Fréttablaðið - 10.07.2004, Blaðsíða 38
26 10. júlí 2004 LAUGARDAGUR
Frank Arnesen hefur mikið aðdráttarafl:
Ronaldo sýnir
Tottenham áhuga
KNATTSPYRNA Sóknarmaðurinn
magnaði frá Brasilíu, Ronaldo,
segist eiga mikið að þakka danan-
um Frank Arnesen, sem nýlega
var ráðinn yfirmaður knattspyrnu-
mála hjá liði Tottenham í ensku úr-
valsdeildinni. Arnesen var maður-
inn sem uppgötvaði Ronaldo á sín-
um tíma og fékk hann til liðs við
PSV Eindhoven, þar sem hann
starfaði í mörg ár áður en hann
hélt til Tottenham. Ronaldo gekk
svo langt að segjast meira en
reiðubúinn að endurnýja kynni sín
við Arnesen hjá Tottenham.
“Ég hef alltaf sagt að mig langi
að spila í Englandi. Og þegar ég
heyrði af för Arnesen þangað fékk
það mig til að leiða hugann að
Englandi og það yrði kjörið fyrir
mig að vinna með honum á ný.
Hann er sá sem gaf mér fyrst
tækifæri og hefur verið mér sem
faðir allar götur síðan,“ segir
Ronaldo og bætir við að honum
þyki óskiljanlegt af hverju
Arnesen hafi ílengst hjá PSV allan
þennan tíma og ekki verið fenginn
af einhverjum af stórliðum
Evrópu.
“Hann mun klárlega koma til
Tottenham með nýjan andblæ og
ferska strauma. Stærri lið munu
sjá eftir því að hafa ekki nælt sér í
hann þegar þau sjá hvað hann mun
gera fyrir Lundúnaliðið,“ segir
Ronaldo og hefur greinilega fulla
trú á sínum manni. ■
Sumarið að veði fyrir KR og ÍA
Tveir hörkuleikir eru á dagskrá í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í dag. Fylkismenn heim-
sækja Frostaskjólið og mæta KR í slag sem Íslandsmeistararnir hreinlega verða að sigra. Skaga-
menn fara til Eyja þar sem þeir mæta heimamönnum í leik sem mun ráða miklu um framhaldið.
FÓTBOLTI Það er að duga eða drepast
fyrir leikmenn KR í leiknum gegn
Fylki og verður leikurinn hreinlega
að vinnast ætli liðið sér að eiga ein-
hverja teljandi möguleika á að halda
Íslandsmeistaratitlinum í Vestur-
bænum. KR er sem stendur í 5. sæti
deildarinnar með 12 stig eftir níu
leiki. Heldur rýr uppskera það, en þó
ber að hafa í huga að undir stjórn
Willums Þór Þórssonar hefur lið KR
ávallt náð sér á flug í seinni níu um-
ferðum Íslandsmótsins. Á þeim
tveim tímabilum sem Willum hefur
verið við stjórnvölinn hefur KR ekki
tapað leik í júlí og ágúst og hlotið
samtals 37 stig af 45 mögulegum.
Vissulega frábær árangur það og
óumdeilanlega hefur þessi góði ár-
angur seinni hluta tímabilsins átt
mestan þátt í því að Íslandsmeistara-
titillinn hefur endað í Frostaskjólinu.
Hinsvegar er ljóst að Árbæjar-
piltar mæta ekki til leiks í Vesturbæ-
inn með neina greiðastarfsemi í
huga. Eftir magnaða byrjun á mótinu
hefur liðið verið að gefa örlítið eftir
og spilaði liðið til að mynda herfilega
fyrstu 75. mínúturnar gegn ÍA á mið-
vikudag. Þátttakan í Evrópukeppn-
inni hefur augljóslega tekið sinn toll,
lykilmenn hafa átt við meiðsli að
stríða og mun Þorlákur Árnason,
þjálfari liðsins, verða nokkuð langt
frá því að geta stillt upp sínu
sterkasta liði.
Það má segja að það sama sé uppi
á teningnum hjá Skagamönnum rétt
eins og hjá KR-ingum. Þeir þurfa
nauðsynlega á öllum þremur stigun-
um að halda til að halda sér í seiling-
arfjarlægð við toppinn. ÍA var spáð
mjög góðu gengi fyrir mót en ekki
hefur ræst úr. Óstöðugleiki hefur
einkennt liðið og í einum leik getur
það verið að spila glimrandi knatt-
spyrnu á meðan sá næsti er meðal-
mennskan uppmáluð. Gott dæmi eru
síðustu tveir leikir liðsins. Í tapleikn-
um gegn Víkingum í 7. umferð gat
liðið svo gott sem ekki neitt, en í
þeirri næstu - gegn Fylki á miðviku-
dag - spilaði liðið frábærlega í 75.
mínútur og gjörsamlega yfirspilaði
toppliðið. Kæruleysi síðasta stundar-
fjórðunginn varð síðan til þess að
liðið hleypti inn tveimur mörkum og
missti unninn leik niður í jafntefli.
Ólafur Þórðarson, þjálfari liðsins,
hefur oftar en ekki ásakað leikmenn
sína eftir leiki - talað um að þeir
þyrftu að líta í eigin barm og sakað
þá um metnaðarleysi. Hinsvegar
verður að setja spurningarmerki við
nokkrar af ákvörðunum Ólafs í sum-
ar, til að mynda þeirri að skipta út
Grétari Steinssyni fyrir Kára Stein
Reynisson í leiknum gegn Fylki.
Grétar hafði átt stórleik og verið sí-
vinnandi á miðjunni, en um leið og
hann fór út af datt botninn úr leik ÍA
og liðið fékk á sig tvö mörk. Hvort
fjarvera Grétars hafi verið helsti
valdurinn að þessum hrakförum ÍA
gegn Fylki er ómögulegt að svara, en
það er deginum ljósara að hans var
sárt saknað á lokamínútunum.
ÍBV hefur komið þónokkuð á
óvart í sumar með fínum leik, og er
Hásteinsvöllur einn erfiðasti útivöll-
ur landsins. Skagamenn hafa ekki
riðið feitum hesti frá heimsóknum
sínum þangað undanfarin ár og hafa
ekki unnið þar leik síðan 1995. Eyja-
menn eru sem stendur í 4. sæti með
12 stig en hafa leikið einum leik
færra en flest önnur lið. Gera má ráð
fyrir að bæði lið komi inn í leikinn
með sóknarhug og því má búast við
góðri skemmtun í Eyjum. ■
Helder Postiga:
Farinn
til Porto
FÓTBOLTI Meistaradeildarmeist-
arar Porto fengu góðan liðs-
styrk í gær er portúgalski
framherjinn Helder Postiga
gekk í raðir þeirra frá Totten-
ham. Postiga kostaði Porto
fimm milljónir punda en hann
lék með félaginu áður en hann
fór til Tottenham þar sem hann
dvaldi aðeins í eitt ár. Tækifær-
in hjá Tottenham reyndust af
skornum skammti. Tottenham
fékk um leið miðjumanninn
Pedro Mendes frá Porto.
„Við vitum vel hvað Helder
getur en hann vildi gjarna fara
heim aftur. Þótt við hefðum vil-
jað halda honum þá vildum við
ekki hafa hann óánægðan hjá
okkur,“ sagði Frank Arnesen,
yfirmaður knattspyrnumála hjá
Tottenham. ■
HLAUPIÐ MEÐ FARARSKJÓTANN
Svínn Marcus Ljungqvist sést hér bera
reiðhjól sitt yfir akur nokkurn í bænum
Logron í Frakklandi. 6. áfangi Tour de
France hjólreiðakeppninnar fór fram í gær
og reyndist akurinn mörgum hjólreiða-
mönnunum erfiður ljár í þúfu.
HJÓLREIÐAR
2. umferð Íslandsmótsins í Motocross
fer fram á stórglæsilegri braut á Álfsnesi
Keppnin hefst klukkan 14.00
Unglingaflokkar keppa klukkan 10.00
Miðaverð aðeins 500 kr. // Frítt fyrir 12 ára og yngri
Aðkoma að svæðinu: Keyrt er í gegnum Mosfellsbæ þangað til þú sérð merkingar um vinstri beygju af þjóðveginum
ATH!!!
LEIKIR
14.00 Stjarnan og Fjölnir mætast á
Stjörnuvelli í átta liða úrslitum
VISA-bikars kvenna í fótbolta.
14.00 ÍBV og ÍA mætast á
Hásteinsvelli í Landsbankadeild
karla í fótbolta.
17.00 KR og Fylkir mætast á KR-velli
í Landsbankadeild karla í fótbolta.
SJÓNVARP
12.50 Formúla 1 á RÚV. Bein
útsending frá tímatöku á
Silverstone-brautinni í Englandi.
13.10 Fákar á Sýn.
13.40 Trans World Sport á Sýn.
14.35 Motorworld á Sýn.
15.05 Suður Ameríku-bikarinn á Sýn.
16.00 Vestfjarðavíkingurinn 2003 á
RÚV.
16.45 Landsbankadeildin á Sýn.
Bein útsending frá leik KR og
Fylkis í Landsbankadeild karla í
fótbolta.
17.00 Landsmót UMFÍ á RÚV.
17.40 Landsmót UMFÍ á RÚV.
19.00 Inside the US PGA Tour á Sýn.
19.25 Sterkasti maður heims á Sýn.
19.55 Beyond the Glory á Sýn.
22.20 Suður Ameríku-bikarinn á
Sýn. Bein útsending frá leik
Úrúgvæ og Ekvador í Suður
Ameríku-bikarnum í fótbolta.
00.35 Suður Ameríku-bikarinn á
Sýn. Bein útsending frá leik
Argentínu og Mexíkó í Suður
Ameríku-bikarnum í fótbolta.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
7 8 9 10 11 12 13
Laugardagur
JÚLÍ
ÓLYMPÍUKYNDILLINN TENDRAÐUR
Ronaldo var á ferð á dögunum í Rio de Janero þar sem hann hljóp með ólympíueldinn.
Skyldi hans næsta stopp verða hjá Tottenham?
NÁ ÞEIR STÖÐUGLEIKA Í SINN LEIK?
Gunnlaugur Jónsson fagnar marki fyrr í sumar ásamt Haraldi Ingólfssyni og Grétari Steinssyni.