILLTIR FASANAR Svo virðist sem villtir fasanar séu að færa út kvíarnar hér á landi. Annars vegar hafa þeir sést innarlega í Fljóts- dal og hins vegar í Jökulsárhlíð. Sjá síðu 14 Kvikmyndir 42 Tónlist 40 Leikhús 40 Myndlist 40 Íþróttir 30 Sjónvarp 44 Þyngsti dómur í fjársvikamáli til þessa Fyrrum aðalféhirðir Landssímans var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi. Saksóknari segir dóminn vera einsdæmi. Fyrrum eigendur Skjás eins voru dæmdir í tveggja ára fangelsi. LENGI LIFIR Í MJÖG GÖMLUM GLÆÐUM Mikill mannfjöldi sótti tónleika hljómsveitarinnar Deep Purple í Laugardalshöll í gærkvöldi og varð lögregla vör við talsverða ölvun á svæðinu enda var selt áfengi á tónleikunum. Gerðu gestir góðan róm að gömlu hetjunum sem flestir eru komnir vel yfir miðjan aldur en tóku engu að síður góða spretti á sviðinu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Skoðanakönnun: D-listinn með 35,7% KÖNNUN Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 35,7 prósenta fylgi sam- kvæmt nýrri skoðanakönnun Frétta- blaðsins. Flokkurinn er þar með aftur orðinn stærri en Samfylkingin sem mælist með 32,9 prósent. Samkvæmt könnuninni fá stjórnarflokkarnir samanlagt 29 þingmenn. Frjálslyndir bæta verulega við sig. Könnunin sýnir að ríkisstjórnin nýtur stuðnings um 40 prósent landsmanna. Um 60 prósent eru henni andvígir. Sjá nánar síðu 8 Norður-Kóreumenn tilbúnir til að láta af kjarnorkuáætlun: Vilja hjálp og bætt samskipti Veldu ódýrt bensín Opið til 21.00 í kvöld ● ferðir ● tilboð Með fjölskylduna til Portúgal Jóhann G. Jóhannsson: ● ræðir fortíðina og tónleikana á íslandi Knúinn áfram af fegurð Lou Reed: ▲ SÍÐA 34 ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS PEKING, AP Bandaríkjamenn hétu því að leggja fram nýja tillögu að lausn deilna um kjarnorkuáætl- un Norður-Kóreu í viðræðum sex þjóða um málefnið sem hófst í Peking í gær. Norður-Kóreu- menn buðust til þess að afsala sér kjarnorkuvopnum í skiptum fyrir aðstoð og að bundinn verði endir á fjandsamlegt andrúms- loft Bandaríkjamanna í garð stjórnvalda. James Kelly, aðstoðarutanrík- isráðherra Bandaríkjanna og fulltrúi þjóðarinnar í viðræðun- um, sagði Bandaríkin tilbúin í al- varlegar viðræður við Norður- Kóreu og að málamiðlunartillaga væri í undirbúningi. Að sögn bandarískra embættismanna verður Norður-Kóreumönnum boðin aðstoð láti þeir af kjarn- orkuáætlun sinni auk þess sem sagt er að í tillögunni sé einnig ábyrgst að ekki verði ráðist inn í landið. Fulltrúi Norður-Kóreumanna sagði í gær viðleitni stjórnvalda til þess að búa til kjarnavopn tilkomna til þess að verja landið fyrir ógn- inni af hugsanlegri kjarnorkuárás Bandaríkjamanna. „Ef Bandaríkja- menn binda endi á fjandsamlegt andrúmsloft í okkar garð erum við tilbúin að láta af öllum áætlunum um smíði kjarnavopna.“ ■ DÓMSMÁL „Þetta er þungur dómur og sá þyngsti sem kveðinn hefur verið upp í auðgunarbrotamáli fram að þessu. Fjögurra og hálfs árs fangelsi er einsdæmi,“ segir Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislög- reglustjóra og saksóknari í Lands- símamálinu. Sveinbjörn Kristjánsson, fyrr- um aðalféhirðir Landssímans, var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær fyrir um 261 milljónar króna frádrátt í starfi. Árni Þór Vigfússon og Kristján Ragnar Kristjánsson voru dæmdir í tveggja ára fangelsi fyrir hylm- ingu með því að veita um 138 milljónum króna viðtöku og halda fénu ólöglega fyrir Sveinbjörn. Ragnar Orri Benediktsson var dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir hylmingu. Auður Harpa Andrésdóttir, fimmti sakborning- urinn í málinu, var sýknuð. Jón H. segir dóminn vera í samræmi við það sem búast mátti við. Hvort málinu verði áfrýjað af hálfu ákæruvaldsins sé í höndum ríkissaksóknara. Hann muni una dóminum þar til annað komi í ljós. Árni Þór og Kristján Ragnar, sem mættu hvorugur í héraðsdóm í gær, ætla ekki að una dóminum og hafa tekið ákvörðun um að áfrýja honum til Hæstaréttar. Óvíst er að svo stöddu hvort Sveinbjörn áfrýjar en verjandi hans er stadd- ur erlendis. Verjandi Ragnars Orra segir dóminn hafa komið sér í opna skjöldu. Ragnar hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann áfrýji. Bótakröfu Landssímans var vísað frá dómi en í tilkynningu frá Landssímanum segir að með sak- fellingu mannanna fjögurra hafi verið lagður grundvöllur að bóta- kröfu og þeir muni eftir atvikum höfða einkamál. „Það var ótrúlegur léttir að heyra dómsorðið. Ég vissi að ég hafði ekki gert neitt rangt og það var léttir að dómurinn hafi séð það líka,“ segir Auður Harpa, sem var sýknuð í héraðsdómi í gær en hún var ákærð fyrir minnstu sakirnar. Sjá nánar síðu 4 hrs@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.