Fréttablaðið - 11.07.2004, Síða 1
Félagsráðgjafi segir
hjónabönd rústir ein-
ar vegna makaskipta.▲
SÍÐUR 18 & 19
Makaskipti
rústa
hjóna-
böndum
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
SUNNUDAGUR
FH - KA Í KVÖLD FH-ingar fá til sín í
Kaplakrikann norðanmenn úr KA í Lands-
bankadeildinni kl. 19.15 í kvöld. FH getur
með sigri komist upp að hlið Fylkis í
efsta sæti deildarinnar.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
11. júlí 2004 – 187. tölublað – 4. árgangur
Forseti spænska stórveldisins Real Madrid verður kosinn í dag.
BJART MEÐ KÖFLUM Í BORGINNI
Og reyndar víða á landinu, síst þó með
norðurströndinni en þar verður dálítil
úrkomuhætta. Hiti 12–20 stig. Sjá síðu 6.
ALNÆMISFARALDURINN HEFTIR
FRAMÞRÓUN RÍKJA Í dag verður birt
ný ítarleg skýrsla Alþjóðavinnumálastofnunar-
innar um framtíðarhorfur á vinnumarkaðin-
um með tilliti til þeirra sem smitaðir eru af al-
næmi. Útlitið er allt annað en gott. Sjá síðu 2
SPROTAFYRIRTÆKI LÍÐA FJÁR-
MAGNSSKORT Á sama tíma og fjárfest-
ar hérlendis eru farnir að horfa út fyrir
landsteinana berjast íslensk sprotafyrirtæki
í bökkum og leggja upp laupana hvert á
fætur öðru. Sjá síðu 6
ÚRBÓTA VANT Á ÖLLUM SVIÐUM
Framkvæmd viðbótarlána er almennt
sögð hafa gengið vel frá því að lög um
þau tóku gildi fyrir fimm árum en þó er
komið með tillögur til úrbóta á öllum
þáttum lánanna í áliti nefndar sem skipuð
var. Sjá síðu 6
SÍÐUR 16
▲
Stefán Baldursson lætur af
störfum sem þjóðleikhús-
stjóri um áramót með góðri
samvisku.
SÍÐA 14
Hver stýrir stjörnunum?
▲
Segir skilið
við Þjóð-
leikhúsið
SKOÐANAKÖNNUN Framsóknar-
flokkurinn er minnstur íslenskra
stjórnmálaflokka samkvæmt
nýrri skoðanakönnun Fréttablaðs-
ins en 7,5 prósent þeirra sem af-
stöðu tóku í könnunni styðja
flokkinn. Vinstri grænir bæta
mest við sig frá síðustu könnun og
mælast nú með 20,5 prósent fylgi
en Sjálfstæðisflokkurinn dalar frá
síðustu könnun. Samfylkingin er
með svipað fylgi og Frjálslyndir
bæta aðeins við sig.
Stuðningur við ríkisstjórnina
er aftur á niðurleið samkvæmt
könnuninni en 34,5 prósent þeirra
sem afstöðu tóku segjast styðja
stjórnina en 65,5 prósent eru
henni andvígir. Þriðji hver stuðn-
ingsmaður ríkisstjórnarinnar hef-
ur snúið við henni baki frá því í
október síðastliðnum samkvæmt
könnunum Fréttablaðsins en þá
voru 52,8 prósent fylgjandi ríkis-
stjórninni.
Ef niðurstöður könnunarinnar
eru heimfærðar upp á þingmanna-
fjölda flokkanna myndu fram-
sóknarmenn fá fjóra menn kjörna
á Alþingi ef niðurstöður þing-
kosninga yrðu með sama hætti, en
flokkurinn á tólf menn á þingi
núna. Vinstri grænir fengju hins
vegar 13 menn kjörna í stað fimm
núna. Yrðu úrslit þingkosninga
með sama hætti og niðurstöður
könnunarinnar yrði ekki mynduð
ríkisstjórn með þingmeirihluta án
þátttöku annaðhvort Samfylking-
arinnar eða Vinstri grænna.
Samanlagt fylgi stjórnarflokk-
anna í könnuninni er 39,8 prósent
og hafa þeir samkvæmt því misst
stuðning tæplega fjórða hvers
kjósanda frá því í síðustu kosning-
um. Samkvæmt könnuninni hafa
tæplega 60 prósent kjósenda
Framsóknarflokksins snúið við
honum baki frá því í síðustu kosn-
ingum.
Sjá síðu 4.
MIKILL LÉTTIR Þeim var augsýnilega mjög létt Fylkismönnum þegar þeir jöfnuðu metin rétt fyrir leikhlé í stórleik Reykjavíkurrisanna í gær-
kvöldi. Eftir að KR-ingar komust yfir snemma leiks jafnaði Sævar Þór Gíslason fyrir Fylki og urðu úrslitin 1-1 jafntefli. Sjá síðu 23.
Sjö ára herferð gegn
ríkisbákninu lokið:
Dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi
BRETLAND Breskur vísindamaður
sem hélt uppi skipulegu eftirliti og
árásum á hóp opinberra starfs-
manna hefur verið dæmdur til lífs-
tíðarfangelsis. Kom í ljós við yfir-
heyrslur að vísindamaðurinn, Rich-
ard Jan, átti í persónulegu stríði við
ríkisbáknið og tók það út á tugum
manna sem störfuðu hér og þar
innan ríkisgeirans breska. Gekk
málið svo langt að Jan skýrði her-
ferð sína „Þriðju heimsstyrjöldina“
og vann hann í sjö ár að því að gera
opinbera starfsmenn brottræka úr
störfum sínum eða með öðrum
hætti koma óorði á alla ríkis-
starfsmenn sem hann fann. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
. Ó
L.
Tony Blair:
Íhugaði
afsögn
BRETLAND, AP Félagar og vinir
þurftu að beita Tony Blair, forsæt-
isráðherra Bretlands, fortölum til
að koma í veg fyrir að hann segði
af sér emb-
ætti sínu í síð-
asta mánuði.
Frá þessi var
skýrt á BBC í
gær og er Bla-
ir samkvæmt
h e i m i l d u m
þeirra enn að
íhuga afsögn.
Er talið líkleg-
ast að það
tengist slæmu
gegni Verka-
lýðsflokksins í
kosningum í
júní en í þeim
missti flokk-
urinn mikið fylgi. Ennfremur
hafa verið háværar sögusagnir
um að samstarf Blairs og annarra
lykilmanna innan flokksins sé
með lakasta móti um þessar
mundir og nokkrir gert að því
skóna að breytingar innan flokks-
ins séu í vændum. ■
FÉKK SIG
FULLSADDAN
Komið hefur í ljós að
Tony Blair íhugaði
alvarlega afsögn úr
starfi sínu sem forsæt-
isráðherra Bretlands.
Framsókn með
minnsta fylgið
Framsóknarflokkurinn er minnsti stjórnmálaflokkurinn á Íslandi
samkvæmt könnun Fréttablaðsins. Stuðningur við ríkisstjórnina aftur á
niðurleið. Vinstri grænir bæta verulega við sig.