Fréttablaðið - 01.07.2004, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 1. júlí 2004
www.ntc.is
ÚTSALAN
HEFST Í DAG KL 10:00
Vandaður herra
og dömufatnaður frá:
40-60% AFSLÁTTUR
ÚTSALAN
Hefst í dag kl. 10:00
Opið til kl 21 í kvöld
Nýtt kortatímabil
Nýtt kortatímabil Opið til kl. 21 í kvöld
KRINGLUNNI S. 533 1740
30-50%
afsláttur
Skylda í sumarbústaðinn:
Spil sem allir
hafa gaman af
Þessa dagana er verslunin BT með öll spilin sem eru skylda í
sumarbústaðinn á góðu verði. Þar má nefna spilið Sequence sem
gengur út á heppni í hugsun og röðun. Til að sigra í Sequence þarft
þú að vera fyrst/ur til að leggja tvær raðir með fimm leikpeðum í
sama lit. Sequence er nú aðeins á 2.799 krónur. Síðan er það Hringa-
dróttinsspilið en þar er hlutverk þitt að koma í vef fyrir að myrkra-
höfðinginn Sauron nái Hringnum Eina. Það spil er aðeins á 999
krónur í BT. Mr. & Mrs. er spil sem prófar hvort þú þekkir maka
þinn, fjölskyldu og vini eins vel og þú heldur. Þetta spil er byggt á
samnefndum spurningaþáttum í breska sjónvarpinu og er á 3.499
krónur. Leonardo og Co er hrífandi spurningaspil sem veitir mjög
greinargóð svör við hverri spurningu. Þetta spil er fyrir fjórtán ára
og eldri og er á 3.299 krónur í BT. Loks er það hið geysivinsæla
Trivial Pursuit sem hættir aldrei að vera vinsælt. Þetta er spurn-
ingaspil með spurningum bæði fyrir fullorðna og börn og er verðið
á því 4.699 krónur. Rúsínan í pylsuendanum er síðan leikurinn sem
BT stendur fyrir þegar búið er að greiða fyrir spil. Þá getur kaup-
andi kastað teningi og ef hann fær sexu þá fær hann spilið endur-
greitt að fullu.
Verslanir BT eru í Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Hafnar-
firði, Spönginni, Akureyri og Egilsstöðum og er sameiginlegur sími
550 4444. ■
Um þessar mundir stendur yfir sjötíu ára
afmælistilboð Andrésar Andar hjá Vöku-
Helgafelli. Andrés Önd varð sjötugur 9.
júní og því býður hann fyrstu þrjú blöðin
sín ókeypis nú ef áskrift er keypt. Auk
þess fylgir vandað úr að gjöf með átta
vikna áskrift og með tólf vikna áskrift
fylgir vandað úr og safnmappa að gjöf.
Hvert blað í áskrift kostar 295 krónur auk
30 króna sendingarkostnaðar en blað í
lausasölu kostar 375 krónur. Það er því
talsvert hagstæðara að gerast áskrifandi
að blöðunum hans Andrésar. Síðan fá
áskrifendur myndasögublað með Andrési
Önd og félögum sent heim á hverjum
þriðjudegi. Það er því til mikils að vinna
fyrir dygga áskrifendur afmælisbarnsins
og alltaf gaman að sjá hverju Andrés tek-
ur upp á í blöðunum sínum. Hægt er að
gerast áskrifandi á vefsíðunni klubbar.is
eða í síma 522 2020. ■
13“ álfelgur eru á tilboði hjá Brimborg.
Verð áður 12.500 kr. en er nú 9.500 kr.
Grjóthlífar á flestar tegundir bíla eru á
tilboði hjá Bílanaust. Verð áður 12.000
kr. en er nú 5.889 kr.
Solomon Grundy víngerðarefni með
töppum er á tilboði hjá Víngerðinni.
Verð áður 3.660 kr. en er nú 2.660 kr.
Nuddpottur Paradise frá Coast Spas er
á tilboði hjá Poulsen. Verð áður
597.900 kr. en er nú 538.840 kr.
SAVO-skrifborðsstóll er á tilboði hjá
Epal. Verð áður 82.540 kr. en er nú
29.000 kr.
Mössun, bón og alþrif er á tilboði hjá
Múlabón. Verð áður 10.000 kr. en er
nú 8.000 kr.
Íþróttagalli er á tilboði hjá Friendtex.
Verð áður 8.900 kr. en er nú 3.600 kr.
Símstöð og fimm símar frá Panasonic
er á tilboði hjá Svartækni. Verð áður
169.000 kr. en er nú 129.000 kr.
Kokkur án klæða myndband með
Jamie Oliver er á tilboði hjá PP forlagi.
Verð áður 3.860 kr. en er nú 1.990 kr.
Flísalögn per fermetra er á tilboði hjá
Viðhaldi fasteigna. Verð áður 6.200 kr.
en er nú 4.960 kr.
[ NOKKUR HAGSTÆÐ TILBOÐ ]
Trivial Pursuit er spil sem
allir þekkja og fæst í versl-
unum BT á góðu verði.
Andrés Önd er orðinn
sjötugur en hefur samt
aldrei verið hressari.
Afmælisbarnið Andrés Önd:
Býður upp á
vandaðar gjafir