Fréttablaðið - 24.06.2004, Qupperneq 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
... ekki
lengur
www.finna.is
Hvaðan komu
þessi 600 börn?
Í sumar og sól er ótrúlega gaman aðvera sextán ára, þangað til núna
allt í einu. Það er alveg stórfurðulegt
að allt í einu skulu vera sex hundruð
börn sem enginn hefur reiknað með.
Eru allir komnir með svona skínandi
háar einkunnir, eða er þetta einhver
hópur sem hvarf og kom svo allt í
einu í leitirnar, eða duttu þessir
krakkar bara niður af tunglinu?
NÓG er til af alls kyns skriffinnum í
kringum öll þessi skólamál. Það hlýt-
ur einhvers staðar að leynast einn lít-
ill stærðfræðingur sem gat verið bú-
inn að reikna út að það þyrfti svo og
svo mörg skólapláss haustið 2004 eða
er þetta ávísun á að það þarf fleiri
skriffinna? Á tyllidögum eins og 17.
júní grobba menn ógurlega af því að
hagvöxtur sé mikill og hvergi sé
betra að búa en í þessu auðuga ríki.
Nokkrum dögum seinna er ekki til
aur til þess að mennta börnin.
HVURS lags eiginlega heimilis-
bókhald er þetta? Finnar urðu fyrir
miklu áfalli þegar Sovétríkin gömlu
liðuðust í sundur. Þeir voru nær
gjaldþrota og margur pólitíkusinn
klóraði sér fast í kollinum. Hvað
gerðu þeir? Jú, þeir lögðu allt í aukna
og bætta menntun og menningu sem
nú þessum fáu árum seinna hefur svo
sannarlega skilað sér í beinhörðum
peningum. Þeir hafa uppskorið ríku-
lega. Tónlist Finna er eftirsóknar-
verð, byggingarlistin sú besta í heimi,
að ekki sé minnst á símafram-
leiðsluna sem kom þeim svo sannar-
lega á hinn eftirsóknarverða lista
ríku þjóðanna.
FINNSKA leiðin var farin með það
fyrir augum að einangra ekki mennt-
un við fáa útvalda heldur með miklu
pólitísku átaki var menntunin bætt til
handa öllum þegnum samfélagsins.
Trúarbrögðin, einkavæðing, verða nú
að víkja til hliðar fyrir kristilegum
hugsunarhætti jafnréttisins og þeir
sem hafa verið kosnir til þess að sjá
um uppeldismálin verða að bretta
upp ermarnar og ráða bara eitthvað
af öllum þessum nýútskrifuðu stúd-
entum í kennarastörf. Það eru til pen-
ingar fyrir endalausum veisluhöldum,
bættum lífeyrisréttindum fyrir
afdankaða stjórnmálamenn, kínversk-
um sendiráðskokkum og guð veit ekki
hvað? Þannig að það ætti að vera
hægt að finna aur fyrir skólum handa
krökkunum. Eða hvernig væri bara
að taka lán hjá Finnum.
ELÍSABETAR BREKKAN
BAKÞANKAR