Tíminn - 10.09.1972, Page 2
2
Sunnudagur 10. september 1972
Sölustarf
- Búvélar
Eitt af stærstu fyrirtækjum landsins i
búvélainnflutningi, vill ráða mann til sölu-
starfa.
Umsækjandi verður að hafa hæfileika og
þekkingu til að geta leiðbeint um meðferð
og notkun véla i landbúnaði. Einnig er
æskileg nokkur staðgóð búfræðiþekking
ásamt allgóðri kunnáttu i ensku og
Norðurlandamáli.
Tilboð sendist blaðinu fyrir 14. þ.m.
merkt. 1353.Fullriþagmælskuer heitið.
Félagsstarf
ddcvbovopxn.
Starfsemin sem var i Tónabæ flytur i
Félagsheimili Fóstbræðra, Langholtsvegi
109-111.
Miðvikudaginn 13. september verður
,,Opið hús” frá kl. 1.30 til 5.30 e.h.
Félagsstarf eldri borgara Langholtsvegi
109-111.
Allar nánari upplýsingar í sima 18-800 kl. 10 til 12 f.h.
UPPB0Ð
Eftir kröfu skiptaréttar Reykjavikur
verða neðangreindar eignir þb.
Lithoprents h.f. seldar ef viðunandi boð
fæst, á opinberu uppboði, sem haldið
verður að Lindargötu 48, fimmtudag 14.
september n.k. kl. 13.30.
1. Pappirsbirgftir fyrirtækisins.
2. Skrifstofuhúsgögn, peningaskápar, skrifstofuvélar.
:t. Margskonar vélar og áhöld svo sem skurðhnifur,
lleidelberg Digulvél, Kolland offsetvél, Planeta offsetvél,
Solna offsetvél, heftivél, brotvél, hulsuborvél, rifgatari,
filmusöx, filmusetningarvél ásamt tveim setningarborb-
um, loflpressu, 9 leturkössum, 9 letursteinum og tilh.
áhöldum, stór myndavél, stækkunarvél, litgreiningavél,
hitavaskur denisitometer, kolbogaljós, lýsingarborð, 4 st.
pvottaskálar, skuröarsax, skeytingarborð :í st., Portland
spiravél með hreyfli, hjólagrind f. plötur 2 st.,
stimilkiukka.
1. Birgðir af prentplötum, ásamt framköliunarefni og
prentfilmum.
5. Mikið magn af prcntfilmum af bókum o.fl., sem selt
verður með fyrirvara um betra rétt :tja manns,
Munirnir verða til sýnis á uppboðsstað
miðvikudag 13. sept. n.k. kl. 13.30 — 17.00.
Upplýsingar um vélar og áhöld veitir Unnsteinn Beek,
borgarfógeti. Greiðsla við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
r<
ee
KKAK
KAFGEYMKí
þjónusta - sala - hleðsla - viðgerðir
I
I
I Alhliða rafgeymaviðgerðir og hleðsla
INotum eingöngu og seljum járninnihaldslaust
kemiskt hreinsaö rafgeymavatn
Næg bílastæði — Fljót og örugg þjónusta
„SÖNNAK
RÆSIR
55 BÍLINN^
Tæhniver
AFREIÐSLA
Laugavegi 168 — Simi 33-1-5
Árelíus
Níelsson:
Án krístins dóms
Margir virðast álita kristindóm
sér óviðkomandi. Þeir hafi ekkert
þangað að sækja og þurfi þar
ekkert að efla.
Enn aðrir vilja leita annarra
fullkomnari trúarbragða. Talað
er um, að sumir verði Asatrúar,
aðrir Bahai-trúar á Islandi nú á
þessu ári, svo að vitnað sé i
tvennt, sem er þó býsna óskylt og
fjarlægt, þótt hvoru tveggja geti
verið gott að einhverju leyti.
En Bahai-trúarbrögð byggja á
kærleika og frelsi, þótt ekki geti
ég fundið þar neitt, sem Kristur
ekki gæti veitt á sama hátt. Enda
gætu sömu kraftar starfað undir
misjöfnum nöfnum
Asatrúin var aftur á móti, og er
i eðli sinu, trúarbrögð hinna
blindu náttúruafla likt og Jahve
trúin upphaflega, blóðfórnir
barnfórnir og skefjalaus grimmd
getalitaðþar allar brautir, ef vel
er að gáð.
Býst ég við, að fæstir vildu
skipta á leiðsögn Asatrúar og
kirkju eða kristni nú, ef þeir
þekktu til þess, hvað þeir eru að
segja, eða hverju þeir heita fylgd
i raun og veru.
En hvað værum við þá án
kristindóms? Og i þvi sambandi
má gera sterkan greinarmun á
kirkju og kristnum dómi.
Margt á vegi kirkjunnar eru
aðeins umbúðir og kenningar,
leiðsögn misviturra manna á
ýmsum öldum.
Kristinn dómur er kjarninn,
perlan, guðsriki réttlætis, friöar
og gleði, sem Kristur kenndi um.
Allt hið bezta er frá þvi runnið.
Tökum nærtækt dæmi.
Lögfræðingur ræddi við félags-
fræðing og leiðtoga i tryggingam-
álum eitt kvöld um daginn. Þar
kom margt fram, sem fáir munu
i fljótu bragði hafa tengt við
kirkju og kristinn dóm.
En samt var naumast minnzt á
eitt einasta atriði i þessum
óskum og fyrirheitum um manns-
æmandi lif, sem er að ýmsu leyti
komið i framkvæmd hér i okkar
fámenna þjóðfélagi, að ekki ætti
það rætur sinar og brennipunkt i
kærleikskenningum og réttlætis-
tilfinningum þeim, sem kristinn
dómur hefur innrætt gegnum
aldirnar.
Samtalið varð i minum eyrum
ein fegursta og áhrifamesta
predikun, sem ég hef heyrt.
Og út um allan heim, já, austur
i rauða Kina og suður i svörtustu
Afriku er óskað og vonað eftir
sama öryggi, sömu hjálp sömu
tryggingum. Og sums staðar er
þessum óskum nú þegar fullnægt,
jafnvel þar, sem Kristur er
naumast nefndur á nafn, og
fæstir, kannski enginn gerir sér
grein fyrir þvi, að þar er andi
hans og elska nú þegar að verki.
Svona er kristinn dómur. Og
sumar þjóðir t.d. Japanir, eru
hálfkristnar i háttum og sam-
félagsbyggingu sé miöað við dag-
legt lif, þótt kirkjulegt uppeldi, sé
þar ekki, og fáir geri sér grein
fyrir, hvaðan gott kemur.
Þannig verður vandsvarað,
hvaða fólk er kristið, hvaða þjóðir
eru kristnar i raun og veru. ,,Af
ávöxtunum skulu þér þekkja þá”.
Gætu t.d. Japanir eða Indverjar
verið betur kristnir en Banda-
ríkjamenn og Rússar, svo eitt-
hvað sé nefnt til að hugsa um?
Gæti Bahai-trú verið byggð upp
af kristnum grunni, grein á
meoði guðsrikis, ein hin blóm-
legasta? Svona mætti lengi hugsa
og spyrja.
■ Eitt er vist. „Viðar er guð en i
Görðum”, eins og sagt var i
gamla daga. „Viða er á ferðum
hans vottar i heim, þótt viðjum
og sverðum sé otað mót þeim”.
Enginn skyldi fordæma. „Prófið
allt, haldið þvi, sem rétt er”,
sagði Páll postuli. An kristins
dóms væri veröldin köld og
grimm og.auk þess vonlaus og
vansæl.
Með kristnum dómi — krafti og
anda kærleikans, getur útsker
við heimskaut norður i sval-
köldum sævi orðið slunnar ey,
paradis á jörðu.
Hvað þá hin betri og blómlegri
lönd hinnardýrðleguplánetu, sem
við köllum jörð og geymir að
undur , sem við köllum lif?
Þegar ferðast er um Mið-
Evrópu og við augum blasa allar
dásemdir gróandans, visindanna,
listanna og auðsins verður manni
að hugsa:
,Hvernig getur það átt sér stað,
að fyrir nokkrum árum var hér
meiri fátækt, neyð, böl og dauði,
en nokkur orð fá lýst-
Jafnvel á norður á Islandi var
verið að tina saman fatnað til að
senda fólki á þessum frjósömu
svæðum og matarbita til að
metta hungrandi fjöldann, þar
sem nú er aftur orðið eitt rfkasta
land heims?”
Jú, svarið er auðfundið. Þeim
hafði verið falin forysta um
nokkur ár;guðlausum mönnum og
grimmum, með hefnd og hroka
að leiðarstjörnu. Nokkur árvoru
essar vitnu og dáðriku þjóðir án
ristindóms. Og afleiðingin:
Fjöldamorð, fjöldagrafir, þræla-
búðir, útrýmingarstöðvar, gas
ofnar, borgir i rústum, kvalaóp,
dauðastunur, skelfing, kúgun,
pyndingar, i einu orði sagt, helviti
á jörðu.
An kristins dóms. Gætum við
fullþakkað að hafa eignazt slika
gjöf sem hann?
Gætum hans, geymum og varð-
veitum. Verum aldrei án kristins
dóms.
FYRSTAR
1887
ogenn
ífullu
fjöri
steel power
1.5 VOLT
IEC R20
Daninn Wilhelm Hellesen
fann upp og framleiddi fyrstu
nothæfu þurrrafhlöðuna fyrir
85 árum.
í dag streyma HELLESENS
rafhlöður hingað beint frá
Kóngsins (Drottningarinnar)
Kaupmannahöfn, hlaðnar
orku.
Hringið eða komið og tryggið
yður þessa afbragðsvöru.
Við önnumst bæði heildsölu-
og smásöludreifingu.
RAFTÆKJADEILD HAFNARSTRÆTI 23 • REYKJAViK • SiMI 18395 • SlMNEFNI ICETRACTORS