Fréttablaðið - 05.07.2004, Blaðsíða 61
29MÁNUDAGUR 5. júlí 2004
STÓRHÖFÐA 27 -SÍMI: 552 2125www.gitarinn.is
SUMARTILBOÐ!!!
ÞJÓÐLAGAGÍTAR
MEÐ POKA
KR. 14.900.-
KASSAGÍTAR
FRÁ KR. 9.900.-
MEÐ POKA!!!
RAFMAGNSSETT: KR. 25.900.-
TROMMUSETT: FRÁ KR. 54.900.-
(RAFMAGNSGÍTAR - MAGNARI - POKI - KENNSLUBÓK -
STILLIFLAUTA - GÍTARNEGLUR OG 2 SNÚRUR!!!!)
gitarinn@gitarinn.is
GÍTARINN EHF.
Yfir 8000 miðar seldir
Sun. 4. júlí kl.17.00 upps. lau. 10 júlí kl. 17.00 upps.
Lau. 10 júlí kl 19.30 upps. fim. 15 júlí kl. 19.30
Fös 16 júlí kl.19.30 fim. 22 júlí kl. 19.30
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
SKARTHÚSIÐ
Laugavegi 12, s. 562 2466
SUMAR Í
SKARTHÚSINU
Skór 2 stk. kr. 2000.- Einnig barnastærðir
FULL BÚÐ AF
NÝJUM VÖRUM
BOGOMIL FONT
Hann mun koma fram ásamt Kristjönu Stefánsdóttur á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði. Hátíðin hefst 7. júlí og stendur fram til 11. Auk
þeirra kemur fjöldi erlendra og innlendra tónlistarmanna fram á hátíðinni. Gestum hátíðarinnar standa 10 tónleikar til boða, leiksýn-
ingar, fjölda námskeiða fyrir börn og fullorðna auk fyrirlestra.
Macy Gray allsber að syngja?
Söngkonan Macy Gray hefur
tilkynnt að hún muni koma
fram allsber á tónleikum sínum
í London á mánudaginn. Uppá-
tækið kann að koma fólki spán-
skt fyrir sjónir en Gray er í
raun að gera þetta í góðgerðar-
skyni.
„Það er rétt. Hún mun gera
þetta til styrktar Elton John
Aids sjóðsins“ sagði talsmaður
Gray. „Aldrei áður hefur tón-
listarmaður gengið svo langt í
góðgerðarskyni.
Talsmaður hennar sagði enn
fremur að hún hafi viljað gera
eitthvað algjörlega nýtt þegar
henni bauðst að styrkja þetta
góða málefni. „Þetta er mjög
kynæsandi yfirlýsing sem hún
ein getur framkvæmt.“
Macy Gray verður eingöngu
íklædd skóm frá Jimmy Choo
en þar við situr. Búist er við að
uppátækið muni skila góðum
aur í kassann enda ekki á hverj-
um degi sem söngkona efnir til
slíks sjónarspils.
Tónleikarnir fara fram á The
Coronet og verða fyrstu tónleikar
Gray í Bretlandi í tvö ár. ■
Cruise og Kidman saman á ný?
Núna eru liðin þrjú ár síðan leik-
araparið Tom Cruise og Nicole
Kidman tilkynntu um skilnað sinn
eftir 10 ára samband. Saman eiga
þau tvö börn, Isabellu og Connor.
Nýlega birti slúðurblað í
Bandaríkjunum frétt þess efnis
að þau væru á leiðinni að taka
saman aftur, eftir að Cruise hafði
sagt skilið við kærustu sína, Pene-
lope Cruz.
Aðspurð þvertók Kidman
fyrir þetta. „Þetta á ekki við rök
að styðjast,“ sagði Kidman.
„Þetta tímabil er löngu liðið og
verður ekki endurtekið. Ég er
einhleyp og enginn karlmaður í
lífi mínu eins og er.“
Leikkonan segir að þó að upp
úr sambandinu hafi slitnað, þá
eigi hún vingott við Cruise, hann
hafi reynst henni góður, og þau
séu samheldin þegar kemur að
uppeldi barna þeirra tveggja.
„Við höfum börnin til skiptis í 6
vikur í senn sem virkar mjög
vel fyrir okkur bæði. Við erum
bæði mjög sátt með hvernig við
unnum úr þessu á sínum tíma og
höfum náð að halda því til
haga“. ■
MACY GRAY ER DJÖRF
Söngkonan geðþekka er gleðin uppmáluð eins og sjá má á þessari mynd.
GLÖÐ OG GLÆSILEG
Tom Cruise og Nicole Kidman á góðri
stundu. Það er gott á milli þeirra, fullyrðir
Kidman.