Fréttablaðið - 17.07.2004, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
LAUGARDAGUR
HAUKAR Í GARÐABÆINN Stjarn-
an tekur á móti Haukum í 1. deild karla í
fótbolta klukkan 14. Toppslagur verður í
2. deild karla. Klukkan 16 mætast KS og
Leiknir R. á Siglufjarðarvelli.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
HÆGLÆTIS VEÐUR ÁFRAM Hæg
norðlæg átt og yfirleitt bjart sunnan- og
vestanlands. Dálítil úrkoma á Austur-
landi. Sjá síðu 6.
17. júlí 2004 – 193. tölublað – 4. árgangur
ÓSÁTTUR VIÐ VEIÐIGJALD Sex pró-
senta veiðigjald verður tekið af sjávarút-
vegsfyrirtækjum. Formaður LÍÚ segir að
það muni reynast skuldsettum fyrirtækjum
þungur baggi. Sjá síðu 2
ÁLIT MINNIHLUTANS TILBÚIÐ
Stjórnarandstaðan er á einu máli um að
fjölmiðlalögin fari í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Fundur í allsherjarnefnd á mánudaginn.
Álit minnihlutans er tilbúið. Sjá síðu 4
ÚTLIT FYRIR EIGNARNÁM Útlit er
fyrir að Landsvirkjun þurfi að kalla eftir að
land verði tekið eignarnámi á allt að fimm
jörðum vegna línustæðis fyrir háspennulín-
ur úr Fljótsdal yfir í Reyðarfjörð. Sjá síðu 8
HÆGT AÐ SPARA MILLJARÐA
Spara má milljarða króna árlega með
skilvirkri stjórn opinberra stofnana. Slík
er reynsla Breta sem gefur vísbendingar
um að ná megi fram miklum sparnaði
hér. Sjá síðu 10
Kvikmyndir 30
Tónlist 33
Leikhús 33
Myndlist 33
Íþróttir 26
Sjónvarp 32
Er alltaf að hugsa um næstu
mynd og horfir því á lífið í
gegnum linsuna.
Þórarinn Eldjárn:
SÍÐA 24
▲
Jagúar:
● hita upp fyrir james brown
Ótrúlegur
heiður
SÍÐA 34
▲
● bílar
Jeppalaus og
hálfónýtur
Sigvaldi Kaldalóns:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Ari Magnússon:
SÍÐUR 22 & 23
▲
Nauðsynlegt að eiga ljóð fyrir börn
og þá er ekki verra að þau innihaldi
óðar flugur og halastjörnur.
M
YN
D
/A
P
KJARAMÁL „Það lítur út fyrir að skrif-
stofurnar hér breytist í málflutn-
ingsstofu á næstu dögum,“ segir
Kristján Gunnarsson, formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla-
víkur og nágrennis. Til hans koma
daglega félagsmenn sem starfa fyrir
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli og
kvarta undan kjarasamningsbrotum
og hefur félagið sent utanríkisráð-
herra einar 14 stefnur undanfarnar
vikur vegna málsins.
Kristján segir að verið sé að und-
irbúa tugi lögsókna vegna málsins
enda sýni varnarliðið engan sam-
starfsvilja. Fullyrðir hann að
félagsmenn séu komnir í
stríðstellingar.
„Það eru nú liðin tvö ár síðan
varnarliðið ákvað að fara ekki eftir
kjarasamningum sem í þessu landi
gilda. Starfsfólk er mjög eðlilega
orðið reitt og fúlt þar sem það nýtur
ekki sömu kjara og allir aðrir lands-
menn og verða af þúsundum króna í
hverjum mánuði.“
Kristján segir að engir séu und-
anskildir hvað þetta varðar. Allir
hópar sem á Keflavíkurflugvelli
starfi hafi orðið af sjálfsögðum
kjarabótum. „Það liggur við að við
sendum utanríkisráðherra stefnur í
hverri viku enda er ekki hægt að
eiga viðræður beint við varnarliðið.
Slíkt þarf að fara gegnum utanríkis-
ráðuneytið og svokallaða kaup-
skrárnefnd sem starfar í umboði
ráðuneytisins. Ég sé fram á mála-
rekstur fyrir allt að 150 félagsmenn
á næstu dögum og vikum.“
Utanríkisráðuneytið og lögfræð-
ingar þess hafa viðurkennt að varn-
arliðinu beri að virða íslenska kjara-
samninga að fullu og tekið undir
kröfur verkalýðsfélagsins en að
hnífurinn standi á varnarliðinu. For-
svarsmenn þess segja hendur sínar
bundnar í málinu enda verði allar
aukafjárveitingar að fara í gegnum
bandaríska þingið og hljóta sam-
þykki þar.
albert@frettabladid.is
TUGIR SKÓLABARNA LÁTAST Í BRUNA Eldur kom upp í skóla í Kumbakonam á Indlandi í gær. Að minnst kosti 84 börn létu lífið og
meira en hundrað eru alvarlega slösuð. Skólastjórinn hefur verið handtekinn vegna málsins. Hann er grunaður um vanrækslu í starfi.
Sjá nánar síðu 11.
Torfærukeppni milli Íslands og Noregs blásin af:
Bílarnir fastir í tolli
TOLLAMÁL Sex norskir torfærujepp-
ar sitja fastir í tolli í Reykjavík og
því verður ekkert af fyrirhugaðri
jeppakeppni milli Íslendinga og
Norðmanna sem fram átti að fara í
dag. Eru forsvarsmenn keppninnar
ævareiðir þar sem mikið hefur ver-
ið haft fyrir að koma slíkri keppni á
og reyndist yfirvöldum ómögulegt
að veita undanþágur þrátt fyrir að
fyrirhugað væri að bílarnir færu
aftur til Noregs á mánudaginn.
„Við reiknuðum út að gjöld og
tryggingar vegna þessara bíla yrðu
um sjö til átta milljónir króna og
fengum jákvætt svar frá okkar
banka,“ segir Garðar Gunnarsson,
einn aðstandenda keppninnar. „Síð-
an kemur í ljós að tollstjóri vill 25
milljónir króna og við höfðum ekki
aðgang að slíku fjármagni. Heimild
er til að veita undanþágu vegna
sérstakra aðstæðna en fjármála-
ráðunneytið vildi ekkert fyrir
okkur gera.“
Um talsverðan viðburð var að
ræða og voru auk norsku keppend-
anna hingað komnir blaðamenn frá
fjórum þjóðum sem ætluðu sér að
skrifa um atburðinn. Garðar telur
ljóst að þetta verði ekki reynt aftur
í bráð enda sé um hreina hneisu að
ræða. ■
Í stríð við varnarliðið
Íslenskir starfsmenn Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli njóta ekki sömu kjara og aðrir launþegar í landinu.
Varnarliðið sýnir engan samstarfsvilja og stefnur og lögsóknir eru fyrirhugaðar næstu daga og vikur.
Leitin að Sri Rahmawati:
Afmarkað
svæði til
rannsóknar
MANNSHVARF Lögreglan í Reykjavík
beinir sjónum sínum að svæði sem
er í um 40 til 45 kílómetra radíus frá
heimili mannsins sem grunaður er
um að hafa banað Sri Rahmawati, 33
ára konu frá Indónesíu, í leit sinni
að henni. Umfangsmikil leit hefur
farið fram, bæði í Reykjavík og í ná-
grenni borgarinnar. Lögregla hefur
meðal annars notið aðstoðar sér-
hæfðra leitarhópa hjálparsveita,
notað hunda og svo skoðað ákveðin
svæði úr lofti með þyrlu. Sjá bls. 6
Bandaríski skákmaðurinn
í haldi Japana:
Fischer
framseldur
JAPAN Stjórnvöld í Japan hafa hand-
tekið bandaríska skákmanninn
Bobby Fischer. Fischer hefur verið
eftirlýstur af bandarískum stjórn-
völdum síðan 1992
eftir að hafa brotið
alþjóðalög með því
að ferðast til
Júgoslavía til að tefla
við Boris Spasskí.
Fischer lagði Spasskí
en hvarf í kjölfarið
eftir að bandarísk
stjórnvöld höfðu lýst
því yfir að þau
ætluðu að lögsækja
hann. Japan deilir
framsalssáttmála með Banda-
ríkjunum sem skuldbindur Japan til
að handtaka alla þá sem koma inn í
landið sem eftirlýstir eru af banda-
rískum stjórnvöldum. Fischer sem
er 61 árs segist ætla að áfrýja fram-
salsskipuninni. ■
BOBBY
FISCHER
Verður fram-
seldur til
Bandaríkjanna