Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.08.2004, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 06.08.2004, Qupperneq 1
HAMFARIR Hættuástand skapaðist við virkjunarframkvæmdir við Kárahnjúka í gærkvöld þegar vatnsflaumur Jökulsár á Dal rauf skarð í varnargarðinn sem verndar vinnusvæði þeirra er starfa við byggingu Kárahnjúkavirkjunar. Vatn hefur runnið undir garðinn og þurfti í gær að rýma vinnusvæðið. Starfsmenn Impregilo hafa unnið hörðum höndum að því að dæla burt vatni og þétta varnargarðinn en verkið reynist erfitt. Það er ekki eina áhyggjuefni virkjunarmanna. Óvíst er hvort brú- in yfir ána hefur skemmst meira en í fyrrakvöld. Í gær fór hún á kaf í annað sinn á sólarhring þegar vatns- hæð Jökulsár náði 479 metrum. Hefur vatnsborðið aldrei mælst hærra en óttast er að enn eigi eftir að hækka í henni næstu daga. Að sögn Páls Ólafssonar, staðar- verkfræðings Landsvirkjunar við Kárahnjúka, var mikið gert til að tryggja og festa brúna í gærdag enda laskaðist hún talsvert þegar fyrst flaut yfir hana í fyrrakvöld. Einnig kvarnaðist talsvert úr vegar- stæði því sem liggur að brúnni sunnan megin. „Brúin sjálf er í raun ekki í hættu og brúarstæðin þykja trygg en áhyggjur okkar eru fyrst og fremst hvað varðar brúargólfið sjálft. Vatnsstraumurinn gæti hrif- ið það með sér og það gæti aftur haft alvarlegar afleiðingar.“ Fyrir framan varnarstífluna hefur myndast myndarlegt lón þar sem hjáveitugöng þau er eiga að veita vatninu framhjá anna ekki hlutverki sínu. Ótti manna varðar helst það sem gerist ef varnarstíflan gefur sig meira en verið hefur, slíkt myndi setja alla framkvæmdina í uppnám um óákveðinn tíma. albert@frettabladid.is MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI sími 550 5000 FÖSTUDAGUR OPNUNARHÁTÍÐ Hinsegin dagar opna með pompi og prakt í Loftkastalan- um í kvöld. Þar verður boðið upp á leikatriði og tónlistaratriði. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG ÞYKKNAR UPP FYRIR NORÐAN Rigning í borginni og á sunnanverðu landinu fram eftir degi. Fer að rigna norðan til undir kvöld. Sjá síðu 6. 6. ágúst 2004 – 211. tölublað – 4. árgangur STEFNIR Í STÓRSLYS Íslenskur leið- sögumaður segir hættu á stórslysi við Geysi í Haukadal verði ekki bætt úr merkingum. Hann varð vitni að því þegar Geysir gaus skyndilega þegar ferðafólk hafði verið að gægjast ofan í hverinn. Sjá síðu 10 VANDI FÆRÐUR MILLI HVERFA Foreldrar barna í frístundaheimili við Engja- skóla eru ósáttir við að færanleg kennslu- stofa sem hefur verið nýtt fyrir starfsemi hafi verið færð að öðrum skóla. Sumar- námskeið raskast og óvissa ríkir um dag- gæslu í vetur. Sjá síðu 2 LAKARI AFKOMA Sveitarfélögin bjuggu í heildina við lakari afkomu í fyrra en árið áður. Rekstur margra sveitarfélaga er erfiður, ekki síst vegna þess að íbúum hefur farið fækkandi. Sjá síðu 4 BETRI AFKOMA RÍKISSJÓÐS Af- koma ríkissjóðs var betri fyrstu fimm mán- uði ársins en gert var ráð fyrir. Hún var einnig betri en á sama tíma í fyrra og batn- aði greiðsluafkoman um tæpa níu milljarða milli ára. Sjá síðu 11 36%50% Kvikmyndir 30 Tónlist 32 Leikhús 32 Myndlist 32 Íþróttir 24 Sjónvarp 36 HEILBRIGÐISMÁL Í endurskoðaðri reglugerð um merkingar á mat- vælum með tilliti til hugsanlegra ofnæmisvalda verður tekið fastar á merkingu aukaefna heldur en í gildandi reglugerð, að sögn Helgu Bjarnadóttur, staðgengils forstöðu- manns matvælasviðs Umhverfis- og heilbrigðisstofu. Endurskoðun reglugerðarinnar er þegar hafin. „Í nýju reglugerðinni verða meðal annars merkingar á matvæl- um vegna hugsanlegra ofnæmis- valda teknar sérstaklega til skoð- unar,“ sagði hún, spurð vegna um- fjöllunar blaðsins um bráðaof- næmi sem neysla á jarðhnetum getur valdið. Helga sagði að í gildandi reglu- gerð um merkingar matvæla væri tekið fram, að skylt væri að nefna innihaldsefni og afurðir úr þeim sem gætu valdið ofnæmi eða óþoli. Þar væru jarðhnetur meðal annars taldar upp. „Það er alveg klárt að ef jarð- hnetur eru í vörunni þá ber að merkja það sérstaklega,“ sagði hún. „Hvað aukaefnin varðar, þá segja reglurnar að það þurfi að merkja þau séu þau í vörunni. En í dag er ekkert í reglugerð sem seg- ir til um að taka þurfi fram sé aukaefnið unnið, til dæmis, úr hnetum. Ný reglugerð verður væntanlega þrengd hvað þetta varðar.“ Sjá viðtal á bls. 4 Merkingar á matvælum til endurskoðunar: Tekið fastar á aukaefnunum nr. 31 2004 í hverri viku tíska stjörnuspá fólk heilabrot tónlist glæpir Gay Pride - gleðin yfir frelsinu + Sigtryggur Baldursson Sunna Björk Lisa Marklund SJÓ NV AR PS DA GS KR ÁI N 06 . á gú st - 1 2. ág ús t - skora mörkin Allan & Jermaine Öskubuska - saumar gamanmyndir - skora mörkin birta Allan & Jermaine: ▲Fylgir Fréttablaðinu dag ● gay pride ● liza marklund ÚTSÖLULOK ENN M EIRI AFSLÁ TTUR LOKADAGAR ● matur ● tilboð Kristín og Guðbjörg: ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS Kýldu á sælkerabúð Vatn rauf skarð í varnargarðinn Hættuástand skapaðist við Kárahnjúka í gærkvöld þegar vatnsflaumur rauf skarð í varnargarðinn. Flytja þurfti starfsmenn af vinnusvæði við virkjunina þegar ljóst varð að vatn flæddi inn á svæðið. EINS OG GAMALL PLASTPOKI Sjávarlíffræðingar hafa fundið margar nýjar tegundir fiska og sjávardýra á Mið-Atlants- hafshryggnum. Lífríki á Mið-Atlants- hafshryggnum: Fjölbreyttara en talið var RANNSÓKNIR Lífríki sjávardýra við botn Mið-Atlantshafshryggsins er mun fjölbreyttara en fræðingar hafa haldið. Þetta eru frumniður- stöður norskra vísindamanna sem kannað hafa sjávarbotninn með- fram stærsta fjallgarði á jörðinni, Mið-Atlantshafshryggnum, í tvo mánuði og kynntu niðurstöður sínar í gær. Fundu þeir talsvert magn af áður óþekktum tegund- um og var þar bæði um fiskteg- undir að ræða sem og lindýr ýmiss konar sem lifa á botninum. Enn á þó eftir að rannsaka mikið af gögnum og ekki loku fyrir það skotið að mun fleiri uppgötvanir verði gerðar. ■ M YN D /A P FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA SKRÚÐUR SIGLIR Í HEIMAHÖFN Lítið sem ekkert er eftir af úthlutuðum kvóta á þessu fiskveiðiári sem lýkur um næstu mánaðamót. Kvóti í helstu tegundum er á þrotum en enn er talsvert verslað með fiskveiðikvóta sem nota má á næsta ári og höfðu kvótasalar nóg að gera í júlímánuði. Þrátt fyrir að veiðar hafi almennt gengið vel er lágt risið á mörgum útgerðarmönnum þar sem verð fiskafurða á erlend- um mörkuðum hefur verið í lægri kantinum. Pósturinn í Sviss: Frímerki úr viði SVISS, AP Svissneska póstþjónustan býður nú í fyrsta sinn upp á frí- merki úr viði. Frímerkin eru gerð úr 120 ára barrtrjám og eru álíka þykk og greiðslukort. Burðar- gjald frímerkjanna er fimm frankar, eða um 280 krónur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Svisslendingar fara óhefð- bundnar leiðir við gerð frímerkja. Þeir hafa búið til frímerki úr blúndum og sem lykta eins og súkkulaði. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.