Fréttablaðið - 02.07.2004, Blaðsíða 45
FÖSTUDAGUR 2. júlí 2004
TILBÚNIR OG ELDAÐIR KJÚKLINGARÉTTIR
Kjúklingur sem framleiddur er undir vörumerkinu Eldfugl
hefur verið eldaður og er tilbúinn til notkunar.
Eldfugl í magnpokum fæst með Hunangssósu,
Hvítlaukssósu og Buffalósósu.
Reykjagarður hf
Eldfugl - Tilbúinn á grillið
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
52
08
07
/2
00
4
Nokia 3200
Myndavélasími
Verð 16.900 kr.
Símann er eingöngu hægt að nota með símkorti frá Og Vodafone.
Verslanir Og Vodafone: Kringlunni, Smáralind, Síðumúla 28, Skífunni
Laugavegi 26, Hafnarstræti Akureyri og umboðsmenn. Þjónustuver
sími 1414, www.ogvodafone.is
990 kr.
1.990 kr.
490 kr.
Allt í ferðalagið
MP3 spilari fylg
ir
990 kr.
Góðir
490 kr.
ferðafélagar
Glímutrölið The Rock, sem vakti
fyrst athygli í bíómyndum fyrir
hörmulegan leik sinn í hlutverki
The Scorpion King í The Mummy
Returns, er mættur til leiks í
myndinni Walking Tall sem er
frumsýnd í dag.
Walking Tall byggir á sann-
sögulegum atburðum og var
fyrst kvikmynduð árið 1973
þegar Joe Don Baker lék lög-
reglustjórann Buford Pusser sem
reis upp gegn glæpum í suður-
ríkjabæ í Teenessee og hristi upp
í glæpalýðnum. Myndin gat af
sér tvær framhaldsmyndir,
Walking Tall Part II og Final
Chapter: Walking Tall.
Sagan hefur tekið nokkrum
breytingum í nýju myndinni en
grunnstefið er það sama. The
Rock leikur Chris Vaugn sem snýr
aftur til gamla heimabæjarins
síns eftir glæsilegan feril í hern-
um. Honum bregður heldur betur
í brún þegar hann sér að bærinn
er orðinn hið versta lastabæli sem
spilavítiseigandi og keppinautur
hans úr skóla stjórnar.
Chris ákveður að bjóða glæpa-
hyskinu sem drottnar fyrir bæn-
um birginn og bíður sig fram til
embættis fógeta á staðnum og
eftir að hann er orðinn laganna
vörður fer hann einn á móti öll-
um og lætur ekkert stöðva sig.
Harðhausar og hasarmynda-
hetjur drottna yfir þessari frum-
sýningarhelgi en Slagsmála-
Kínverjinn Jackie Chan lætur
ljós sitt skína í ævintýramynd-
inni Around the World in 80 Days
en sú saga þarfnast vart kynning-
ar en flestir þekka æsispennandi
veðmál of ferðalag breska sér-
vitringsins Phileas Fogg um-
hverfis jörðina á 80 dögum.
Upprunalega sagan er eftir
Jules Verne en í þessari nýju
mynd er aðstoðarmaður Foggs,
Passepartout, í forgrunni. Jackie
Chan leikur Passepartout sem
leitar skjóls undan laganna vörð-
um með því að slást í för með
Fogg. Þekking hans í bardagalist-
um bjargar þeim félögum síðan úr
mörgum háskanum en vondir
menn reyna að sjálfsögðu að hin-
dra för þeirra. ■
Uppréttur klettur og
heimshornaflakk Kínverja
WALKING TALL
Internet Movie Database 6.1 /10
Rottentomatoes.com 25% = rotin
Metacritic.com 37 /100
AROUND THE WORLD IN 80 DAYS
Internet Movie Database 6.0 /10
Rottentomatoes.com 33% = rotin
Metacritic.com 50 /100
FRUMSÝNDAR UM HELGINA
(DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM)