Fréttablaðið - 02.07.2004, Blaðsíða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
99 kr/skeytið.
Sendu SMS skeytið JA POPP
á númerið 1900 & þú gætir
farið á tónleikana. Við sendum þér
spurningu sem þú svarar með SMS
yti JA A, B eða C á númerið 1900.
Nýjung f
rá
Maizena
Í staðinn
fyrir
rjóma
Cremefine til þeytingar er ferskur
og rjómakenndur en með helmingi
minni fitu en rjómi.
Cremefine Fraiche er þéttur og
ferskur á bragðið. Hentar vel í
heita og kalda rétti og allar sósur.
Cremefine til matreiðslu er góður
í heita rétti, súpur og sósur og skilur
sig ekki við suðu.
– freistingin sem óhætt er að falla fyrir!
Cremefine
Skilur sig
ekki við s
uðu He
lst stíf-
þeyttur le
ngurBæði í
heita
og kalda
rétti
Skilyrði
Ef það á að fara fram þjóðar-atkvæðagreiðsla í þessu landi á
komandi misserum um ákvarðanir
réttkjörins Alþingis vil ég sem
þroskuð manneskja og fullgildur ein-
staklingur setja eftirfarandi skilyrði:
Allir þeir sem greiða vilja atkvæði
gegn lögum Alþingis verða að vera í
nærbuxunum utan yfir buxurnar
þegar þeir koma á kjörstað. Jafn-
framt verða þeir sem eru á móti því
sem lagt er fram í viðkomandi þjóð-
aratkvæðagreiðslu, og vilja þar með
fella úr gildi lög réttkjörins og hátt-
virts Alþingis, að hoppa þrjá hringi í
kringum viðkomandi kjörstað á ein-
um fæti og fara með stjórnarskrána
aftur á bak á portúgölsku áður en
þeim verður leyfður aðgangur að
viðkomandi kjörklefa.
KJÖRKLEFAR fyrir andstæðinga
frumvarps réttkjörins og háttvirts
Alþingis verða einungis tveir og
verða þeir staðsettir annars vegar á
Húsavík og hins vegar á Höfn í
Hornafirði. Það ætti að vera feikinóg
fyrir þá sem vilja nema úr gildi við-
komandi lög, enda er bílaeign almenn
á Íslandi og því ekkert tiltökumál
fyrir þorra almennings að leggja land
undir fót ef fólk vill á annað borð
taka þátt í svona vitleysisgangi. Kjör-
klefar fyrir fylgjendur frumvarpsins
verða aftur á móti víða, og verður
farið fram á sönnun þess í anddyri
viðkomandi kjörstaðs að viðkomandi
einstaklingar séu í raun og veru
fylgismenn viðkomandi laga með
lögbundinni yfirheyrslu, eiðsvarinni
blóðblöndun og ferföldu húrrahrópi.
ÆTTI þá allt að vera klappað og
klárt fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu,
enda verður tryggt og sett í lög,
samþykktum af háttvirtu og rétt-
kjörnu Alþingi, að prósentuhlutfall
þeirra sem eru andvígir lögunum
verði aldrei svo hátt að lögin falli úr
gildi. Þetta má gera með einföldum
skilyrðum. Í ljósi þess að hér á landi
ríkir þingræði, en síður lýðræði,
verður að teljast sanngjarnt að þjóð-
in sýni fullkominn einhug ef hún vill
fella lögin. Ég endurtek: Fullkomin
einhug. Þetta þýðir að ekki færri en
100% kosningabærra manna verða
að greiða atkvæði gegn lögunum svo
að andstaðan verði marktæk.
ÞÁ ER ekki eftir neinu að bíða.
Skilyrði þessi eru einföld, öllum
skiljanleg og komast fyrir á einni
blaðsíðu. Allir þeir sem eru á móti
þessum skilyrðum eiga einfaldlega
of mikið af peningum.
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR