Fréttablaðið - 17.07.2004, Blaðsíða 41
29LAUGARDAGUR 17. júlí 2004
■ TÓNLIST
■ TÓNLIST
Enn meiri
verðlækkun!
40-70%
afsláttur
Nýju vörurnar
komnar!
!""#$% &'()*$+ ! ,-'.
"/$
0
1 21
34
0 5
06 80 "9
5
:3 0
;6
"
2
<
6
0
=
4
0
>
7 7
=
?
6
0
"
2
<
6
0
1*?@>;3*A
@19@/0000
0
B
40CCC7
6
7/60
!2
!
#5D
! #5D
! 4 #5D
#5D
'
#5D
E
4
#5D
E
'
E
'
$
'
$0
#5#4
#5#0
#5$06
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
ELÍSABET ENGLANDSDROTTNING
Heilsaði upp á sjálfan Bubba Byggi í vikunni þegar hún skoðaði sig um hjá Hit entertain-
ment í London en fyrirtækið framleiðir sjónvarpsþættina vinsælu um Bubba. Ungir þegnar
drottningarinnar fylgdust agndofa með þessum sögulega fundi.
„Harmonikuhátíð Reykjavíkur
er árleg og er haldin nú um helg-
ina,“ segir Matthías Kormáks-
son en hann heldur einleikstón-
leika í Fríkirkjunni í dag.
Tónleikarnir eru kveðjutón-
leikar Matthíasar hér á landi þar
sem hann er á leið til Bandaríkj-
anna í doktorsnám í haust. „Ég
er að flytja til New York fylkis í
Bandaríkjunum og mun stunda
nám við Cornell-háskóla. Ég býst
þó við að taka nikkuna með mér
og finna hóp hljóðfæraleikara til
að spila með þar úti.“ Í dag mun
Matthías leika rólega og klass-
íska valsa en hann segir þó
argentínska tangóa eiga hug hans
allan í augnablikinu. „Það er sú
tónlist sem ég vil helst leika í
framtíðinni. Þetta er kallað nýi
tangóinn en þetta er hálf djass-
aður tangó. Í Argentínu er mjög
vinsælt að leika þessa tegund
tónlistar á bandoneon sem er
svipað hljóðfæri og harmonika.“
Matthías segir fleiri og fleiri
leggja stund á harmonikunám
hér á landi. „Þetta er að færast í
aukana. Það var voðalega lítið af
krökkum sem spiluðu á hljóð-
færið fyrir 10 árum
um það leyti sem ég
var að byrja en nú er
stöðugur vöxtur.“
T ó n l e i k a r
Matthíasar hefjast
klukkan 15.00 í Frí-
kirkjunni en klukku-
tíma síðar mun Igor
Zavadasky taka við.
Igor var kjörinn þjóð-
arlistamaður Úkraínu
árið 2000 og kom fyr-
ir ári síðan á Harmon-
ikuhátíð Reykjavíkur
og vakti þá mikla at-
hygli fyrir túlkun
sína á verkum klass-
ísku meistaranna.
Dagskrá hátíðar-
innar lýkur svo með
harmonikudegi í Ár-
bæjarsafni á sunnu-
dag og hefst hátíðin
þar klukkan 13. ■
HARMONIKUHÁTÍÐ
MATTHÍAS KORMÁKSSON
■ heldur einleikstónleika í Fríkirkjunni í
dag í tengslum við Harmonikuhátíð
Reykjavíkur. Úkraínumaðurinn Igor
Zavadasky mun einnig halda tónleika í
kirkjunni í dag.
MATTHÍAS KORMÁKSSON
Hann kemur fram í Fríkirkjunni í dag í tilefni af Harmoniku-
hátíð Reykjavíkur.
Franz Ferdinand
til landsins
Skosku listnámsmennirnir í
Franz Ferdinand, sem sneru sér
að nýbylgju rokki og sigruðu
heiminn með fyrstu plötu sinni í
apríl á þessu ári, eru væntanleg-
ir til landsins. Tónleikafyrir-
tækið Herra Örlygur hefur stað-
fest komu drengjanna og tón-
leika þeirra í Kaplakrika þann
18. desember.
Franz Ferdinand eru
lofsungnir meðal gagnrýnenda
fyrir melódískar snilligáfur og
skemmtilega tónleikaframkomu
en þess er skemmst að minnast
á Hróarskeldu fyrr í mánuð-
inum. Þá brosti hljómsveitin frá
eyra til eyra, einfaldlega af
meðvitund um eigin ágæti, og
smituðu áheyrendendur af ið-
andi gleði.
Smellurinn Darts Of Pleasure
hefur tryggt bandinu ógleyman-
lega velgengni á mettíma og
restin af safninu samanstendur
af orkumiklum og melódískum
laglínum við hnittna og gáfulega
texta. Sveitin hefur auk plöt-
unnar Franz Ferdinand gefið út
smáskífurnar Matinee, Take me
out og Darts Of Pleasure.
Ekki er vitað hvenær miða-
sala hefst á tónleikana né verð
miða. ■
Harmonikuhátíð
í höfuðborginni