Fréttablaðið - 25.06.2004, Blaðsíða 34
SJÓNARHORN
SVIPMYND
RAUFARHÖFN: Á AUSTANVERÐRI MELRAKKASLÉTTU, ÚTI VIÐ ÞISTILFJÖRÐINN
NAFNIÐ: Dregið af rauf milli hólmans og höfðans þar sem vitinn stendur.
ÍBÚAFJÖLDI: 254.
AÐALATVINNUVEGUR: Sjósókn. Höfnin er örugg frá náttúrunnar hendi og á
tímabili var hún ein stærsta löndunar- og útflutningshöfn síldar á landinu.
ÞEKKTASTA NÚLIFANDI SKÁLD: Jónas Friðrik sem hefur ort marga hnyttna texta
fyrir Ríó tríóið.
GOTT AÐ VITA: Félagsheimilið heitir Hnitbjörg. Bar sem þar er heitir Félaginn.
Laxar, bleikjur og hrygnur um allt land
Hilmar Hansson, formaður Landssambands stangveiðifélaga, myndi að sjálfsögðu
vilja eyða draumahelginni standandi í vatni upp að mitti.
„Á föstudagsmorgni myndi ég bruna norður í land og áður en ég vissi af væri ég
staddur í Laxá í Aðaldal sem er ein fallegasta á landsins og náttúrufegurðin al-
veg sérstök. Æðarfossar, Hólmavatnsstíflan og Brúarflúð eru allt saman miklir
uppáhaldsstaðir hjá mér. Á þessum tíma er fuglalífið alveg stórkostlegt, allir fugl-
ar sem ég get látið mér detta í hug og mikið líf. Í fyrra var ég í Aðaldalnum að
veiða og konan mín hringdi, og þegar smáþögn kom í símtalið hélt hún að ég
væri farinn að liggja á eggjum, slíkur var söngurinn. Á laugardagsmorguninn
myndi ég svo vera kominn í Norðurá og byrja að veiða á Eyrinni þar kl. 7 árdegis.
Ég myndi svo taka Eyrina, Myrkhyl, Laugakvörn og áfram eftir ánni og enda niðri
í Stekk. Ég myndi borða í Veiðihúsinu á Rjúpnaási hjá Guðmundi Viðarssyni kokki
þar. Ég myndi borða víkingasteikina hans Guðmundar og eplaköku í eftirrétt. Ég
fékk þetta um daginn hjá honum og væri alveg til í að borða það aftur.“
Hvað myndirðu veiða?
„Í Aðaldalnum myndi ég vilja veiða stóra fallega laxa, draumurinn væri að fá stór-
lax þar. Ef ég fengi stóra hrygnu myndi ég sleppa henni og leggja inn fyrir góðri
hrygningu í haust. Ég myndi hinsvegar vilja lenda í ævintýri á Eyrinni í Norðurá,“
segir Hilmar leyndardómsfullur. Hann vill ekki láta of mikið uppi um ævintýrin
sem gerast þar. „Eyrin býður upp á töfrastundir og það væri gaman að lenda á
einni svoleiðis þegar laxarnir stökkva næstum því á mann. Laxinn úr Norðurá
myndi ég grilla með fjölskyldunni. Á sunnudaginn færi ég svo á Þingvöll og
veiddi feitar og fallegar kuðungableikjur sem eru gráðugar á þessum tíma. Nú
eru þær komnar upp að landi til að háma í sig æti og veiðimaðurinn nýtir sér
það.“ Og hvernig verður veðrið? „Um þessa helgi verður sól alls staðar þar sem
ég er á landinu.“
Hvernig verður helgin svo hjá Hilmari í alvörunni?
„Á laugardaginn fer ég að veiða í Iðunni þar sem Stóra-Laxá rennur í Hvítá í Ár-
nessýslu og á sunnudaginn fer ég á Veiðidag fjölskyldunnar á Þingvöllum og nýti
mér boð Landssambands stangveiðifélaga. Þá fá allir að veiða án endurgjalds í
mörgum helstu veiðivötnum landsins og ég missi að sjálfsögðu ekki af því.“
-BB
HILMAR HANSSON
DRAUMAHELGIN
25. júní 2004 FÖSTUDAGUR12
Skjótt skipast veður í lofti. Einungis eru fáir dagar síðan landsmenn nutu blíðu um allt land. Vonandi er þess þó ekki langt að
bíða að kuldakastinu ljúki og sumarið taki völdin að nýju.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Blómið:
Ljónslappi
Ljónslappinn er af rósaætt. Blöð hans eru
fingruð en blómin í smáskúfum. Ljóns-
lappinn vex í þurrlendi um landið allt og
blómgast í júní en fyrrum höfðu bændur
trú á því að þegar blöð ljónslappans
væru farin að breiða úr sér mætti sleppa
fé af húsi. Eins og svo margar aðrar ís-
lenskar jurtir þykir ljónslappi góður til að
græða mein. Annað nafn á honum er
kverkagras, sem kemur til af því að seyði
af blöðunum þykir gott til að skola
hálsinn með. ■
VISSIR ÞÚ ...
...að karamella er búin til með því að
bræða saman púðursykur, smjör og
edik?
...að Júpíter er miklu minni en sólin?
...að flest háhýsi í heiminum er í
New York borg, eða 140 talsins?
...að Lassí er vinsælasti sjónvarps-
hundur allra tíma?
...að árið 1571 var hægt að sekta
menn í Englandi fyrir að vera ekki
með ullarhúfu?
...að það eru fleiri en fjörutíu þús-
und tákn í kínverskri skrift?
...að William Henry Harrison var fyrsti
Bandaríkjaforsetinn til að deyja með-
an hann var enn í embætti?
...að golf var bannað í Englandi og
Skotlandi árið 1457 því James II
konungur taldi það trufla fólk í bog-
fimi?
...að leikkonan Liv Tyler var skírð í
höfuðið á leikkonuninni Liv Ullmann
því Ullmann var framan á sjónvarps-
dagskránni þegar Tyler fæddist?
...að í Bandaríkjunum er ekki ólög-
legt að vera fíkniefnaneytandi?
...að í Gallup-könnun sem gerð var
1991 í Bandaríkjunum vissi tæplega
helmingur svarenda ekki að frans-
brauð væri búið til úr hveiti?
...að hlátur styrkir ónæmiskerfið?
...að í London er ólöglegt að keyra
bíl án þess að sitja í framsætinu?
- mest lesna blað landsins
Á LAUGARDÖGUM
hin hliðin á bílum
stærsti bílamarkaður landsins
auglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is