Fréttablaðið - 29.06.2004, Page 1
● lögðu slaka framara í laugardalnum
Landsbankadeild karla:
▲
SÍÐA 23
FH komið í
annað sæti
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
ÞRIÐJUDAGUR
ÍBV FER Í ÁRBÆINN Tveir leikir
verða í Landsbankadeild karla klukkan
19.15. ÍBV sækir Fylkir heim og ÍA tekur á
móti Víkingi. Í Landsbankadeild kvenna
verða tveir leikir klukkan 20. ÍBV tekur á
móti Fjölni og KR mætir Stjörnunni.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
BJART OG FALLEGT VEÐUR fyrir
norðan, annars fremur skýjað og skúrir eða
rigning suðaustan og austanlands. Hlýtt í
veðri. Sjá nánar á bls. 6.
29. júní 2004 – 175. tölublað – 4. árgangur
SPENNA FYRIR ÞJÓÐARATKVÆÐA-
GREIÐSLU 93% landsmanna telja líklegt
að þeir taki þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu
um fjölmiðlalögin, samkvæmt könnun
Gallup. Rúmlega sex af hverjum tíu ætla að
greiða atkvæði gegn lögunum. Sjá síðu 2
NEMAR ÞURFA AÐ BÍÐA Framhalds-
skólar eru að fara í sumarfrí og ná margir
þeirra ekki að ganga frá málum þeirra
nemenda sem sótt hafa um skólavist fyrr
en í ágúst. Sjá síðu 4
VARÐ ÚTI Ísraelskur ferðamaður sem
ætlaði að ganga frá Landmannalaugum
fannst látinn í fyrrinótt. Skálaverðir vöruðu
hann við því að leggja af stað án betri
klæðnaðar. Sjá síðu 6
STARFSMENN HLUNNFARNIR
Verktakafyrirtækið Impregilo er sakað um
að klípa daglega tíma af mörgum starfs-
mönnum sínum án sýnilegrar ástæðu. Mál-
ið líklega á leið til lögfræðings. Sjá síðu 8
36%50%
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
Hugi Halldórsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sefur á
morgnana
● heilsa
Peaches:
▲
SÍÐA 26
Samskipti kynjanna
eru ekki stríð
● segir söngkonan ögrandi í viðtali
Erpur Eyvindarson:
▲
SÍÐA 30
Rottweilerhundarnir
hita upp fyrir 50 cent
● syngja um peninga sem þá
vantar en rapparinn á
ISTANBÚL, AP Leiðtogar NATO lofuðu
miklum stuðningi við ný stjórnvöld í
Írak á fundi sem nú stendur yfir í
Istanbúl. Leiðtogarnir samþykktu
meðal annars að veita hjálp við
þjálfun hersveita Íraka. Þá mun
NATO íhuga frekari aðgerðir til að
auka öryggi Íraka.
„Við styðjum Íraka af heilum
hug og bjóðum nýjum stjórn-
völdum þar í landi fulla sam-
vinnu í viðleitni þeirra við að
auka öryggi borgaranna,“ segir í
yfirlýsingu frá leiðtogunum.
Þá var ákveðið að stækka hóp
friðargæsluliða í Afganistan og
munu 10.000 hermenn á vegum
bandalagsins verða í Afganistan
þegar kosningar verða haldnar í
landinu í september. Þá var ákveðið
að binda enda á níu ára verkefni
NATO á Balkanskaga en Evrópu-
sambandið hefur samþykkt að taka
við verkefninu.
Tugir mótmælenda, sem köstuðu
eldvörpum og steinum að lögreglu,
særðust í átökum þegar þeir gerðu
tilraun til þess að komast að ráð-
stefnuhúsnæðinu þar sem leiðtog-
arnir funda. ■
ÞJÓÐARATKVÆÐI Framsóknarflokk-
urinn mun ekki fallast á að setja
skilyrði um að 44% atkvæðis-
bærra manna þurfi til að fella lög
úr gildi með þjóðaratkvæða-
greiðslu, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins. Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra segir það auð-
velt „að rökstyðja að í það minnsta
44% kosningabærra manna verði
að synja lagafrumvarpi með vísan
til þess, að um 88% tóku þátt í al-
þingiskosningum.“
Starfshópur ríkisstjórnarinnar
um lög um þjóðaratkvæðagreiðslu
skilaði skýrslu í gær. Formaður
hópsins, Karl Axelsson hæstarétt-
arlögmaður, segir að „djúpstæðar
lögfræðilegar og stjórnskipulegar
deilur“ hafi staðið um hvort setja
mætti ákvæði um þátttöku eða at-
kvæðagreiðslu í lög um þjóðarat-
kvæðagreiðslu. „Þetta verður
pólitísk ákvörðun, ekki lögfræði-
leg,“ segir Karl.
Starfshópurinn leggst gegn því
að skilyrði verði sett um aukinn
meirihluta og mælir jafnframt
ekki með því að sett verði ákvæði
um lágmarksþátttöku. Hins vegar
sé hugsanlegt að setja skilyrði um
að 25-44% atkvæðisbærra manna
þurfi að greiða atkvæði gegn lög-
unum eigi þau að falla úr gildi.
Framsóknarflokkurinn mun
ekki fallast á efri mörkin en sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
mun flokkurinn íhuga að setja
mörkin nálægt 25-30%.
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, segir
skýrsluna sýna að þrátt fyrir
umræðuna að undanförnu sé
hægt að setja skilyrði um
þátttöku. Hann segir fram-
sóknarmenn ekki hafa tekið
ákvörðun um hvaða mörk þeir
vilji setja.
„Það er alveg órætt innan
flokksins,“ segir Halldór.
Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingarinnar, segir
að meginniðurstaða skýrslunnar
styðji þá eindregnu skoðun
stjórnarandstöðunnar að stjórn-
arskráin heimili ekki að sett verði
lög um þjóðaratkvæðagreiðslu
með girðingum eða þröskuldum.
Unnið er að gerð frumvarps
um lög um þjóðaratkvæða-
greiðslu. Verður það lagt fyrir á
ríkisstjórnarfundi á föstudag og
fyrir Alþingi á mánudag, þegar
þingið kemur saman að nýju.
Ekki náðist í Davíð Oddsson
forsætisráðherra í gær.
sda@frettabladid.is
sjá nánar síður 10 og 11.
Stjórnarflokkar ekki
sammála um skilyrði
Starfshópur leggur til að sett verði skilyrði í lög um þjóðaratkvæðagreiðslu sem kveða á um
að 25-44% atkvæðisbærra manna þurfi að synja lögum. Sjálfstæðisflokkur er hlynntur efri
mörkunum en Framsóknarflokkurinn þeim neðri. Frumvarp tilbúið í lok vikunnar.
KIRAN PACIFIC LAGT AÐ STRAUMSVÍKURHÖFN Kiran Pacific náðist á flot á háflóði í gær eftir að lofti hafði verið dælt í tanka þess
og dráttarbáturinn Hamar frá Hafnarfirði dró það á flot. Skipið hefur verið stöðvað tvisvar í höfnum þar sem Parísarsamkomulagið gildir
og ef það verður stöðvað einu sinni enn fer það á bannlista. Sjá nánar á bls. 4.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Fundur leiðtoga NATO:
Lofa hjálp við þjálfun
hersveita Íraka
Í HÓPI LEIÐTOGA
Davíð Oddsson forsætisráðherra sækir fund leiðtoga NATO í Istanbúl. Hér sést hann
ásamt Tony Blair og Guy Verhofstad, forsætisráðherrum Bretlands og Belgíu, Jack Chirac
og Vaira Vike-Freiberga, forsetum Frakklands og Litháen.
Írak:
Óvænt
valdaafsal
BAGDAD, AP Bráðabirgðastjórn tók
óvænt við völdum í Írak í gær,
tveimur dögum fyrr en áætlað
hafði verið. Vonast er til að valda-
afsalið hafi jákvæð áhrif á upp-
reisnarmenn í Írak sem orðið hafa
sífellt andsnúnari hernámsyfir-
völdum. Hundruð Íraka hafa látið
lífið í átökum víðsvegar um landið
á síðustu vikum.
Haldnar verða kosningar í land-
inu eigi síðar en 31. janúar næst-
komandi samkvæmt samþykkt frá
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.
Bandaríkjamenn munu áfram sjá
um öryggismál landsins.
Þrátt fyrir valdaafsalið héldu
átök áfram í Írak. Breskur hermað-
ur lést og tveir særðust í spreng-
ingu nærri Basra í suðurhluta Íraks.
Heimsmarkaðsverð á olíu féll
talsvert í kjölfar valdaafsalsins í
Írak.
Sjá nánar bls. 2