Fréttablaðið - 17.07.2004, Blaðsíða 30
Sumarstemning í Nauthólsvík.
17. júlí 2004 LAUGARDAGUR12
Blágresi
Blágresi blómgast í júní og er aufúsugestur um allt land. Best líður því í friðuðu landi,
helst kjarrlendi og verður þá stórvaxnast. Áður fyrr var blágresið notað til litunar, bæði
á bláu og svörtu og aukanöfnin sortugras og litunargras eru af því dregin. Blágresið var
líka notað til lækninga. Seyði af blöðum þess var sagt eyða blöðrusteini og þykja gott
við niðurgangi.
Heimild: Ágúst H. Bjarnason: Íslensk flóra með litmyndum. Iðunn 1983.
BLÓMIÐ
Athugasemd
Í efnisþættinum Blómið, hefur því miður láðst að geta heimilda. Verður vitaskuld gerð
bragarbót á því. Meginheimildir eru Íslensk flóra með litmyndum eftir Ágúst H. Bjarnason
og Myndskreytt flóra Íslands og Norður-Evrópu eftir Marjorie Blamey og Christopher
Grey-Wilson í þýðingu Óskars Ingimarssonar og Jóns O. Edwalds. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Ég: Anna Katrín Guðbrandsdóttir.
Kyn: Kvenkyn.
Aldur: Átján ára.
Starf: Dagskrárgerðarmaður.
Hvar: Sjónvarpsstöðinni Popptíví.
Hvenær: Byrjaði í byrjun júní.
Einkenni: Óþolinmóð, skilningsrík og
mannblendin.
Ef ég væri ekki ég: Björk Guðmundsdóttir.
Kyn: Kvenkyn.
Aldur: Um fertugt.
Starf: Ég myndi vilja vera hún að syngja á
tónleikum.
Hvar: Bara einhvers staðar í heiminum.
Hvenær: Strax í dag.
Af hverju: Hún er bara snilld. Hún er frá-
bærasta söngkona og lagasmiður allra
tíma.
Ég vildi að ég væri:
Besti lagasmiður allra tíma
Anna Katrín Guðbrandsdóttir, dagskrárgerðarmaður á Popptíví.
SJÓNARHORN
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T