Fréttablaðið - 26.06.2004, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 26. júní 2004 31
Evrópumótið í knattspyrnu er nú
rétt rúmlega hálfnað og margar
viðureignirnar skemmtilegar.
Ásgeir Sigurvinsson, landsliðs-
þjálfari í knattspyrnu, eru til-
tölulega sáttur við mótið, að
minnsta kosti það sem af er.
„Það hafa verið margir
skemmtilegir og góðir leikir og
það var mikil spenna í riðla-
keppninni. Mótið sem slíkt
finnst mér hafa tekist vel. Ég
held að liðin séu flest áþekk og
það er margt sem getur ráðið úr-
slitum, svo sem dagsformið,
dómaramistök og svo fram-
vegis,“ segir landsliðsþjálfar-
inn. Ásgeir segist vissulega
sakna Ítala, Spánverja og Þjóð-
verja en þjóðirnar duttu óvænt
út í riðlakeppninni. Ásgeir segir
það þó til marks um hve góð
liðin eru sem komust upp úr
riðlunum.
Ásgeir hefur fylgst spenntur
með keppninni eins og aðrir
landsmenn. Hann hefur ekki síst
fylgst með liðum sem íslenska
landsliðið mætir í undankeppni
heimsmeistaramótsins; Króatíu,
Svíþjóð og Búlgaríu. Ásgeir
segir tvö fyrrnefndu liðin hafa
sýnt góða takta og að Búlgarar
séu með sterkt lið þótt það hafi
farið heim stigalaust.
Ítalir mæta brjálaðir til leiks
Íslenska landsliðið mætir ein-
nig Ítölum í vináttulandsleik á
Laugardalsvelli í ágúst. Ítalir
komust ekki upp úr riðlakeppn-
inni og hafa sumir kennt um
skandinavísku samsæri, þegar
Danir og Svíar gerðu 2-2 jafn-
tefli sem kom báðum þjóðum
áfram í keppninni.
„Ítalir hljóta að mæta kol-
brjálaðir til leiks á Laugardals-
velli ekki síst í ljósi þess að þeir
mæta Norðurlandaþjóð,“ segir
Ásgeir hlæjandi og virðist ekki
kvíða því að mæta snillingunum
frá Ítalíu. Landsliðsþjálfarinn
segist ekki trúa því að um stórt
skandinavískt samsæri hafi
verið að ræða. „Þeir sem horfðu
á leik Dana og Svía sáu að það
var mikil keppni í gangi og þjóð-
irnar voru að keppast um sigur í
riðlinum. Ég held að það sé eng-
inn sérstakur kærleikur á milli
þjóðanna og hann endaði með
jafntefli á eðlilegan hátt.“
Mistúlkun fjölmiðla
Ásgeir segir að ekkert lið
hafa komið sérstaklega á óvart í
mótinu. Hann segir Frakka og
Portúgali ekki hafa náð að sýna
sínar réttu hliðar en Dani og
Englendinga hafa leikið vel.
Haft var eftir Ásgeiri í viðtali
við breskt blað að hann ráðlegði
Sven-Göran Eriksson, landsliðs-
þjálfara Englands, að skilja
Wayne Rooney eftir heima. Roo-
ney sló svo sannarlega í gegn á
mótinu og skoraði ein fjögur
mörk. Ásgeir segir að íslenskir
fjölmiðlamenn hafi mistúlkað
viðtalið. „Ég er að vísu ekki bú-
inn að lesa viðtalið en það sem
ég sagði var að Rooney og
Michael Owen passi ekki saman
í framlínunni og það hefur kom-
ið í ljós. Ég sagði að Owen þyrfti
að ná sér verulega á strik í
keppninni og það passaði betur
fyrir hann að hafa stóran mann
eins og Emile Heskey með sér.
Annað er bara bull og ég hefði
aldrei skilið Rooney eftir
heima,“ segir Ásgeir að lokum.
kristjan@frettabladid.is
Ásgeir Sigurvinsson hefur fylgst með Evrópumótinu eins og aðrir landsmenn. Hann fylgist sérstaklega með komandi mótherjum Íslands í
undankeppni heimsmeistaramótsins.
Skemmtilegt mót
það sem af er
ÁSGEIR SIGURVINSSON
Landsliðsþjálfarinn í knattspyrnu segist sakna Ítala, Þjóðverja og Spánverja
en þjóðirnar komust ekki upp úr riðlakeppninni.