Fréttablaðið - 26.06.2004, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 26. júní 2004 25
Smáralind
Kópavogi
ÚTSALA
afsláttur
af öllum
vörum
30-50%
Þeir sem voru unglingar árið
1980 fóru hver einn og einasti í
bíó þegar dans- og söngvamyndin
Fame reið kvikmyndahúsum með
dans- og söngdrottingunni Irene
Cara í aðalhlutverki. Titillagið
Fame varð ódauðlegt og vann til
Óskarsverðlauna sem besta lagið,
eins og reyndar öll tónlistin í
myndinni. Leikstjóri Fame var
Englendingurinn Alan Parker,
sem einnig skapaði söngvamynd-
irnar Pink Floyd/The Wall, The
Commitments og Bugsy Malone,
en nýjasta mynd Parkers er The
Life of David Gale (2003), þar sem
Kevin Spacey og Kate Winslet
fóru með aðalhlutverk.
Í kjölfar vinsælda Fame fór
bandaríska NBC-sjónvarpsstöðin
af stað með klukkustunda langa
sjónvarpsþætti undir sama nafni
í ársbyrjun 1982. Þættirnir lifðu
til sumarsins 1987, en þóttu þá
orðnir fremur útþynntir þótt víst
ættu þeir stóran og dyggan hóp
aðdáenda um allan heim.
Sagan vinsæla segir af kátum
krökkum sem áttu sér þann
draum að komast í listaskóla til
að læra að dansa, syngja, spila á
hljóðfæri og leika á sviði, en
þráðu fyrst og fremst að lifa líf-
inu til fullnustu meðan þau væru
enn ung og orkurík. Fljótlega
komust þau að raun um að lista-
heimurinn er harður og þurftu
að takast á við höfnun og harða
samkeppni. Persónurnar voru
vel leiknar, litríkar í gleði sinni
og sorgum, og óhætt að segja
dyggir aðdáendur muni aldrei
gleyma þeim Leroy, Danny,
Jesse, Chris, Coco og öllum
hinum. Það var dansarinn
Debbie Allen sem lék óvæginn en
móðurlegan kennarann, en árið
2003 fór NBC aftur af stað með
Fame sem hæfileikaþátt í sjón-
varpi, þar sem Debbie Allen var
aftur í aðalhlutverki.
Þeir leikarar sem léku í sjón-
varpsþáttunum fóru hvert í sína
áttina eftir að upptökum var
hætt, en hinn ógleymanlegi Gene
Anthony Ray, sá er lék blökku-
manninn og stuðboltann Leroy
bæði í kvikmyndinni og sjón-
varpsþáttunum lést af völdum
hjartaáfalls þann 14. nóvember í
fyrra, aðeins 41 árs að aldri.
Hann var einnig illa sjúkur af al-
næmi. Margir urðu heimsfrægir
fyrir tækifæri sitt í Fame-
þáttunum, en þar má nefna
poppdívuna Janet Jackson
og dansarann Lori Singer
sem lék aðalhlutverkið í
Footloose á móti Kevin
Bacon, sem þá var að byrja
ferilinn. Þá voru þau Ice T,
Jimmy Osmond, Joan Baez
og Dermot Mulroney meðal
gestaleikara. Debbie Allen vann
margra leiksigra í hlutverki sínu
í Fame, meðal annars Golden
Globe verðlaunin árið 1983 og
Emmy-verðlaunin 1982 og 1983.
Fame vann einnig Golden Globe
sem besti sjónvarpsþátturinn
árin 1983 og 1984. ■
Sagan af Fame
myndi nú ekki kalla mig fanta
góðan söngvara en ég held lagi
eins og flestir. Ég hef mjög gaman
af því að syngja og ef það er ein-
hver að spila á kassagítar sogast
ég að honum.“
Sveppi hefur ekki mikla
reynslu af leiklist. Hann lék í
söngleikjum í FB og í Svínasúp-
unni sem sýnd er á Stöð 2. Hann
reyndi á sínum tíma að komast inn
í leiklistarskólann en komst ekki
inn. „Einu sinni náði ég í 16 manna
hópinn og einu sinni í 32 manna
hópinn. Það var pínu svekkelsi
sem fylgdi því en það komu góðir
hlutir í staðinn,“ segir Sveppi.
Bullandi athyglissjúkur
Kjörorð listaskólans í Fame
eru: „Frægðin kostar sitt og hér
byrjið þið að borga“. Það er óhætt
að segja að Sveppi hafi þurft að
borga því hann djöflast sem óður
maður á sviðinu í þá tvo og hálfan
tíma sem sýningin stendur.
„Það er ótrúleg brennsla sem
fylgir þessu. Bara eftir fyrsta
atriðið þarf ég að fara bak við og
þurrka mér með handklæði og
sminka mig upp á nýtt,“ segir
Sveppi, sem brennir miklu á með-
an sýningunni stendur. „Ég hef
stundum reynt að fara í ræktina
en það er bara svo leiðinlegt. Ef
maður ætlar að stunda íþróttir
verður maður að hafa bolta eða
vera í svona fíflaskap.“
Sveppi hefur ekki útilokað
frekari landvinninga á leiklistar-
sviðinu. „Það er aldrei að vita og
mér finnst leiklistin mjög
skemmtileg. Þetta er líka til-
breyting frá því að vera fyrir
framan myndavélina. Það hefur
alltaf heillað mig að standa á sviði
og vera í kontakt við áhorfendur,“
segir Sveppi og viðurkennir fús-
lega að honum leiðist ekki athygl-
in sem fylgir því að stíga á svið.
„Ef ég fæ ekki nóg af athygli verð
ég brjálaður. Ég er bullandi
athyglissjúkur á öllum sviðum,“
segir Sveppi.
kristjan@frettabladid.is
SVEPPI
Í hlutverki Jóhanns Jóhanns Jóhannssonar
í Fame.
ÁLFRÚN
ÖRNÓLFSDÓTTIR
Fer með hlutverk Sigríðar.