Fréttablaðið - 03.07.2004, Qupperneq 1
▲
SÍÐA 26
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
LAUGARDAGUR
KA Í FOSSVOGINN
Næstsíðasti leikurinn í sextán liða úrslit-
um Visa-bikarkeppninnar í fótbolta verð-
ur í dag. Víkingur tekur á móti KA klukk-
an 14. Síðasti leikurinn verður á mánu-
daginn þegar Fram og Keflavík mætast.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
BJART MEÐ KÖFLUM. Síðdegisskúrir
einkum með Suðurlandinu. Hiti 10–15 stig,
hlýjast inn til landsins. Sjá síðu 6.
3. júlí 2004 – 179. tölublað – 4. árgangur
● stóri myndasögudagurinn
Pétur Yngvi Yamagata:
▲
SÍÐA 16
Nexus gefur tvö þúsund
myndasögublöð
VISA-bikar karla:
Ekkert óvænt í
bikarnum
● dó blankur og bitur
Marlon Brando:
▲
SÍÐA 34
Stórbrotinn kvik-
myndaleikari kveður
VILL VERJA SADDAM Dóttir Moamm-
ar Gaddafís Líbíuleiðtoga vill slást í hóp
þeirra lögmanna sem hyggjast verja Saddam
Hussein, fyrrum forseta Íraks. Sjá síðu 2
KYNFERÐISBROT GEGN HEYRNA-
LAUSUM BÖRNUM
Formaður Félags heyrnarlausra vill að fram
fari opinber rannsókn á hversu stór hópur
heyrnarlausra barna hafi verið misnotaður
kynferðislega. Sjá síðu 2
ENGINN SLAKI Aðalhagfræðingur
Seðlabankans segir að enginn slaki sé í
efnahagslífinu. Hann segir að áframhald-
andi sterk staða krónunnar sé mikilvæg og
dragi úr hættu á verðbólgu. Sjá síðu 4
BYGGT VIÐ SKÓLA Bæta á við hús-
næði þriggja framhaldsskóla til að koma
nýnemum að í haust. Til vandræða horfir
að ári verði ekki byggt frekar við skólana.
Sjá síðu 6
● bílar
Jón úri:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Smíðar úr
og bíla
Kvikmyndir 30
Tónlist 33
Leikhús 33
Myndlist 33
Íþróttir 26
Sjónvarp 32
Makaskipti færast í vöxt og
margir lifa hópkynlífi. Kona á
fimmtugsaldri segir frá reynslu
sinni.
Rokk og ról:
SÍÐUR 22 OG 23
▲
Rekkjubrögð:
SÍÐUR 20 OG 21
▲
Risahljómleika Metallicu er beðið með
eftirvæntingu enda sveitin í hópi merki-
legustu rokkhljómsveita sögunnar.
Norskt sveitarfélag:
Reykið ekki
heima við
NOREGUR Fyrir nokkru bönnuðu
Norðmenn reykingar á öllum
matsölustöðum í landinu og nú
hafa yfirvöld í sveitarfélaginu
Aure gengið skrefinu lengra og
sent íbúum bréf þar sem þau
biðja fólk um að reykja ekki
heima við.
Reyndar er það ekki nema
hluti íbúanna sem fær beiðni
sveitarstjórnar og þeir sem fá
hana eru aðeins beðnir um að
reykja ekki í ákveðinn tíma. Þeir
sem fá bréfið er fólk sem nýtur
heimaþjónustu á vegum sveitar-
félagsins. Það fólk er nú beðið
um að reykja ekki klukkutíma
áður en hreingerningafólk kemur
á staðinn og ekki meðan það er að
hreinsa íbúð fólksins, að því er
Aftenposten greinir frá.
Röksemdafærslan fyrir beiðn-
inni er sú sama og fyrir reyk-
ingabanninu, að koma í veg fyrir
að starfsfólk þurfi að þola óbein-
ar reykingar. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
● stóru liðin unnu sína leiki
Veldu
ódýrt
bensín
Allar
konur fá
ókeypis
í laugarnar
í dag!
Sjáðu meira á blaðsíðu 27.
Laugarnar í Reykjavík
ÞJÓÐARATKVÆÐI Halldór Ásgríms-
son, formaður Framsóknar-
flokksins, hefur umboð frá þing-
flokki sínum til að setja allt að 30
prósenta þátttökuskilyrði í lög
um þjóðaratkvæðagreiðslu. Sjálf-
stæðismenn vilja ekki hnika frá
44 prósentum og telja að jafnvel
ætti markið að vera nær 50. Um
er að ræða hlutfall kosninga-
bærra manna sem þarf að greiða
atkvæði gegn lögum svo þau falli
úr gildi.
Framsóknarmenn gengu af
ríkisstjórnarfundi innan við
stundarfjórðungi eftir að hann
hófst í gær kl. 14. Fundur hafði
áður verið boðaður kl. 10.30 en
honum frestað á síðustu stundu.
Halldór Ásgrímsson sagði þegar
hann gekk út úr stjórnarráðinu
að ekki hefði náðst sátt, málið
væri „stórt“ og þarfnaðist frekari
skoðunar.
Ráðherrar Sjálfstæðisflokks
funduðu áfram í um klukkustund.
Spurður um hvort ágreiningur
milli ríkisstjórnarflokkanna stæði
um hlutfall kosingabærra sagði
Davíð Oddsson að það þurfi „að
leysa úr nokkrum álitaefnum“.
Þeir þingmenn Framsóknar-
flokksins sem Fréttablaðið ræddi
við í gær sögðust ósáttir við að
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
hefðu komið fram í fjölmiðlum
með yfirlýsingar um að miða við
44–50 prósent án þess að hafa ráð-
fært sig nokkuð við samstarfs-
flokk sinn í ríkisstjórn.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins
sögðu hins vegar við Fréttablaðið
að þeir yrðu afar ósáttir ef mörk-
in yrðu lægri en 44 prósent. Áður
en skýrslan um þjóðaratkvæða-
greiðslu var birt hefði þingflokk-
urinn verið sammála um að mörk-
in ættu að vera að minnsta kosti
50 prósent og því þætti þeim 44
prósent þegar vera málamiðlun.
Ríkisstjórnarfundur verður
haldinn að nýju í dag.
sda@frettabladid.is
Sjá nánar á síðu 2
FUNDI SLITIÐ
Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, gengur af ríkisstjórnarfundi í gær stundarfjórðungi eftir að hann hófst. Á fundinum
var rætt um lög um þjóðaratkvæðagreiðslu en stjórnarflokkarnir eru ósammála um hvaða skilyrði eigi að setja um þátttöku.
Mikil ferðahelgi í uppsiglingu:
Þung umferð um þjóðvegina
FERÐALÖG Mikill fjöldi fólks leggur
land undir fót um helgina og því
þung umferð um þjóðvegi landsins
í gærkvöldi. Umferðin í gegnum
Borgarnes fór að þyngjast veru-
lega strax upp úr klukkan fimm og
var orðin mjög þung um níuleytið í
gærkvöldi að sögn lögreglu.
Tvö knattspyrnumót verða
haldin á Akureyri um helgina og
mikill mannfjöldi í bænum að
sögn lögreglu. Taldi lögregla að
mörg þúsund manns hefðu slegið
upp tjaldi í bænum.
Landsmót hestamanna fer
fram á Hellu og taldi lögregla að
fjöldi gesta í gærkvöldi næmi átta
til níu þúsundum. Að sögn lögregl-
unnar á Selfossi var umferðin um
Suðurland þung í gærkvöldi en
Humarhátíð á Höfn í Hornafirði
fer einnig fram um helgina.
„Það verður meinhægt og
þægilegt útivistarveður víðast
hvar,“ segir Þorsteinn V. Jónsson,
veðurfræðingur á Veðurstofu
Íslands.
Víða er spáð tíu til fimmtán
stiga hita en hlýjast verður á
sunnanverðu landinu. Ekki eru
líkur mikilli sól en þó má gera ráð
fyrir nokkuð björtu veðri, helst
austast á landinu. ■
Framsókn vill 30%
Formaður Framsóknarflokksins hefur umboð frá þingflokknum um að
semja um að 30 prósent kosningabærra þurfi til að fella lög úr gildi.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilja þó ekki hvika frá 44 prósentum.