Fréttablaðið - 10.07.2004, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 10.07.2004, Blaðsíða 20
Ef þú eyðir miklum tíma í bílnum þínum þá er um að gera að gera hann svolítið huggulegan að innan. Keyptu þér ein- hvern góðan ilm á næstu bensínstöð og hafðu eitthvað per- sónulegt í bílnum sem setur sætan svip á hann. Verslun & Varahlutir Grjóthálsi 1 • Sími: 575-1240 • www.bl.is WOLFRACE ÁLFELGUR Vörumerki þekkt fyrir einstök gæði í öllum stærðum og gerðum sjá vöruúrval á www.wolfrace.co.uk Varahlutir sem þú getur treyst á ! sími 577 1313 • kistufell@centrum.is ✔ Pakkningarsett ✔ Ventlar ✔ Vatnsdælur ✔ Tímareimar ✔ Viftureimar ✔ Knastásar ✔ Olíudælur ✔ Legur VÉLAVERKSTÆÐIÐ TANGARHÖFÐI 13 Vélaviðgerðir Vélavarahlutir Öryggis- hurðir B Í L S K Ú R S OG IÐNAÐAR H U RÐ I R Smíðað eftir máli Hurðir til á lager Eldvarnar- hurðir ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BMW slæst í haust í slaginn á smábílamarkaðnum með 1-seríunni sinni. Ásinn á að keppa við Volkswagen Golf á markaði hérlendis en á heimsvísu er stefnt að því að 100.000 bílar seljist fyrsta árið. Eftir að hafa lagt alla áherslu á stærri og dýrari bíla um langt skeið hefur BMW hafið sókn inn á stærsta bílasölumarkaðinn, smábílamarkaðinn, með nýju týpunni sinni BMW 1. Bíllinn er hannaður frá grunni til að vera leiðtoginn á markaðnum og mark- miðið sett á að selja 100.000 bíla áður en ár er liðið frá því fyrsti bíllinn rennur af framleiðslulínunni. Ásinn er litli bróðirinn í BMW fjölskyldunni og markhópurinn sagður þeir sem vilja eignast BMW en hafa kannski ekki alveg efni á því, einkum og sér í lagi ungt og efnað fólk sem er ekki alveg á því að leg- gja út fyrir stærri bílunum. Helsti keppinauturinn í sínum stærðarflokki hér á landi verður Volkswagen Golf, með sína áralöngu hefð hér, og fróðlegt að sjá hvernig sú keppni fer. Stjórnendur BMW á heimsvísu eru nokkuð bjartsýnir og telja ásinn til þess fallinn að tryggja áframhaldandi hagnaðaraukningu fyrirtæk- isins sem hefur gengið mjög vel síðustu mánuði. Bensínbíllinn í september Fyrstu eintökin af ásnum verða afhent eigendum í Evrópu 18. september og kemur bíllinn hingað um svipað leyti. Fyrst um sinn verður aðeins boðið upp á bílinn með bensínvél en búast má við dísilnum á næsta ári, sem nokkurs konar annarri bylgju ássins um það leyti sem breytingarnar á eldsneytissköttum ganga í garð. Dísilútgáfa ássins hefur fengið mikið lof erlendra bílablaðamanna en það á eftir að koma í ljós hvort hann verði fyrsti smábíllinn hérlendis til að seljast með dísilvél. Verðið á ásnum hefur ekki verið ákveðið en mun líklega byrja í kringum 2,5 milljónir króna og hækka eftir því sem menn velja meiri búnað og stærri vél. Miðað við að stjórnendur BMW segja hverfandi líkur á því að tveir alveg eins bílar renni af framleiðslulínunum sama árið fara væntanlega afar fáir bílanna á grunnverðinu. Það sem skaparar nýja bíls- ins virðast hvað stoltastir af, í það minnsta vörðu þeir drjúg- um tíma í að kynna það, er lyklakerfið. Nú geta allt að fjórir einstaklingar fengið lyk- il að bílnum sem þarf aldrei að taka upp. Þegar viðkomandi nálgast bílinn fer hann úr lás og það sem meira er, bíllinn stillir útvarp, sæti, spegla og hitastig til sam- ræmis við það sem var síðast þegar viðkomandi sat í bílnum. Eina sem bílstjórinn þarf að gera er að ýta á start takkann. Áður en fólk fer að hugsa sér gott til glóðarinnar er rétt að minna á að þetta er ein af ótal aukagræjum sem viðskiptavinir geta valið um, og greitt aukalega fyrir. Svínliggur Blaðamaður reynslukeyrði 120i útgáfu bílsins, öfl- ugri bensínbílinn, á hraðbrautum og sveitavegum Þýskalands sem og í borgarumferð. Alls staðar reyndist hann vel. Hann svínliggur í beygjum þó hraðinn sé drjúgur og það var aldrei annað að finna en að ökumaður hefði alltaf góða stjórn á bílnum. Þó er rétt að taka fram að ekið var við kjöraðstæður og því fékk blaðamaður enga reynslu af að keyra honum í bleytu. Fyrstu viðbrigðin við að keyra bílinn voru að starta honum. Í stað lykils stingur ökumaður kubbi í samband og ýtir á takka sem sér um að ræsa bílinn eins og best verður á kosið. Eina sem ökumaðurinn þarf að sjá um er fótavinnan, að stíga á réttu fót- stigin. Ásinn er afar rúmgóður, hátt til lofts, mikið pláss fyrir fæturna og almennt þægilegt að sitja í honum, hvort sem er í bílstjóra- eða farþegasæti. Markið við hönnun ássins hefur verið sett hátt og ekki annað að sjá en að það virðist ætla að ganga vel eftir. Mikið er lagt upp úr öryggismálum. Bíllinn er hlaðinn líknarbelgjum, hvort tveggja fyrir framsæt- in og meðfram hliðum hans. Spólvörn bílsins vinnur með bílstjóranum, dreifir álagi og ákveður inngjöf- ina. Hjólbarðarnir eru valdir með það fyrir augum að þeir hvellspringi ekki og að bílstjórinn haldi stjórn á bílnum þrátt fyrir að dekk springi á miklum hraða. Fyrir utan það að hægt er að keyra 150 kílómetra á sprungnum hjólbarða. Kynning á bílnum og reynsluakstur fóru fram í Munchen í Þýskalandi. Ferðir blaðamanns þangað voru í boði B&L, umboðsað- ila BMW á Íslandi. Gisting og uppihald í Munchen var í boði BMW. brynjolfur@frettabladid.is Skottið er 330 lítrar, en farang- ursrýmið getur orðið allt að 1.150 lítrar ef aftursætin eru felld niður. BMW 1 Helstu upplýsingar Bensínbílar Dísilbílar Tegund 116i 120i 120i+ 118d 120d 120d+ Eyðsla* 7,5 7,4 7,9 5,6 5,7 6,6 Hestöfl 115 150 150 122 163 163 Hámarkshraði 200 217 213 201 220 217 Hröðun 10,8 8,7 9,2 10,0 7,9 8,2 +sjálfskiptur *í blönduðum akstri Ásinn kemur ekki með dísilvél fyrr en á næsta ári. Litli bróðir í BMW fjölskyldunni. BMW1 á að marka sér stað sem eini premíubíllinn í sínum stærðarflokki. Hann viðheldur aksturseiginleikum sem BMW er þekkt fyrir BMW slæst í slaginn á smábílamarkaðnum í haust þegar 1-serían verður sett á markað. Hér keppir nýi bíllinn helst við VW Golf: Litli bróðir hitar upp Afturhjóladrifinn. Ásinn er, eins og BMW er siður, með afturhjóladrifi og því eini afturhjóladrifni smábíllinn. Innan við. Ásinn er rúmgóður og þægilegur. Hátt til lofts og mikið fótapláss.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.