Fréttablaðið - 01.07.2004, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 01.07.2004, Blaðsíða 26
Þegar þú ferðast til ókunnugra staða þá er stundum erfitt að velja veitingastað. Ef þú þorir ekki að taka áhættu þá er best að spyrja innfædda. Góð regla er að þar sem innfæddir snæða, þar er gott að snæða. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 24 84 3 0 5/ 20 04 NETSMELLUR – alltaf ódýrast á netinu Allt að 18 ferðir á dag Sumaráætlun Icelandair Bókaðu á www.icelandair.is Engin þjónustugjöld þegar bókað er á netinu. Innifalið: Flug og flugvallarskattar. Breytingagjald 5.000 kr. Icelandair ódýrari í 54,5% tilfella í júní og júlí í sumar til Kaupmannahafnar og London Úttektin var framkvæmd af IMG Deloitte fyrir Icelandair á tímabilinu 6. - 14. maí. Miðað er við algengustu tegund sumarleyfisferða sem er yfir helgi. Til að gæta fyllsta hlutleysis var íslenskur samkeppnisaðili Icelandair á þessum flugleiðum látinn vita að verðkönnun yrði gerð á fyrrgreindu tímabili. Ódýrastir til Evrópu Verð á mann frá 14.490 kr.* Petra Dís er fatahönnuður og förð- unarfræðingur sem lifir og hrær- ist í helstu tískuborg heims. Mílanó varð fyrir valinu þegar Petra komst inn í fatahönnunarnám við Instituto Moda Burgo fyrir tveim- ur árum síðan. Eftir útskriftina var það meðal annars gróskan í tísku- heiminum sem lengdi dvöl hennar í borginni en þar hefur hún starfað sem stílisti og förðunarfræðingur við tískuljósmyndir síðan. Auk þess eyðir hún kröftum sínum í að kenna Ítölum ensku, hanna sínar eigin fatalínur og vinna í Valentino versluninni. „Mér líkar rosalega vel hérna úti og hef eignast frá- bæra vini. Ég var staðráðin í að vera hér þar til ég væri búin að ná almennilegum tökum á tungumál- inu og það er loksins að koma.“ segir Petra hógvær. „Borgin er full af lífi og það er alltaf eitthvað um að vera, jafnt virka daga sem um helgar. Hvort sem þig langar til að dansa, fara á listasýningar eða djasstónleika, það er svo margt hægt að gera hérna. Borgin er til- tölulega lítil og ég er ekki nema 20 mínútur að ganga miðbæinn á enda. Fólkið er fjölbreytt og það eru margir innflytjendur hér sem hafa opnað framandi veitingastaði og verslanir. Svo þykir mér líka gaman að fylgjast með því hvað fólk er vel klætt tískuvikunum þegar sumar- og vetrartískan er kynnt. sjá tískuna og hvað fólk er vel klætt,“ segir Petra, sem kveður Mílanó með söknuði í sumar og heldur til Istanbúl þar sem hún mun starfa sem fatahönnuður. Hún segir lesendum frá sínum eftirlæt- isstöðum í miðbæ Mílanó. ■ Í Mílanó hefur Petra eignast góða vini. Hér er hún ásamt nokkrum þeirra og Björmu litlu systur sem heimsótti hana á dögunum. BARIR Djammið í Mílanó byrjar mjög snemma með hinu svokalla aperiti- vo sem er skemmtilegur siður hér í borginni. Á aperitivo-stað kaupir þú þér einn drykk fyrir um 5 evrur en mátt borða eins og þú vilt. Staðirnir keppast um að draga fólk fyrr út á djammið og aperitivo gildir bara til klukkan átta á kvöldin. BAR T-LOUNGE Dolce & Gabbana staður þar sem skemmtilegt er að djamma á sunnu- dagskvöldum. Barinn er bæði innan- og utandyra en neðri hæðin er brjál- æðislega flott innréttuð með dans- gólfi og góðri tónlist. BAR BAR BIANCO Er við hliðina á kastalanum í Parco Sempione-garðinum. Elegant og flottur staður í miðbænum þar sem setið er undir berum himni. Aðal- dæmið á sumrin. Ekta sumarstaður. GATA VIA BRERA Það er algjör draumur að koma í þessa götu þar sem krökkt er af listamönnum, lófalesurum og götu- sölum með flottar töskur, glingur og eftirlíkingar. Aperitivo-staðirnir, veit- ingastaðirnir og útikaffihúsin eru á hverju strái og hingað er sérstaklega gaman að koma á sumarkvöldum. GATA MONTE NAPOLEONE Allir helstu fatahönnuðir Ítalíu halda úti tískuhúsum í þessari frægu götu og verðið alveg brjálað. Ótrúlega skemmtilegt að skoða þessi þekktu merki á borð við Gucci, Fendi, Armani, Dior, Valentino,Channel og fleiri. SKEMMTISTAÐUR HOLLYWOOD Dansstaður þar sem þotuliðið skemmtir sér og ævintýralegt er að heimsækja. Stjörnur á borð við Justin Timberlake, George Clooney og Paris Hilton gera sér ferðir hing- að. Neðanjarðarstaður með rosalegu VIP-herbergi þar sem ofurfyrirsætur, indverskir prinsar og fáranlega ríkt fólk lætur fara vel um sig. Fyrir utan staðinn er alltaf löng biðröð og að- gangseyrir er 20 evrur. SKEMMTISTAÐUR OLD FASHION Risastór skemmtistaður fyrir alls konar fólk, skiptur niður í þrjá sali með mis- munandi tónlist. Borðin eru leigð út fyrir fúlgur og VIP-liðið situr á borðum umhverfis dansgólfið. Á miðvikudög- um eru haldin sérstök alþjóðleg kvöld. Aðgangseyrir er 15-20 evrur. MARKAÐUR VIALE PAPINIANO Stór og sjarmerandi markaður með alþjóðlegri stemningu sem er aðeins opinn á laugardögum. Hann nær yfir tvær heilar götur og þar er allt hægt að finna, bæði notað og nýtt. Hér er um að gera að prútta en verðið er mjög lágt. Reyndar eru markaðir um alla borg en þessi er langstærstur. VEITINGASTAÐUR ARMANI CAFÉ, NOBU Langbesti sushi-staðurinn í Mílanó. Stílhreinn, elegant og töff eins og allt hjá Armani og verðið er í sam- ræmi við það. Hingað kemur alls konar lið, fyrirsætur, viðskiptafólk og stundum bregður Giorgio Armani sjálfum fyrir að heilsa gestum. Í Mílanó er annars mikið úrval af veit- ingastöðum frá öllum löndum og það er tilvalið að prófa afríska og tyrkneska matinn. VEITINGASTAÐUR TRATTORIA LA SICILIANA Alvöru ítalskt veitingastaður á góðu verði, pasta, lasagna, pítsur og ommelettur sem er hefðbundin suð- urítalskur matur. Hins vegar þarf maður að fara í mat til ítalskrar fjöl- skyldu til að upplifa það sem í raun er alvöru. Ítalir eru lengi að borða og máltíðirnar eru margréttaðar. Eftir matinn fá þeir sér ávexti, svo kaffi og að lokum drekka þeir staup af Monte Negro eða sítrónulíkjör til að bæta meltinguna. Þessa drykki er að sjálfsögðu hægt að fá á öllum ítölsk- um veitingahúsum líka. KIRKJA DUOMO Það er algjör nauðsyn fyrir alla sem heimsækja Mílanó að skoða þessa kirkju, sem tók meira en fimm aldir að byggja. Hún er ólýsan- lega falleg og hlaðin listaverkum eftir alla þekktustu listmálara Ítalíu. Tilval- ið að kíkja á upplýsingaskrifstofu ferðamanna á torginu þar fyrir fram- an og ná sér í bæklinga eða leiðbein- ingar um hvernig á að komast á milli. KIRKJA CIMITERO MONUMENTALE Enginn fer ósnortinn úr þessum alskreytta og fallega kirkjugarði þar sem hinna látnu er minnst bæði innan- og utandyra með ótrúlegum skreyt- ingum, styttum og minnisvörðum. Litlir kastalar og turnar hafa verið reistir þar sem heilu ættartrén hvíla og alls staðar eru myndir af látnu fólki. Víða sjást hinar jarðnesku leifar varðveittar og steyptar á grafreitun- um. Sérstaklega minnisstæð er styt- ta af konu sem seldi blóm alla sína ævi svo hægt væri að reisa af henni styttu í garðinum. KIRKJA SAN BERNARDINO ALLE OSSA Beinakirkj- an frá árinu 1750 er spennandi staður að heimsækja. Að innan er kirkjan skreytt með mannabeinum og hauskúpum frá gólfi og upp í þak. Það er mikil upplifun að koma þar inn en eflaust yfirþyrmandi fyrir andlega opið fólk eða miðla. Petra Dís fatahönnuður: Iðandi líf í Mílanó                         !              "   #       #$  %   &  '      (   )   %*+ ) #!   "    ,      '"- - #. " . /  " .   , /  " " . 0$1!2  3  34   % -   5  4  +  ,   /6      5   6  5               
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.