Fréttablaðið - 09.07.2004, Qupperneq 1
● úr fallsæti í fyrsta sinn í sumar
Landsbankadeild karla:
▲
SÍÐA 23
Þriðji sigur
Víkinga í röð
● gerir stuttmynd eftir sjálfan sig
Jón Gnarr:
▲
SÍÐA 30
Burðast með annað
fólk á bakinu
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI sími 550 5000
FÖSTUDAGUR
OPINBER HEIMSÓKN Varaforseti
kínverska þingsins, Wang Zhaoguo, kem-
ur í opinbera heimsókn til landsins í dag.
Hann verður hér í boði Halldórs Blöndal,
forseta Alþingis, þar til á mánudag.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
SÓL OG HITI FYRIR NORÐAN OG
AUSTAN Yfirleitt bjart og þurrt á landinu
og talsvert hlýtt á Norður- og Austurlandi í
dag. Sjá síðu 6.
9. júlí 2004 – 184. tölublað – 4. árgangur
STEFNULEYSI Í MENNTAMÁLUM
Ríkisendurskoðun gagnrýnir stefnuleysi yf-
irvalda í málefnum háskóla hérlendis.
Mælt er með að mörkuð verði stefna til
framtíðar. Sjá síðu 6
DEILT UM SJÓMANNAAFSLÁTT
Kjaraviðræður háseta Hafrannsóknastofnun-
arinnar eru í hnút. Verkfall framundan verði
sjómannaafsláttur ekki tryggður. Sjá síðu 2
ÞÖRF Á VIÐRÆÐUM VIÐ ÞING-
NEFND Bandarískur sérfræðingur í varn-
armálum segir að Íslendingar þurfi að hafa
frumkvæði að viðræðum við lykilmenn í
þinginu til að tryggja framtíð varnarsamn-
ingsins. Sjá síðu 4
FYRRVERANDI SKÓLASTJÓRI
FYRIR DÓM Tekið var fyrir í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær opinbert mál á hendur
Jóni Árna Rúnarssyni, fyrrum skólastjóra
Rafiðnaðarskólans í Reykjavík og tengdra
skóla. Sjá síðu 10
nr. 27 2004
g•á~tÇ • ^ÉÄtÑÉÜà|Çâ
dagskráin 9. júlí - 16. júlí
Jón Hjalti Sigurðsson:
▲
Fylgir Fréttablaðinu dag
Missti sjónina
sextán ára
birta
● augnakonfekt í kolaportinu
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
Klara Ósk Elíasdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Best að sleppa
sokkunum
● matur ● tíska ● heimili
FJÖLMIÐLALÖG Innan ríkisstjórnar-
innar er það ekki útilokað að nýja
fjölmiðlafrumvarpið taki breyting-
um í meðferð allsherjarnefndar.
„Í þingnefndinni er ekkert úti-
lokað að [...] gera breytingar á
þeim texta sem lagður er fram í
þessu frumvarpi,“ sagði Geir H.
Haarde fjármálaráðherra í ræðu
sinni um frumvarpið á Alþingi.
Að sögn Bjarna Benediktssonar,
formanns nefndarinnar, er ekki
útilokað að breytingar verði gerð-
ar á því ákvæði frumvarpsins er
varðar rétt til að afturkalla út-
varpsleyfi þegar lögin taka gildi
árið 2007.
„Ef þetta frumvarp verður
óbreytt hvað þetta atriði varðar
má segja að það sem við fjölluðum
um í nefndaráliti okkar í vor eigi
við meira eða minna óbreytt,“ seg-
ir Bjarni.
„Við tókum á því í nefndarálit-
inu að sú staða kynni að koma upp
að ríkið yrði bótaskylt. Deilurnar
um þetta ákvæði þá stóðu að hluta
til um það hvort rétt væri að veita
útvarpsréttarnefnd heimild til
þess að afturkalla útvarpsleyfi.
Þetta nýja frumvarp er sambæri-
legt frumvarpinu sem lá fyrir
þinginu í vor hvað þetta atriði
varðar. Niðurstaða þingsins í vor
var að setja inn bráðabirgðaá-
kvæði til að framlengja þau leyfi
sem runnu út til 2006 fram að því
tímamarki og að leyfa öðrum leyf-
um að renna út,“ segir Bjarni.
Spurður um hvort niðurstaða
þingsins yrði ekki sú sama nú, seg-
ir hann að það yrði „verulega mik-
il tilslökun“ en það væri þó ekki
útilokað.
Stjórnarliðar sögðu við Frétta-
blaðið í gær að þeir teldu að stjórn-
arandstaðan væri ekki í sáttahug
og því væri ekki útlit fyrir einhug
um hvaða breytingar frumvarpið
ætti að taka í nefnd. Stjórnarand-
staðan myndi hafna hvaða breyt-
ingartillögum sem lagðar yrðu
fram því það væri hagur þeirra að
ósátt væri um málið.
sda@frettabladid.is
sjá nánar á síðu 2
Útiloka ekki breyt-
ingar á frumvarpi
Innan ríkisstjórnarinnar er það ekki útilokað að fjölmiðlafrumvarpið muni taka breytingum í
meðferð allsherjarnefndar. Fjármálaráðherra boðaði það í ræðu á Alþingi. Stjórnarþingmenn
telja að stjórnarandstaðan muni hafna hvaða breytingartillögum sem er.
FRÁ ÚTIFUNDINUM
Fjöldi manns safnaðist saman við Austurvöll en þaðan lá leiðin að Stjórnarráðinu við Lækjargötu þar sem ályktun fundarins var afhent.
Útifundur við Austurvöll:
Fjölmenn
mótmæli
ÞJÓÐARATKVÆÐI Fjöldi manns mætti
á útifund fyrir framan Alþingis-
húsið við Austurvöll í gær og mót-
mælti að fjölmiðlalögin skuli ekki
fara undir þjóðaratkvæða-
greiðslu. Það var Þjóðarhreyfing-
in sem stóð að fundinum undir
slagorðinu: „Við viljum kjósa!“
Ólafur Hannibalsson, talsmað-
ur Þjóðarhreyfingarinnar, hefur
ásamt öðrum fulltrúa hennar ver-
ið kvaddur á fund allsherjar-
nefndar Alþingis í dag. „Nefndin
virðist fyrst og fremst vera að
fara í einhverja lögfræðilega
sauma á því hvað í fjölmiðlalögun-
um geti staðist stjórnarskrá og
hvað ekki,“ segir Ólafur. „Við
erum ekki í þeirri umræðu heldur
erum við að meta málið út frá lýð-
ræðishefð á Íslandi og reynslu Ís-
lendinga af kosningum. ■
MANNSHVARF Bíll konunnar sem
saknað hefur verið síðan á sunnu-
dagsmorgun og grunað er að hafi
verið ráðinn bani, hefur verið
fyrir utan íbúð fyrrverandi sam-
býlismanns hennar í Stórholti síð-
an á sunnudag.
Talið er að þetta hafi meðal
annars komið lögreglunni á sporið
við rannsókn málsins. Á þriðju-
daginn, degi eftir að ættingjar
konunnar höfðu leitað til lögregl-
unnar, var fyrrverandi sambýlis-
maður hennar handtekinn og yfir-
heyrður. Maðurinn, sem er 45 ára,
var síðan í fyrradag úrskurðaður í
tveggja vikna gæsluvarðhald í
Héraðsdómi Reykjavíkur. Í gær-
kvöld hafði maðurinn ekki kært
úrskurðinn. Í yfirheyrslum hefur
maðurinn neitað að eiga nokkurn
þátt í hvarfi konunnar.
Rannsókn lögreglunnar á mál-
inu er mjög umfangsmikil.
Tæknideild hennar hefur verið
við vinnu í íbúðinni í Stórholti og
fyrir utan hana síðustu þrjá daga.
Þar hefur verið leitað að lífssýn-
um og annars konar sýnum sem
verða rannsökuð. Þegar hefur
fundist blóð í íbúðinni og í jeppa
sem er í eigu mannsins. Enn hefur
ekki verið lýst eftir konunni sem
bendir til þess að eitthvað sak-
næmt hafi átt sér stað. ■
Lögreglurannsókn vegna hvarfs konu í Reykjavík:
Bíllinn kom lögreglu á sporið Veldu
ódýrt
bensínVIÐ ÍBÚÐINA Í STÓRHOLTI
Blá Toyota Corolla, sem er í eigu konunnar sem saknað er, hefur verið fyrir utan íbúðina í
Stórholti síðan konan hvarf.