Tíminn - 20.09.1972, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Miðvikudagur 20. september 1972
’VandeV
Þéttir gamla og nýja
steinsteypu.
Z
SIGMA H/F
Bolholti 4,
simar 38718—86411
kII
If ISII.Ih mlllfi HI111.
GAGNMERK
S.IÓNARMIÐ
„Vakandi” skrifar bréf, sem
birtist á vegum Landfara i
Timanum 1. sept. s.l., þar sem
hann lætur i ljós mikla ánægju
með þá skattalækkun, sem hon-
um hefir fallið i skaut, þrátt fyrir
meira en tvöföldun tekna. Þessu
ber að fagna og bendir enda til
þess, sem lengi hefir verið min
skoðun, að rikisstjórninni beri
skylda til þess að lækka álagn-
ingu skatta á þegnana, jafnvel
Ef yður er annt um fjárfestingu
yðar, eruð þér velkomin til að
kynna yöur hið fjölbreytta
úrval af hinum viðurkenndu
GiltEdge
teppum frá Englandi.
í verzluninni höfum vér nú
fyrirliggjandi mikið úrval
af glæsilegum sýnishornum.
i teppunum frá Gilt Edge fara
saman allir beztu eiginleikar,
sem úrvals teppum sæmir.
Krábærar litsamsctningar og
mynstur ásamt óvenjugóðri
cndingu .
Gjöriö svo vel og lítiö inn
og þér munuö sannfærast.
SKEIFAN
Kjörgaröi — Simar 16975 & 18580
SKÓLA
RITVÉLIN
þótt . heildarinnheimta þurfi að
hækka frá ári til árs vegna siauk-
inna framlaga til lista og mennta-
mála.
Auk þessa hagræðis fyrir Vak-
anda hafa námslán verið hækkuð
nokkuð og hillir undir, að þau
verði ekki innheimt. Að visu
þurfa þau að hækka enn verulega,
svo að Vakandi þurfi ekki að
leggja það á sig, að vinna sumar-
vinnu hjá atvinnurekendum, sem
þegar hafa komið þvi svo fyrir,
•að þeir þurfa ekkert að vinna, en
bara mergsjúga vinnandi fólk.
Auðskilið er að stefna ber að þvi,
að enginn þurfi að vinna, það
sjónarmið vil ég rækilega styðja
með Vakanda.
Vakandi vinnur hjá hálfopin-
beru fyritæki, hvar forstjórinn
virðist vera eitthvað utangátta,
þar sem einhverjar óútskýrðar
nauður reka hann til þess að
mæta til vinnu eftir hálfsmánaðar
fjarveru, sem engu skiptir. Stefna
ber að þvi. að losa hann undan
slikri áráttu og að hann fái heldur
einhverskonar styrk svo hann
geti lifað eins og frjálsborinn
vinnandi maður.
Svo sannarlega er það satt, að
það er fáránlegt að láta forstjóra
ráða fólk og reka, en fæstir hefðu
búizt við úr þessari átt slikri fúl-
mennsku, sem Vakandi sýnir, er
hann ætlar að hneppa okkur laun-
þega i þá fjötra að láta sam-
starfsmenn okkar ákveða hvar og
hvenær við skulum mæta til
vinnu. Við höfum nú undanfarið,
fyrir ötula baráttu forstjóra hags-
munasamtaka okkar, búið við
þær aðstæður að geta farið i
vinnu þegar okkur sýnist og hætt
þegar okkur sýnist og sé ég enga
ástæðu til annars, en svo megi
vera áfram, meðan við erum
neydd til þessarar vansæmdar að
þurfa að bæta upp lúsarstyrki
með vinnu okkar. f
Þessir styrkir vilja lika ódrygj-
ast verulega. T.d. fékk ég i fyrra
námslán að upphæð kr. 180.000.00,
en frá þvi dróst óhjákvæmilega
stór hluti vegna flugfars til Lon-
don og heim aftur, ásamt 10 daga
dvöl á hóteli þar, meðan ég var að
láta innrita mig i London School
of Foreign Trade, auk umfangs-
mikilla kynnisferða um helztu
menningarhverfi borgarinnar.
Ekki bætti það úr skák, að ég varð
að koma við i Kaupmannahöfn á
heimleiðinni vegna útvegana á
nauðsynlegum birgðum hug-
vikkunarefna og má þá hver
maður sjá, hve langt svona
hungurlús dregur.
Stefna ber að þvi að stórhækka
námslán og jafnframt breyta
þeim opinskátt og tafarlaust i
óafturkræfa styrki.
Ég dvaldi um tima i Austur-
Þýzkalandi nokkru eftir að
Berlinargarðurinn var lagður.
M .a. átti ég þá tal við borgarráðs-
menn i borg þeirri, sem ég gisti.
Barst þá i tal múrinn og taldi
hann þá girðingu vera alveg
bráðnauðsynlega, færði aðallega
fram þau rök, að svo margjr fyr-
irsvarsmenn atvinnufyrirtækja
hefðu hlaupizt á braut að til vand-
ræða horfði. Forstjórarnir áttu,
auðvitað, að véra i þjónustu fólks-
ins, enda til þess kjörnir. Þetta
fór þó venjulega á annan veg, þeir
fóru fljótlega að sýna sitt rétta
andlit, vildu ráða vinnufyrir-
komulagi, verkafólksfjölda, mæt-
ingu fólks og brottför af vinnu-
stað. Vinnandi fólk var að vonum
fljótt að sjá i gegnum þessi ill-
menni og tók að velgja þeim undir
uggum með sama árangri, þeir
sáu sinn grænstan i að forða sér
vestur yfir mörkin.
Borgarráðsmaðurinn taldi, að
þessu væri um að kenna,hve mörg
fyrirtæki gætu ekki staðið við
fyrirmæli um framleiðslumagn,
þar sem forstjórarnir hefðu haft á
brott með sér eitthvað, sem hann
kallaði þekkingu. Við Vakandi
blásum nú á svoleiðis kjaftæði.
Mega nú allir sjá aðfarir ráða-
manna austur þar að loka sjálfan
dýrbitinn inni i fjárgirðingum,
með óbundnar hendur, enda er
árangurinn eftir þvi: Framleiðsl-
an eykst ár frá ári á kostnað hins
vinnandi fólks, en forstjórar og
aðrar afætur lifa i vellystingum.
Mætti okkur Vakanda auðnast
að blása burtu kafaldsmuggu-
hugsunarhætti eldri kynslóðar-
innar, kynslóðar kapitalisma og
arðráns. Þeir timar eru liðnir að
fólk eigi að bindast á klafa vinnu,
en timar frelsis og áhyggjuleysis
renna upp og ást og friður og súpa
úr stórum potti.
Erfingi landsins
3 tegundir meó og án dálkastillis
Sterk — Falleg — Létt — Svart/Rautt
litaband.
Verð frá kr. 4.850
Útsölustaðir:
Akranes: Bökaverzlun
Andrésar Nielssonar
Akureyri: Bókval
Bolungarvik: Verzlun
Tveggja ára ábyrgð
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
Einars Guöfinnssonar
Hellu: Mosfell
Húsavik: Bökaverzlun
Þórarins Stefánssonar
ísafiröi: Bókaverzlun
Jónasar Tómassonar
Keflavík: Stapafell
*
Hverfisgötu 33
Simi 20560
Selfoss: Verzlun HB
Skrifstofustúlka
óskast til starfa, aðallega við simavörzlu
og vélritun. Nokkur tungumálakunnátta
er áskilin. Upplýsingar veittar á skrifstof-
unni Kársnesbraut 4 á skrifstofutima i dag
og næstu daga. Engar upplýsingar veittar
i sima.
Byggingavöruverzlun Kópavogs,
skrifstofan Kársnesbraut 4.
Tilkynning
til bifreiðaeigenda
Frestur til að sækja um endurgreiðslu
gjalda af bifreiðum, sem teknar hafa ver-
ið af skrá hluta úr árinu 1971, rennur út 30.
þ.m. Fyrir þann tima þarf þvi að sanna
rétt til endurgreiðslu gjaldanna fyrir inn-
heimtumanni rikissjóðs með greiðslu-
kvittun og vottorði bifreiðaeftirlits, ella
fellur hann niður skv. 1. gr. laga nr.
12/1964.
Fjármálaráðuneytið
20. september 1972.