Fréttablaðið - 25.06.2004, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
FÖSTUDAGUR
GRÆNMETISMARKAÐUR Í ÁR-
BÆJARSAFNI Ókeypis aðgangur er á
grænmetismarkað í Árbæjarsafni klukkan
eitt í dag. Á markaðinum verður til sölu
úrvalsvara, lífrænt ræktað grænmeti frá
gróðrastöðvunum Akri og Engi í Laugarási.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VÆTUSAMT Í DAG OG HLÝNANDI
VEÐUR Vindur verður skaplegur víðast
hvar, en þó gæti blásið nokkuð á
suðvesturhorninu. Sjá síðu 6.
25. júní 2004 – 171. tölublað – 4. árgangur
VART VIÐ LOÐNU Loðnuleit Hafrann-
sóknarstofnunar var nýhafin þegar vart varð
við torfur djúpt vestur og norður af landinu.
Rannsóknarskipið Árni Friðriksson heldur af
stað í dag til frekari rannsókna. Sjá síðu 2
FRÉTTBLAÐIÐ EYKUR FORSKOTIÐ
Fréttablaðið er sá fjölmiðill á Íslandi sem
flestir nota á hverjum degi og er forskot
þess sem mest lesna dagblað landsins enn
að aukast, samkvæmt nýrri fjölmiðlakönn-
un Gallups. Að meðaltali lesa 69 prósent
Fréttablaðið á hverjum degi en 51 prósent
Morgunblaðið. Sjá síðu 4
TUGIR LÁTAST Í FJÖLDA ÁRÁSA
Um níutíu manns létu lífið í sprengjuárás-
um og bardögum víðs vegar í Írak. Fáein-
um dögum fyrir valdaafsal hernámsveld-
anna fer ofbeldið enn vaxandi. Sjá síðu 6
ALVARA LÍFSINS Upp komst um 261
milljón króna fjárdrátt Sveinbjarnar Kristjáns-
sonar, þáverandi aðalgjaldkera Landssímans,
í kjölfar fyrirspurnar Skattstjórans í Reykjavík
um lánveitingu Símans til fyrirtækisins
Alvöru lífsins í maí í fyrra. Sjá síðu 10
2 5 . J Ú N Í T I L 1 . J Ú L Í 2 0 0 4
N R . 2 5 . 2 0 0 4
Sjónvarpsdagskrá
næstu7daga
Lífið eftir boltann
Guðni Bergsson:
Gömlu góðu skólatöskurnar
Allt sem þarf að
taka með í útileguna
Sætustu EM-strákarnir
Persónuleikapróf
Guðni Bergsson:
▲
Fylgir Fréttablaðinu dag
Lífið eftir
boltann
birta
● útilegan ● sveitafitness
Kvikmyndir 32
Tónlist 36
Leikhús 36
Myndlist 36
Íþróttir 26
Sjónvarp 40
Meirihluti andvígur
aðild að ESB
Rúmur helmingur þeirra sem afstöðu tóku í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins kvaðst
andvígur umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Hlutfall óákveðinna hærra en andvígra og
fylgjandi. Niðurstaðan undirstrikar sterkt fylgi við umsókn, segir formaður Samfylkingarinnar.
Hundasýning:
▲
SÍÐA 24
Rúmlega fjögur
hundruð hundar
● keppa í reiðhöll gusts í kópavogi
Rósa Sigrún Jónsdóttir:
▲
SÍÐA 36
Skar af
sér hárið
● og bjó til foss
Katrín Anna Guðmundsdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Skór
dauðans
● matur ● tíska ● heimili
RICARDO HETJA PORTÚGALA Ricardo, markvörður portúgalska landsliðsins, varð hetja Portúgala er hann varði spyrnu frá Dariusi Vassell
berhentur og skoraði síðan sjálfur úr síðustu spyrnunni. Portúgalar eru komnir í undanúrslit en Englendingar halda heim á leið. Sjá síðu 29
M
YN
D
/A
P
Eyðni:
Ungar konur
smitast frekar
BANGKOK, AP Eyðniveiran leggst nú
í auknum mæli á ungar konur, að
sögn embættismanna Sameinuðu
þjóðanna. Sá hópur hefur til þessa
ekki verið talinn í mikilli hættu að
smitast af sjúkdómnum.
Eyðni hefur til þessa aðallega
lagst á karlmenn, fólk sem starfar
í kynlífsiðnaði og fíkniefna-
neytendur. Á síðustu árum hefur
hins vegar hlutfall smitaðra
kvenna aukist.
Samkvæmt skýrslu sem gefin
er út af Sameinuðu þjóðunum
höfðu meira en sjö milljónir ungra
kvenna smitast af sjúkdómnum í
lok árs 2001 borið saman við 4,5
milljónir ungra manna. ■
Utankjörstaðaratkvæði vegna forsetakjörs:
Rúmlega 5000 búnir að kjósa
FORSETAKJÖR Alls voru 5.336 manns
búnir að skila inn utankjörstaðar-
atkvæði til sýslumannsins í Reykja-
vík í gær en kosningar um forseta
Íslands fara fram á morgun.
Samkvæmt upplýsingum á vef
Hagstofu Íslands eru 213.553 kjós-
endur á kjörskrá um land allt. Yfir-
kjörstjórnir allra kjördæma aug-
lýsa í dag og á morgun kjörstaði um
landið. Reykjavíkurborg býður
kjósendum í sínum kjördæmum
upp á rafræna kosningaskrá á vef
sínum. Getur fólk farið inn á vefinn
rvk.is og skráð kennitölu sína, nafn
og heimilisfang á rafrænu kjör-
skrána og birtast þá upplýsingar
um hvar það á að kjósa.
Skoðanakannanir Fréttablaðsins
gefa til kynna 85 prósent kosninga-
þátttöku. Samkvæmt könnunum
fengi Ólafur Ragnar 70 prósent at-
kvæða, Baldur tæp tíu prósent, Ást-
þór rúmt prósent en um fimmtung-
ur skili auðu. Fyrrverandi alþingis-
maður telur að slík úrslit væru
mjög góð og myndu staðfesta að
lýðræðið virki og fólk noti
kosningarétt sinn.
Sjá nánar síðu 8.
KÖNNUN Meirihluti þeirra sem af-
stöðu tóku í nýrri skoðanakönnun
Fréttablaðsins er á móti því að Ís-
lendingar sæki um aðild að
Evrópusambandinu. Rúmlega
einn af hverjum þremur hefur þó
ekki gert upp hug sinn varðandi
umsókn um aðild.
Af þeim sem afstöðu tóku sögð-
ust 55 prósent andvíg umsókn um
aðild að Evrópusambandinu meðan
45 prósent kváðust fylgjandi um-
sókn. Tæplega þrír af hverjum
fimm tóku afstöðu, rúmlega 35 pró-
sent sögðust óákveðin og tæp sjö
prósent neituðu að svara.
„Þessi niðurstaða undirstrikar
að meðal þjóðarinnar er greinilega
mjög sterkt fylgi við umsókn um
aðild að Evrópusambandinu þó svo
að það hafi á stundum verið
meira,“ segir Össur Skarphéðins-
son, formaður Samfylkingarinnar.
„Þetta endurspeglar að fólk er
æ betur að gera sér grein fyrir
því að hagsmunum okkar yrði illa
borgið innan ESB,“ segir Einar
Kristinn Guðfinnsson, þingflokks-
formaður Sjálfstæðisflokksins.
Nokkur munur reyndist á af-
stöðu kynjanna gagnvart umsókn
um aðild. Þær konur sem tóku af-
stöðu í skoðanakönnun blaðsins
skiptust nær alveg í tvo jafnstóra
hópa, fylgjandi og andvígan um-
sókn um aðild. Andstaða við
umsókn um aðild að sambandinu
mældist umtalsvert meiri meðal
karla en um sextíu af hundraði
þeirra sem afstöðu tóku kváðust
andvígir umsókn um aðild.
Þá mældist andstaða við aðild
mun meiri á landsbyggðinni en í
þéttbýli. Sextíu prósent íbúa
landsbyggðarinnar kváðust and-
víg umsókn um aðild meðan
aðeins rétt rúmur helmingur íbúa
þéttbýlis lýstu sömu afstöðu.
Hringt var í 800 manns og
skiptist úrtakið jafnt milli kynja
og hlutfallslega milli kjördæma.
Spurt var: Ertu fylgjandi eða and-
vígur því að Íslendingar sæki um
aðild að Evrópusambandinu.
Sjá á síðu 2.
helgat@frettabladid.is
FLESTIR ÓÁKVEÐNIR
Hlutfall óákveðinna er hærra en hlutfall
þeirra sem eru andvígir aðild að ESB og
einnig þeirra sem eru fylgjandi.
Óákveðnir 37,7%Andvíg 34,2%
Fylgjandi 28,1%