Tíminn - 10.09.1972, Qupperneq 19
Sunnudagur 10. september 1972
TÍMINN
19
Kven„réttindi”
Framhald
af 17. siðu.
Ég spurði Veruhvernig teknar
væru ákvarðanir um viðtæk efni,
svo sem stöðu kvenna. Hún sagði
að mörg blöð. þ.á.m. hennar eig-
ið. héldu fundi með blaðamönn-
um. ritstjórum, lesendum. sem
sýnt hefðu viðkomandi málefni
sérstakan áhuga og byggju yfir
þekkingu á þvi. og hlutaðeigandi
embættismönnum. Fund hennar
blaðs um mál kvenna sóttu
nokkrir félagsfræðingar. læknar
og fóstrur. Engin þörf er á að sér-
stakir fulltrúar Flokksins sitji
fundi sem þessa. þvi að flestir rit-
stjórar eru i Flokknum og þeir
hafa stöðugt samráð við háttsetta
menn þar um hvaða stefnu skuli
fyigt.
Á einum slikum fundi var
ákveðiö. að starfsmenn blaðsins
skyldu efna til nokkurrra mánaða
rannsókna á vöggustofum og
barnaheimilum.
..Þetta er mikið vandamál,”
sagði Vera. ..Venjulegur verka-
maður hefur mánaðar sumar-
leyfi. En flest barnaheimili og
vöggustofur eru aðeins opnar út
maimánuð. Barn innan sjö ára
aldurs kemst ekki i sumarbúðir
og auk þess eru þær ekki nógu
margar til i landinu að þær rúmi
öll eldri börnin. Sumir foreldrar
taka sumarleyfi sitt i hvoru lagi
til að gæta smábarna sinna yfir
sumariö. Þau hafa þvi aldrei
tækifæri til að taka sér fri saman.
Það hefur slæm áhrif á hjóna-
bandið.”
Blað Veru hafði birt sérlega
hreinskilningsleg skrif um það
óréttlæti, sem sovézkar konur eru
beittar á vinnumarkaðinum.
Reglan sömu laun fyrir sömu
vinnu er jafnvel enn tryggari i
sessi en hjá flestum vestrænum
þjóðum. en eins og annars staðar
er hyldýpi á milli lagabókstafsins
og raunveruleikans. Menntakon-
ur í Sovétrikjunum eiga aðgang
að störfum, sem karlmenn einir
skipa á Vesturlöndum, en konur
fyrir austan eru lika i miklum
meirihluta i lægstlaunuðu, og
minnst eftirsóttustu störfunum.
Kvenprófessorar, — læknar, —
lögfræðingar og kvenvisinda-
menn eru fleiri þar en á Vestur-
löndum. En eftirsóttustu störfin á
öllum sviðum eru skipuð karl-
mönnum. 70% sovézkra lækna
eru konur, en fáar þeirra eru yfir-
læknar eða skurðlæknar. Á sam-
yrkjubúum og i verksmiðjum
gegna karlar stjórnunarstörfum
meðan konur vinna erfiðisvinnu.
Krúsjeff sagði einu sinni á fundi
um landbúnaðarmál: ,,Við vitum
öll hve mikilvægu hlutverki konur
gegna hvarvetna i uppbyggingu
kommúnismans. En af einhverj-
um ástæðum eru fáar konur hér i
salnum. Takið kiki og svipizt um.
Hér eru aðallega menn. sem
vinna að skipulagningu og stjórn-
un. Það litur út fyrir að karlarnir
skipuleggi og stjórni en konurnar
vinni verkin.”
1 blaði Veru birtist greinaflokk-
ur um þörfina á aukinni þátttöku
kvenna i stjórn verksmiðja og
samyrkjubúa. t einni grein var
bent. að helmingi fleiri konur en
karlar vinna ófaglærð störf i
þungaiðnaði .
Einnig var stungið upp á þvi að
konur fengju greitt úr trygging-
um eftir barnsburð, svo að þær
þyrftu ekki að byrja að vinna úti
fvrr en eftir nokkur ár, ef þær
vildu hafa þaösvo. ..Hversvegna,
getur fólk i sósialisku riki ekki
viðurkennt. að uppeldi barn er
starf. sem er mikilvægt fyrir
þjóðfélagið?” spurði Vera.
..Hversvegna á kona að þurfa að
vinna úti til að sjá fyrir fjölskyld-
unni og láta barn sitt i hendurnar
á ókunnugum. sem fá borgað fyr-
ir að vinna starf, sem hún vill
sjálf helzt annast? Ég sjálf vildi
ekki vera heima i meira en eitt
eöa tvö ár eftir barnsburð, en það
sama á ekki við um allar konur.
Við gætum haft sérstök námskeið
fyrirkonur. sem eru visindamenn
og læknar. svo að þær geti fylgzt
með þróuninni i sinum greinum
og farið aftur að vinna eftir
nokkur ár án þess að vera orðnar
á eftir,timanum.”
Sú skoðun margra feðra rúss-
nesku byltingarinnar. að rikið
ætti að annast uppeldi barnanna.
olli Veru engum heilabrotum.
..Þeir sáu stundum langt yfir
skammt". sagði hún. ,,Sú hug-
mynd á ekki miklu fylgi að fagna i
landi okkar. Hún er andstæð
mannlegu eðli. Ég tel mig góðan
kommúnista. en það er ekki
Flokksins að ala upp son minn."
Margar hugmyndir Veru um
þessi efni komust alla leið á siður
blaðsins. en ekki alltaf undir
hennar eigin nafni. Hún lagði til
efni i margar greina um konur,
sem birtust undir höfundarnafni
einhvers félagsfræðings.
Hversvegna rússneskar konui
eru ..hamingjusamar" Dæmi um
andstæðar skoðanir. sem birtust i
sovézkum blöðum. voru skrif
hinna ihaldssamari blaða um
konur. Þar var alltaf lögð áherzla
á að konur i Rússlandi væru ham-
ingjusamari en nokkursstaðar
annarsstaðar i heiminum, og að
sovézkt þjóðskipulag gerði kon-
um i fyllsta máta auðvelt að
vinna úti og eiga jafnframt fjöl-
skyldu.
Ég spurði Veru aldrei beint að
þvi. hvernig hún afbæri að svo fá-
ar hugmyndir hennar kæmust á
prént. Þær þeirra. sem komust
alla leið. voru blandaöar og dul-
búnar til þess að komast i gegn-
um ritskoðunina. En hún kom
sjálf að þessu með þvi að spyrja
mig hver munurinn væri á rit-
skoðun og ritstjórn blaðs mins.
Ég sagði Veru, að munurinn
væri sá, að það að ritstýra blaði
væri persónulegt mál en ritskoð-
un væri opinber. Ef blaðamann og
ritstjóra greinir á, getur hann
snúiö sér til annars ritstjóra um
birtingu á efni sinu, eða jafnvel
skipt um starf.
Vera vann hjá einu frjálslynd-
asta blaði Sovétrikjanna. Hún
hefði ekki getað boðið öðru blaði
hugmynd sina um getnaðar-
varnagreinina og búizt við að fá
hana samþykkta.
Ég spurði hana hvernig hún af-
bæri að vita að allt, sem hún
skrifaði væri ekki aðeins háð
samþykki einstakra ritstjóra
heldur einnig allsherjar pólitiskri
stefnu.
..Þú gætir eins spurt hvernig ég
get verið Rússi,” svaraði hún.
..Fólk eins og ég það telur sitt
hlutverk, að koma einhverju i
gegnum ritskoðunina, sem
kannski hefði ekki komizt það,
hefði einhver annar skipað okkar
sess. Sumar hugmynda minna
lifa hana af. rússneskur lesandi
kemur auga á þær þótt útlending-
ur geri það ekki.”
Hún nefndi sem dæmi atriði,
sem ég hefði aldrei tekið eftir, i
Aðeins venjuleg vika. Á einum
stað segir Olga við manninn sinn,
að þau tali aðeins saman um pen-
inga — aldrei um hugmyndir eða
heimsmálin. Hann minnir hana á,
að þau hafi rætt um styrjöldina i
Vietnam og ..Tékkóslóvakiu”.
Vera sagði mér að bara það, að
nefna Vietnam og Tékkóslóvakiu
i sömu setningunni væri slungin
aðferð til að likja atburðunum i
löndunum tveim saman, aðferð.
sem dygði til að komast i gegnum
ritskoðunina. Hún hló sigrihrós-
andi þegar ég viðurkenndi, að ég
hefði ekki komið auga á þetta af
sjálfsdáðum.
Eins og flestir Rússar, efaðist
Vera ekki um rétt stjórnarinnar
til að halda uppi ritskoðun. Hún
vildi aðeins leyfa viðtækari um-
ræður innan ramma ritskoðunar-
innar. Hún taldi. að stjórnin hefði
rétt til að setja vissa rithöfunda i
bann. en hefði ekki átt að senda
Solsjenitsyn i útlegð.
Vera játaði hreinskilnislega að
hún hefði gengið i Flokkinn af þvi
að það yki framamöguleika henn-
ar i starfi. ..Meirihluti blaða-
manna okkar eru ekki i Flokkn-
stióran;;^' h"P -en flestir rit-
stjoraimc Ég vil verða
ritstjóri. Ég vil geta tekið til birt-
ingargrein um getnaðarvarnir og
fóstureyðingar."
Ég spuröi hana hvc . nig henni
mundi vera innan brjósts þeaar
hún væri orðin ritstjóri. ef b
sem væru hærra settir er
segðu þá en ..Nei”. ..Ég h
augu við það þegar þar a jm
ur", svaraði hún.
Fæðingar
Framhald
af bls. 1.
— Við höfum leyft það, ef
þeir óska þess og við haft
ástæður til, en stundum er
yfirfullt hjá okkur, og þá
verður þvi ekki við komið.
— Er algengt, að þess sé
óskað, að feður fái að vera við
fæðingu?
— Ekki segi ég það nú. Þó
óska hjón þess alltaf annað
slagið.
— Teljið þið æskilegt, að
feður séu við fæðingu?
— Ef konunni finnst það
betra, sé ég ekkert, sem mælir
á móti þvi, að faðir barnsins sé
við fæðinguna. Þá er það ef-
laust æskilegt. Ef fæðing er
hins vegar á einhvern hátt af-
brigðileg, veit ég hvergi til, að
leyft sé, að faðirinn sé við-
staddur.
— Kemur fyrir að liði yfir
llaiin er ekki forvitnari en svo, þó að ný veröld sé að opnast
lionum, að nennir ekki aö ljúka upp augunum. Það er llka nógur
timinn til þess að hvessa augun framan i hana versu á hring-
brautum eða eiriksgötum tilverunnar. En hægri hendina réttir
liann fram, svo að hann er kannski aöheilsa.
feður, sem fylgjast með fæð-
ingu?
— Það ræði ég ekki um.
Slikt er einkamál þeirra, sem
hlut eiga að máli.
Héldu sig i yfir-
vofandi lifshættu
Eins og áður segir mun það
einkanlega frá Sviþjóð komið,
að eiginmenn fylgi konum
sinum i fæðingarstofnanirnar
og viki ekki frá þeim fyrr en
þær hafa alið barn sitt. Al-
mennt munu Islendingar, sem
þar dveljast, fylgja lands-
venju i þessu efni nú orðiö.
Framan af árum kveinkuðu
margir.sér við þvi og töldu það
óhlýðilegt — og konurnar
raunar verið sama sinnis.
Sænsku ljósmæðrunum
fannst þetta durnaraháttur,
sem þær vildu ekki sætta sig
við, og þess eru dæmi, þegar
fyrstu tslendingarnir þar i
landi létu undan fortölum
þeirra og áskorunum, hafi sú
hugsun hvarflað að konum, að
þeim væri ekki hugað lif, er
menn þeirra birtust á jafnólik-
legum stað og fæðingarstofu.
Þeim gat varla hugkvæmzt
annað en þeir væru komnir
þangað til þess að kveðja þær i
siðasta sinn.
•Jh.
(ijÖTLÖ þið
syo y©1.
Repið
YÍð.SliÍpíÍll
Síniimi i>r
um rnoo
Verksmiðjuafgreiðsla K E A
annast heildsöluafgreiðslu á
vörum frá framleiðsludeild-
um félagsins. Með einu sím-
tali getið þér pantað allt
það, sem þér óskið, af íjöl-
breytilegri framleiðsluþeirra,
landsþekktar úrvalsvörur, —
allt á einum stað:
Málningarvörur og hreinlæt-
isvörur frá Sjöfn, kjöt- og
niðursuðuvörur frá Kjötiðn-
aðarstöð KEA og hangikjöt
frá Reykhúsi KEA. Gula-
bandið og Flóru-smjörlíki,
Braga-kaffi og Santos-kaffi,
Flóru-sultur og safar, brauð-
vörur frá Brauðgerð KEA,
ostar og smjör frá Mjólkur-
samlagi KEA, allt eru þetta
þjóðkunnar og mjög eftir-
sóttar vörur, öruggar sölu-
vörur, roarg-auglýstar í út-
varpi, sjónvarpi og blöðum.
Innkaupastjórar. Eitt símtal.
Fljót og örugg afgreiðsla.
Kynnið yður kjörin og reyn-
ið viðskiptin.
Síminner (96) 21400.
VERKSMIÐJUAFGREIÐSLA K-E-A AKUREYRI