Fréttablaðið - 24.06.2004, Side 56

Fréttablaðið - 24.06.2004, Side 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 ... ekki lengur www.finna.is Hvaðan komu þessi 600 börn? Í sumar og sól er ótrúlega gaman aðvera sextán ára, þangað til núna allt í einu. Það er alveg stórfurðulegt að allt í einu skulu vera sex hundruð börn sem enginn hefur reiknað með. Eru allir komnir með svona skínandi háar einkunnir, eða er þetta einhver hópur sem hvarf og kom svo allt í einu í leitirnar, eða duttu þessir krakkar bara niður af tunglinu? NÓG er til af alls kyns skriffinnum í kringum öll þessi skólamál. Það hlýt- ur einhvers staðar að leynast einn lít- ill stærðfræðingur sem gat verið bú- inn að reikna út að það þyrfti svo og svo mörg skólapláss haustið 2004 eða er þetta ávísun á að það þarf fleiri skriffinna? Á tyllidögum eins og 17. júní grobba menn ógurlega af því að hagvöxtur sé mikill og hvergi sé betra að búa en í þessu auðuga ríki. Nokkrum dögum seinna er ekki til aur til þess að mennta börnin. HVURS lags eiginlega heimilis- bókhald er þetta? Finnar urðu fyrir miklu áfalli þegar Sovétríkin gömlu liðuðust í sundur. Þeir voru nær gjaldþrota og margur pólitíkusinn klóraði sér fast í kollinum. Hvað gerðu þeir? Jú, þeir lögðu allt í aukna og bætta menntun og menningu sem nú þessum fáu árum seinna hefur svo sannarlega skilað sér í beinhörðum peningum. Þeir hafa uppskorið ríku- lega. Tónlist Finna er eftirsóknar- verð, byggingarlistin sú besta í heimi, að ekki sé minnst á símafram- leiðsluna sem kom þeim svo sannar- lega á hinn eftirsóknarverða lista ríku þjóðanna. FINNSKA leiðin var farin með það fyrir augum að einangra ekki mennt- un við fáa útvalda heldur með miklu pólitísku átaki var menntunin bætt til handa öllum þegnum samfélagsins. Trúarbrögðin, einkavæðing, verða nú að víkja til hliðar fyrir kristilegum hugsunarhætti jafnréttisins og þeir sem hafa verið kosnir til þess að sjá um uppeldismálin verða að bretta upp ermarnar og ráða bara eitthvað af öllum þessum nýútskrifuðu stúd- entum í kennarastörf. Það eru til pen- ingar fyrir endalausum veisluhöldum, bættum lífeyrisréttindum fyrir afdankaða stjórnmálamenn, kínversk- um sendiráðskokkum og guð veit ekki hvað? Þannig að það ætti að vera hægt að finna aur fyrir skólum handa krökkunum. Eða hvernig væri bara að taka lán hjá Finnum. ELÍSABETAR BREKKAN BAKÞANKAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.