Fréttablaðið - 16.07.2004, Blaðsíða 23
3FÖSTUDAGUR 16. júlí 2004
BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700
Þingholt
Veislusalur fyrir öll
tilefni
Spennandi matseðlar og
veitingar
Skoðið verðið á
www.holt.is
• • •
• • •
• • •
ÍS
LENSK
V
ÍN G E R
Ð
já
takk
Búðu til þitt eigið vín!
www.aman.is
- einfalt, ódýrt og spennandi -
Skeifan 11d
Sími 533-1020
Bæjarlind 6
Sími 553-1080
H
A
D
A
Y
A
d
e
s
ig
n
Grillmatur:
Grillaðir ávextir eru lostæti
Rioja er aðalvínhéraðið á Spáni og vínin frá fram-
leiðandanum Lagunilla í Rioja hafa verið mjög vin-
sæl hérlendis. Lagunilla Tempranillo er djúpfjólurautt
að lit með ríkulegan angan af ávöxtum, rósapipar og
fjólum, eikarkeimur í bakgrunn. Milt og mjúkt bragð
með kryddtónum. Berjaríkt með léttum pipartónum í
eftirbragði. Passar ákaflega vel með pitsum með
kjötáleggi.
Fæst í Heiðrúnu og Kringlunni og kostar 1.050 kr.
Lagunilla Tempranillo:
Berjaríkt og milt
Vín með pitsunni
Sauvignon blanc þrúgan er létt og fersk og eru vín
úr henni skemmtilegur sumarfélagi. Bon Courage frá
Suður-Afríku er ferskt og opið vín með angan af
greipaldinum, perum, sítrus og grænum eplum. Létt-
ur sætur undirtónn með ríkulegum ávexti og góðu
jafnvægi í sýru með löngu viðvarandi eftirbragði. Vín
sem hentar vel með kjúklingasalati, skelfisk og reykt-
um laxi en er einnig frábært með sjávarréttarpitsum.
Verð í Vínbúðum 1.090 kr.
Bon Courage:
Létt með sjávarréttunum
Vín með pitsunni
Áhugi á bjór og léttum vínum hefur far-
ið mjög vaxandi hérlendis og ótrúlega
margir klúbbar áhugamanna eru starf-
andi. Einn virtasti bjórklúbbur landsins
er Bjórvinafélag Veðurstofu Íslands. Bjór-
vinafélagið tók allan innfluttan bjór í
smökkun og var niðurstaða félags-
manna að þýski bjórinn DAB væri besti
innflutti bjórinn á Íslandi.
Innlendir bjórvinir eru ekki einir um að hríf-
ast af DAB því árið 2001 var DAB valin
næstbesti bjór í heimi í „pilsner“ flokki. Að
keppninni stóðu flestir bjórframleiðendur
heims og báru þeir saman og dæmdu allar
helstu fáanlegar bjórtegundir.
DAB er upprunalegur og hreinn Dort-
munder bjór. Í Dortmund er sterk og löng
hefð í bruggaðferðum og hreinleikinn
ævinlega verið aðalsmerki bjórs þaðan.
Bæjarbúar segja gjarnan stoltir að DAB
sé ekki bara framleiddur samkvæmt
hefð, DAB-bjórinn sé hefð. DAB er el-
egant og fágaður bjór, ljósgylltur að lit,
örlítil sæta í humlunum og frekar langt
eftirbragð með góðri fyllingu sem gerir
það að verkum að hann á afar vel við
mat. Bjór ræður misvel við mat en DAB
er einn af fáum sem ræður við flest-
allan mat. ■
Girnilegir grillaðir ávextir.
Bjórsmökkun:
Bjórvinir velja DAB besta innflutta bjórinn
Nýjung frá Frón:
Brakandi
sesamkex
Sesamkex er ný íslensk kextegund frá
verksmiðjunni Frón. Stökkt og brak-
andi. Það er einkum ætlað sem
smurkex, enda fer það vel með osti og
smjöri en svo er það líka gómsætt eitt
og og sér eins og það kemur fyrir úr
pakkanum.
Það er í sömu línu og hafrakexið sem
Frón hefur nýlega markaðssett í nýjum
umbúðum. ■
Á sumrin grilla flestir kjöt, fisk og græn-
meti en það eru ekki margir sem grilla
ávexti. Sæmundur Kristjánsson, mat-
reiðslumaður á veitingastaðnum Á
næstu grösum, er laginn við það. „Grill-
aðir ávextir eru lostæti og mér finnst til-
valið að setja þá á grillið og nota hug-
myndaflugið í því sambandi. Sem dæmi
um ávexti sem góðir eru á grillið eru
melónur, fíkjur, apríkósur, ananas, appel-
sínur, sítrónur og greipávextir. Þá er alveg
þrælgott að smyrja ávextina með
hunangi því það gefur þeim viðbótar-
sætu og er það gert þegar búið er að
grilla ávextina. Þá er safi kreistur úr
mandarínu eða appelsínu út í fljótandi
hunangið, það blandað saman og hellt
yfir ávextina,“ segir hann. ■