Fréttablaðið - 08.08.2004, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 08.08.2004, Blaðsíða 34
18 8. ágúst 2004 SUNNUDAGUR „Það mun almenn skoðun í landinu, að mikil þörf sé gagngerðrar end- urskoðunar stjórnarskrárinnar og að sú breyting ein sé ekki fullnægj- andi, að lýðveldið verði stofnað í stað konungdæmis.“ Þetta kom fram í nefndaráliti stjórnarskrárnefndar Alþingis 1944 við undirbúning laga um stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Í álitinu er skýrt tekið fram að ekki megi blanda saman framtíðar- endurskoðun stjórnarskrárinnar og breytingum þeim sem nauðsyn- lega þurfti að gera á stjórnar- skránni svo að stofna mætti lýð- veldi. „Er að sjálf- stögðu gert ráð fyr- ir, að horfið verði að frekari endur- skoðun stjórnar- skrárinnar, þegar lokið er afgreiðslu lýðveldismálsins,“ segir jafnframt í álitinu. Síðan eru liðin sextíu ár og gagnger endurskoðun stjórnarskrárinnar hefur enn ekki átt sér stað. Sex breytingar hafa orðið á stjórnarskránni frá því Ísland varð lýðveldi 1944. Kosningakerfinu var breytt 1959 þegar þingmönnum var fjölgað úr 52 í 60. Kosningaaldurinn var lækkaður 1968 úr 21 ári í 20 ár. Þingmönnum var fjölgað 1984 úr 60 í 63. Efri og neðri deild Alþingis voru sameinaðar 1991. Mannrétt- indakafli stjórnarskrárinnar aukinn og endurbættur 1995. Kjördæma- breyting var samþykkt 1999. Stjórnarskráin ekki fullkláruð Gísli Sveinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í fyrstu umræðu um lýðveldisstjórnar- skrána í neðri deild Alþingis 17. janúar 1944 að því mætti aldrei gleyma að stjórnarskráin væri ekki fullkláruð. „[Við eigum] að vinna að kappi að því að endurskoða stjórnarskrána í heild og vinna að þeim breytingum sem gera þarf. [...] Má vera að þessi stjórnarskrá mæti andúð vegna þess, að í hana vanti ýmislegt, sem menn vildu nú gjarnan, að sett yrði í stjórnskipunarlög landsins. Þetta er hættulegt og því má aldrei gleyma, að þessi stjórnarskrá sem nú verður sett, getur ekki breytt öðru en því , sem snertir flutning æðsta valdsins inn í landið.“ Jakob Möller, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, sagði í annarri umræðu neðri deildar Alþingis 26. febrúar sama ár, að s t j ó r n a r s k r á i n væri einungis hugsuð til bráða- birgða. „Þessi fyrirhug- aða stjórnarskrá, sem hér um ræðir, er hugsuð og í rauninni yfirlýst sem hrein bráða- birgðastjórnarskrá, það er að segja, jafnframt því, sem hún er samþykkt, er gert ráð fyrir að stjórnarskrá ríkisins í heild verði tekin til gagngerðrar endurskoðun- ar á næstu árum.“ Brynjólfur Bjarnason, formað- ur Sósíalistaflokksins sagði í fyrstu umræðu í efri deild Alþingis 2. mars að gagnger endurskoðun þyrfti að fara fram á stjórnar- skránni um leið og stofnun lýðveld- isins væri afstaðin. „Verkefnið sem nú er framund- an, er að skapa hið nýja þjóðfélag vor Íslendinga sem fullvalda þjóð- ar í þeim heimi, er upp mun rísa eftir stríðið, - og marka stefnuna með nýrri stjórnarskrá, þar sem öllu voru þjóðskipulagi verður stakkur sniðinn. [...] Ég held, að enginn ágreiningur sé um það, að þessi gagngera endurskoðun þarf að fara fram að það starf beri að hefja nú þegar.“ Ágreiningur um endurskoðun Brynjólfur Bjarnason gerði sér ugglaust enga grein fyrir forspár- gildi orða sinna þegar hann sagði í fyrstu umræðu um stjórnarskrá lýðveldisins í efri deild Alþingis 2. mars, að mikill ágreiningur hlyti að verða um endurskoðun stjórnar- skrárinnar: „En meðal vor Íslend- inga er djúptækur ágreiningur, hvernig beri að skipa þjóðmálum vorum, og þess vegna hlýtur líka að verða mjög mikill ágreiningur milli flokka um hina gagngeru end- urskoðun stjórnar- skrárinnar.“ Í nefndaráliti meirihluta stjórn- a r s k r á r n e f n d a r 1959 vegna breyt- inga á kosninga- kerfinu kom fram að heildarendur- skoðun stjórnarskrárinnar, sem ráðgerð var eftir stofnun lýðveldis- ins 1944, stöðvaðist fyrst og fremst vegna ósamkomulags um breyting- ar á kjördæmaskipan, en „lang- vinnar og rækilegar tilraunir höfðu verið gerðar til þess að leysa það“. Þá kemur jafnframt fram að fresta skuli öðrum breytingum á stjórnarskránni: „Úr því sem komið er, virðist og betur í samræmi við lýðræðislega stjórnarhætti, að önnur atriði stjórnarskrárinnar verði ekki tekin til endurskoðunar fyrr en réttlátari skipun Alþingis hefur verið tryggð en sú, sem nú er.“ Semja átti lýðveldisstjórnarskrá Minnihluti stjórnarskrárnefnd- arinnar 1959 var hins vegar algjör- lega mótfallinn því að ákvæði stjórnarskrárinnar um að kjör- dæmaskipan yrði breytt, „án þess að jafnframt yrði lokið endurskoð- un stjórnarskrárinnar í heild“, eins og segir í nefndarálitinu. Í álitinu segir ennfremur: „Stjórnarskrárbreyting sú, sem gerð var við stofnun lýðveldisins 1944, var bráðabirgðaráðstöfun. Þá voru þær breytingar einar gerðar á stjórnarskrá konungsríkisins Íslands, sem voru beinlínis óhjá- kvæmilegar þá þegar vegna slita sambandsins við Danmörku. Alveg samtímis var ákveðið að endur- skoða stjórnarskrána í heild – semja lýðveldsisstjórnarskrá – og voru til þess settar tvær nefndir, skipaðar 20 mönnum samtals“. Þá segir jafnframt: „Fyrsta rík- isstjórnin, sem mynduð var á Alþingi eftir stofnun lýðveldisins, lýsti því yfir 21. október 1944 sem stefnu sinni, að endurskoðuninni yrði lokið eigi síðar en síðara hluta næsta vetrar“. Af því varð þó ekki. Árið 1947 var skipuð ný sjö manna nefnd „til þess að fram- kvæma endurskoðunina eða ljúka henni“. Sú nefnd hafði ekki enn beðist lausnar 1959, ekki verið leyst frá störfum né önnur sett í stað hennar. Í nefndarálitinu 1959 greindi minnihluti stjórnarskrárnefndar- innar jafnframt frá þeiri skoðun að heppilegast væri að Alþingi fæli sérstaklega kjörnu stjórnlagaþingi að afgreiða stjórnarskrána. „Fyrir þeirri skoðun eru meðal annars færð þau rök, að ef sérstak- lega væri kosið til þings, sem ekki hefði öðrum málum að sinna en stjórnarskránni, myndu kjósendur taka afstöðu í þeirri kosningu með tilliti til stjórnarskipunarinnar einnar, – og sé það mjög frábrugðið því, sem á sér stað í alþingiskosn- ingum, því að þá verði menn að taka afstöðu til margra mála í senn við kjör þingmanna [...].“ Ber að skoða í góðu tómi Í tengslum við umræðuna um stjórnarskrárbreytinguna vegna lækkunar kosningaaldurs 1967 sagði Pétur Benediktsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, að huga þyrfti að endurskoðun á stjórnarskránni. Hann taldi þó heppilegast að gera það smátt og smátt í stað þess að fela verkefnið stjórnarskrárnefnd sem legði fram tillögur um allsherjarendurskoðun stjórnlaganna. „Heldur eigi að fara sér hægt, breyta ekki nema einu eða fáum atriðum í senn og taka þau atriði fyrir, þar sem þjóðin finnur, að skórinn krepp- ir,“ sagði hann. Nefndi hann þrjú atriði í því sambandi: samein- ingu Alþingis, breytingu á kjör- dæmaskipan og loks að leggja ætti niður forseta- embættið. „Það eru fáein vandamál í því sambandi einkum vegna ástands, sem gæti stundum skapast í stjórn- arkreppu eða við fráfall forsætis- ráðherra og svo framvegis, og það ber að skoða í góðu tómi, hvernig heppilegast væri að leysa þau vandamál. Með góðum vilja er ég þess fullviss, að hinu háa Alþingi tækist það vel, og ég skora á hæst- virta ríkisstjórn að beita sér fyrir því og í sem bestri samvinnu við alla flokka þingsins,“ sagði Pétur. Stjórnarskrárnefnd Gunnars Thoroddsen Aðeins ein þeirra fimm stjórn- arskrárnefnda sem skipaðar hafa verið frá því undirbúningur lýð- veldisstjórnarskrárinnar hófst 1942 skilaði tillög- um um endurskoð- un stjórnarskrár- innar. Var það stjórnarskrárnefnd Gunnars Thorodd- sen og starfaði hún á árunum 1978 til 1995. Við fráfall Gunnars 1983 tók Matthías Bjarna- son við formennsku í nefndinni. Einnig skilaði nefndin í desem- ber 1982 tillögum að nýrri kjör- dæmaskipan sem urðu að stjórn- skipunarlögum ári síðar. Í janúar 1983 skilaði nefndin til- lögum að heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar: „Skýrsla stjórnarskrárnefndar um endur- skoðun stjórnarskrárinnar“. Ekki náðist sátt um frumvarp um alls- herjarendurskoðun stjórnarskrár- innar svo Gunnar lagði sjálfur fram frumvarp þess eðlis. Það hlaut þó ekki nauðsynlegan hljóm- grunn, engar umræður fóru fram um það og málið hlaut ekki frekari meðferð þingsins. Miklar umræður voru um skýrsluna á Al- þingi 1984 í tengsl- um við breytingu á stjórnarskránni er þingmönnum var fjölgað um þrjá, í 63. Þingflokkar Al- þýðubandalags, Al- þýðuflokks, Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks lögðu fram frumvarpið og um leið skýrslu stjórnarskrárnefndar auk sameig- inlegrar yfirlýsingar. Í henni sagði meðal annars: „[Skýrsla stjórnarskrárnefnd- arinnar var lögð fram] í því skyni að almennar umræður fari fram um heildarendurskoðun stjórnar- skrárinnar. Ætti almenningi þá að gefast kostur á að tjá sig um þá endurskoðun þannig að afgreiðsla nýrrar stjórnarskrár geti orðið með vönduðum hætti að lokinni rækilegri umfjöllun.“ Við höfum aldrei sett okkur stjórnarskrá í raun Tómas Árnason, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði meðal annars í ræðu sinni 2. apríl 1984: „[Yfirlýsingin] gerir nánast ráð fyrir því að heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar haldi áfram og verði framkvæmd fyrr en seinna [...]“. Tómas sagði af sama tilefni: „Við verðum að gæta að því að Sex breytingar hafa orðið á stjórnarskránni frá því Ísland varð lýðveldi 1944: 1959 þingmönnum fjölgað úr 52 í 60 1968 kosningaaldurinn lækkaður úr 21 ári í 20 ár 1984 þingmönnum fjölgað úr 60 í 63 1991 Alþingi verður ein málstofa 1995 mannréttindaákvæði aukin 1999 kjördæmabreyting Stjórnarskrá til bráðabirgða í 60 ár Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknar- flokksins mun taka við forsætisráðherraem- bættinu 15. september. Það mun þá koma í hans hlut að stýra ríkisstjórninni í þvi verkefni sem stjórnmálaflokkarnir hafa sammælst um að taka fyrir á þessu kjörtímabili, endurskoðun stjórnarskrárinnar. „Breytingar á stjórnarskrá varða stjórnmálin almennt og starfssvið mikilvægustu embætta þjóðarinnar,“ segir Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins. „Þær varða lengri framtíð og á því við alla þá sem starfa að þessum málum. Það skiptir okkur miklu máli að við vitum hver mörk okkar eru, hvað við getum gert og hvað ekki. Óvissan og hin mismunandi álit um það hvað heimilt er að gera samkvæmt stjórnar- skrá er mjög óþægilegt,“ segir Halldór. Spurður hvort hin mismunandi álit lögfræðinga á ákvæðum stjórnarskrárinnar hafi vakið upp spurningar um hvort þörf sé á að setja á fót sér- stakan stjórnlagadómstól segir Halldór ekkert nema gott að fjalla um það. „Það verður þá ein stofnun til viðbótar með þeim tilkostnaði sem því fylgir. Einnig yrði verksvið slíks dómstóls afar lítið. Hæstiréttur og dómstólar landsins hafa hingað til getað leyst úr þessum vafamálum. Við stjórnmálamenn höfum ekki alltaf verið sáttir við niðurstöður dómstólanna en okkur ber að virða þær, við verðum að gera það,“ segir hann. Halldór segir að ekki sé hægt að reikna með því að aldrei geti ríkt vafi um það hvað standist stjórnarskrá. „Ákvarðanir alþingismanna eru að sjálfsögðu teknar á þeim grundvelli að við teljum þær standast stjórnarskrá. Við getum ekki afsalað okkur því að aldrei geti leikið á því vafi, ef við gerðum það yrði fullt af ákvörðunum ekki teknar. Það munu alltaf koma upp einhver vafamál, annað væri útópía,“ segir hann. Aðspurður segir Halldór að það sé ekki þörf á sérstöku stjórnlagaþingi til að fjalla um málefni stjórnarskrárinnar. „Alþingi þarf ávallt að taka fyrst á þessum málum. Allar stjórnarskrárbreytingar þurfa fyrst að vera umfjöllunarefni á Alþingi áður en þeim er skotið til þjóðarinnar í almennum þingkosningum. Stjórnarskrárbreytingar eru sjaldnast ágreiningsefni í viðkomandi alþingis- kosningum enda vilja stjórnmálamenn almennt reyna að komast hjá því að svo verði.“ ■ VAFI MUN ALLTAF RÍKJA UM HVAÐ STENST STJÓRNARSKRÁ SIGRÍÐUR D. AUÐUNSDÓTTIR BLAÐAMAÐUR FRÉTTASKÝRING UMRÆÐUR UM STJÓRNARSKRÁNA Á LÝÐVELDISTÍMANUM „Stjórnarskrá[in],sem hér um ræðir, er hugsuð og í rauninni yfirlýst sem hrein bráðabirgðastjórnarskrá,“ sagði Jakob Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi 1944. „Við höfum aldrei sett okkur stjórnarskrá í raun,“ sagði Tómas Árnason, þingmaður Framsóknarflokksins, á Alþingi 1984. Umræðan um stjórnarskrána hefur því staðið í sex áratugi. Pétur Benediktsson Gunnar Thoroddsen Matthías Bjarnason Brynjólfur Bjarnason Gísli Sveinsson Jakob Möller

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.