Fréttablaðið - 26.06.2004, Blaðsíða 44
EM Í FÓTBOLTA David Beckham, fyr-
irliði Englendinga, var reiður á
blaðamannafundi eftir tapleikinn
gegn Portúgölum þegar leiðtoga-
hlutverk hans var dregið í efa:
„Haldið þið að ég geti veitt lið-
inu innblástur eins og ég gat áður?
Hvað haldið þið? Hlustið, ég er
fyrirliði Englands og ég mun ekki
segja upp þeirri stöðu, ég er stolt-
ur af því að tilheyra þessu liði og
stoltur af því að vera fyrirliði Eng-
lands,“ sagði reiður Beckham og
var ekki hættur: „Ef fólk efast um
mig, þá það, en ég er fyrirliði Eng-
lands og segi ekki af mér fyrr en
einhver vill það og sá einhver er
þjálfari Englands.“
Beckham bauð ekki upp á nein-
ar afsakanir vegna tapsins gegn
Portúgal en sagði liðið fyrst og
fremst skorta heppni til að geta
hampað stórum titli. Hann var
harður á því að Englendingar
myndu jafna sig fljótt og sagði
næsta verkefni vera það að trygg-
ja liðinu sæti á HM í Þýskalandi
eftir tvö ár:
„Ég hef sagt það áður og segi
það enn, þetta lið getur komist
langt. Næsta heimsmeistara-
keppni gæti orðið síðasta stórmót-
ið hjá mér með landsliðinu og nú
verðum við einfaldlega að horfa
jákvæðir fram á veginn,“ sagði
David Beckham. ■
32 26. júní 2004 LAUGARDAGUR
Fyrsti landsleikurinn af þremur gegn Belgum í körfubolta karla:
Slæm byrjun kostaði landsliðið tap
KÖRFUBOLTI Íslenska körfu-
boltalandsliðið tapaði fyrsta leik
sínum undir stjórn Sigurðar Ingi-
mundarsonar í vígsluleik nýja
gólfsins í Borgarnesi í fyrrakvöld.
Belgar unnu fyrsta leikinn af
þremur með tíu stiga mun, 78-88,
en þeir voru 17 stigum yfir í hálf-
leik, 30-47.
Leikurinn var ekki mikil skemmt-
un einkenndist að mestu af villu-
söfnun beggja liða. Leikstjórn ís-
lenska liðsins var ekki upp á
marga fiska og flæði sóknarleiks-
ins var ekki nægilega gott en þar
sem þetta er aðeins fyrsti leikur
fá strákarnir tækifæri til þess að
bæta spilamennskuna í hinum
leikjunum tveimur. Vörnin var
hinsvegar orðin mjög góð í seinni
hálfleik, pressuvörnin kom Belg-
um oft í vandræði og hjálpaði
mikið til við að íslenska liðið náði
muninum alla leið niður í fjögur
stig í fjórða leikhluta.
Þrír af fjórum stigahæstu leik-
mönnum íslenska liðsins komu
inn af bekknum og þar munaði
mestu um framlag Hlyns Bær-
ingssonar og Arnars Freys Jóns-
sonar.
Báðir byrjuðu þeir inn á í
seinni hálfleik og Hlynur er vænt-
anlega búinn að sanna sig sem
byrjunarliðsmaður í landsliðinu.
Hlynur var með 12 stig, fimm frá-
köst og 80% skotnýtingu en hann
hitti meðal annars úr öllum þrem-
ur þriggja stiga skotum sínum.
Arnar Freyr var stigahæstur með
13 stig auk þess að gefa þrjár
stoðsendingar en skotval hans var
ekki gott. Helgi Már Magnússon
var með 11 stig og Magnús Þór
Gunnarsson kom sterkur inn og
setti meðal annars niður þrjá
þrista og alls 10 stig.
Tveir af bestu skotmönnum
liðsins fundu sig ekki á nýja park-
ettinu en þeir Páll Axel Vilbergs-
son (fjögur af 14) og Jakob Sig-
urðarson (tvö af níu) hittu aðeins
úr sex af 23 skotum sínum í leikn-
um. ■
Hollendingar eru
sigurstranglegri
Svíinn Zlatan Ibrahimovic um viðureignina gegn Hollendingum í dag.
EM Í FÓTBOLTA Hollendingar og Sví-
ar mætast í dag í átta liða úrslitum
Evrópumótsins í knattspyrnu. Lið-
in hafa aldrei mæst í lokakeppni
EM en þó er þetta langt í frá fyrs-
ta viðureign þessara þjóða. Þær
mættust í fyrsta sinni árið 1908 á
Ólympíuleikunum í Englandi, í
leik um þriðja sætið og þá höfðu
Hollendingar betur, 2-0. Reyndar
mættust þessar tvær þjóðir einnig
á Ólympíuleikunum 1912, 1920 og
1924. Síðan liðu fimmtíu ár þangað
til liðin mættust aftur í alvöru-
landsleik, þá á HM 1974 í Þýska-
landi og lyktaði þeim leik með
markalausu jafntefli.
Í það heila er lítill munur á lið-
unum en þó hafa Hollendingar
hrósað sigri átta sinnum en Svíar
sjö sinnum af þeim átján skiptum
sem liðin hafa mæst.
Mjög erfitt er að spá um viður-
eignina í dag enda hér á ferð tvö
frábær lið sem þó þurftu að hafa
mikið fyrir því að komast áfram
úr sínum riðlum.
Þjálfari Hollendinga, Dick
Advocaat, segir að lið sitt verði að
hafa sérstakar gætur á Henrik
Larsson, hinum frábæra fram-
herja Svíanna: „Ég dáist að því
hvernig Larsson spilar en ég ótt-
ast hann ekki því þetta snýst um
meira en bara það að stöðva Lars-
son. Svíar eru með mjög gott lið
sem er vel skipulagt og leikmenn
þess eru afar vinnusamir og við
vitum vel að þetta verður mjög
erfiður leikur,“ sagði Advocaat
sem lá undir miklum ámælum eft-
ir tapleikinn gegn Tékkum. Hann
segir slíkt fylgja landsliðsþjálf-
arastöðunni: „Þjálfarinn verður að
vernda leikmenn sína og taka
skellinn, það er það sem ég fæ
greitt fyrir.“
Hælamaðurinn Zlatan Ibra-
himovic, sem slegið hefur í gegn á
EM, leikur einmitt í hollensku úr-
valsdeildinni með stórliðinu Ajax
eins og nokkrir í hollenska lands-
liðshópnum. Hann segir alla vin-
áttu verða lagða til hliðar í þeim
leik: „Við höfum verið að gantast
með leikinn en á laugardaginn
verður lítið um vinskap í nokkra
klukkutíma,“ sagði Ibrahimovic
og bætti við: „Leikurinn verður
afar erfiður fyrir okkur en við
munum gefa allt í hann sem við
eigum og vonum svo það besta.
Hollendingar eru sigurstranglegri
en allt getur gerst í fótbolta og við
munum mæta til leiks hundrað
prósent einbeittir. Við vitum að ef
við spilum eins og við getum best
eigum við ágæta möguleika á að
leggja Hollendinga að velli.“
Ibrahimovic hefur trú á því að
hann og félagi hans í framlínunni,
Henrik Larsson, geti komið Hol-
lendingum í opna skjöldu og undir
það tekur Larsson: „Ég hef spilað
gegn liðum sem Dick Advocaat
hefur þjálfað, bæði í Hollandi og
Skotlandi og ég hef í hyggju að
koma honum á óvart.“
Leikur Hollendinga og Svía fer
fram í Faro-Loulé og hefst klukk-
an 18.45. ■
DIETMAR HAMANN
Sést hér á góðri stundu með félaga sínum
úr þýska landsliðinu, Michael Ballack. Vildi
Völler áfram.
Dietmar Hamann:
Vildi hafa
Völler áfram
FÓTBOLTI Þýski miðvallarleikmað-
urinn, Dietmar Hamann, er von-
svikinn vegna ákvörðunar Rudis
Völler að hætta stjórnun þýska
landsliðsins í kjölfar slælegs
gengis á EM í Portúgal.
Hamann, sem leikur með
Liverpool, segist þess fullviss að
Völler ætti nóg eftir í starfi þrátt
fyrir hrakfarirnar: „Ég hef sagt
það áður að hann er besti þjálfar-
inn fyrir þetta lið sem völ er á og
ég segi það enn,“ sagði Hamann
og bætti við: „Við þurfum stöðug-
leika til að komast fram á við. Það
er alltaf niðurdrepandi að komast
ekki áfram úr riðlakeppninni en
nú verðum við einfaldlega að
standa þétt við bakið á hvor öðr-
um og halda höfðinu uppréttu –
það er það eina sem við getum í
stöðunni.“ ■
LEIKIR
14.00 Ísland mætir Belgíu í
Stykkishólmi í landsleik í körfu.
14.00 Fylkir mætir Gent í Intertoto-
keppninni á Laugardalsvelli.
14.00 Völsungur og Haukar
mætast á Húsavík í 1. deild í fót-
bolta.
14.00 Stjarnan og Fjölnir mætast
á Stjörnuvelli í 1. deild í fótbolta.
16.00 Njarðvík og Þór Ak. mætast
í Njarðvík í 1. deild karla.
16.00 Breiðablik og Valur mætast
á Kópavogsvelli í 1. deild karla.
SJÓNVARP
12.25 Nútímafimleikar á RÚV.
Upptaka frá lokamóti heims-
bikarkeppninnar í nútímafim-
leikum í Innsbruck í Austurríki.
13.00 Á hestbaki á RÚV. Úrval úr
þáttum um hestamennsku frá
árinu 2002.
13.40 EM í fótbolta á RÚV.
Útsending frá leik úr síðustu viku.
15.40 EM í fótbolta á RÚV.
Útsending frá leik Frakka og
Grikkja í átta liða úrslitum á EM í
fótbolta sem fram fór í gærkvöld.
17.00 Inside the USA PGA Tour
2004 á Sýn. Vikulegur þáttur um
bandarísku PGA-mótaröðina í
golfi.
17.30 Trans World Sport á Sýn.
Íþróttir út um allan heim.
17.50 Spurt að leikslokum á RÚV.
Endursýndur þáttur.
18.25 EM í fótbolta á RÚV. Bein
útsending frá leik Svía og
Hollendinga í átta liða úrslitum
EM í fótbolta.
18.25 Motorworld á Sýn.
Kraftmikill þáttur um allt það
nýjasta í heimi akstursíþrótta.
19.00 Sterkasti maður heims á
Sýn.
21.25 Spurt að leikslokum á RÚV.
Spjall og samantekt úr leikjum
dagsins á EM.
23.55 Hnefaleikar á Sýn. Útsend-
ing frá hnefaleikakeppni í Los
Angeles um síðustu helgi en þar
mættust fjaðurvigtarkapparnir
Marco Antonio Barrera og Paulie
Ayala.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
23 24 25 26 27 28 29
Laugardagur
JÚNÍ
Golfmót fatlaðra verður haldið á golfvellinum á
Korpúlfsstöðum sunnudaginn 27. júní, kl. 12.00
Leikið verður í tveim flokkum
Flokki með forgjöf, leiknar 18 holur
punktakeppni full forgjöf og
Byrjendur: Leikið Korpu scramble
Golfsamtök fatlaðra á Íslandi
Golfmót fatlaðra
Á HEIMA Í BYRJUNARLIÐINU
Hlynur Bæringsson lék vel gegn Belgum,
var með 12 stig.
REIÐUR UNGUR MAÐUR
David Beckham sést hér reiður á svip
hlusta á spurningar blaðamanna.
SVAÐALEGIR SVÍAR
Mæta Hollendingum í dag í átta liða úrslitum EM í Portúgal.
David Beckham var reiður á blaðamannafundi:
Ég verð áfram fyrirliði
Nýr þjálfari hjá Ítölum:
Lippi byrjar
í Dalnum
EM Í FÓTBOLTA Það verður Marcello
Lippi sem tekur við af Giovanni
Trapattoni sem þjálfari ítalska
landsliðsins í knattspyrnu en eins
og kunnugt er sátu Ítalir eftir í C-
riðli Evrópukeppninnar þar sem
Svíar og Danir fóru í átta liða úr-
slit.
Lippi er 56 ára, níu árum yngri
en Trapattoni sem hefur ekki náð
góðum árangri með ítalska lands-
liðið en hann hefur stjórnað því í
fjögur ár. Lippi lét af störfum sem
þjálfari Juventus eftir tímabilið.
Fyrsti landsleikur Ítala undir
stjórn Lippi verður væntanlega
gegn Íslendingum í Laugardaln-
um, 18.ágúst næstkomandi. ■