Tíminn - 20.09.1972, Síða 5

Tíminn - 20.09.1972, Síða 5
Miftvikuflagur 20, september 1!)72 TÍMINN 5 Börn alin upp sam- kvæmt áætlun. I Sovétrikjunum eru um 9 og hálf milljón barna á barnaheim- ilum og vöggustofum, sem rekin eru af rikinu. A samyrkjubúum eru barnaheimili og vöggu- stofur rekin á kostnað búsins. Foreldrar geta valið um tvenns konar barnaheimili. Dag- heimili, þar sem barnið er 8—10 tima á dag, eða barnaheimili, þar sem barnið dvelur fimm virka daga vikunnar. Barnaheimilisbyggingar eru aldrei hærri en þrjár hæðir. Leikherbergin eru björt og stór, og einnig eru þar svefnstofur eða svalir, sem börnin sofa á á daginn. Húsgögnin miðast við stærð barnanna og nóg er af leikföngunum. Sérstakur gaumur er gefinn að samræmdu uppeldi barn- anna. Dagskráin er mjög ná- kvæm. M o r gu n 1 e i k f i m i, morgunmatur, kennslustundir, hádegisverður, hvild, útivera, kalfi, leikir, útivera o.s.frv. A V V barnaheimilum læra börnin að syngja, dansa, teikna, föndra og ýmislegt fleira. Barnalæknar fylgjast með heilsu barnanna, sprauta þau gegn smitandi sjúkdómum, skipuleggja leik- fimistíma og útivist. Foreldrarnir þurfa að borga fimmta hluta kostnaðarins fyrir dvöl barnsins, en rikið borgar kostnaðinn að 4/5 hlutum. Visindarannsóknastofnun barnauppeldis fylgist stöðugt með barnaheimilunum, en þar eru gerðar rannsóknir á uppeldi barna frá fæðingu. Stofnunin mælir með vissri dagskrá, leikj- um og kennslustundum. Barnaheimilin eiga að vikka sjóndeildarhring barnanna, þroska máltilfinningu þeirra, sköpunarhæfileika, verksvit, stærðfræðilegan skilning, áhuga á likamsrækt og þar fram eftir götunum. 1 niundu limm ára áætluninni er gert ráð fyrir að byggja barnaheimili og vöggustofur fyrir 2 milljónir barna. 4 V Ulla Sallert í Can-Can Samska söng- konan lllla Sall- ert er reykvisk- um leikhúsgest- um að góðu kunn, þvi hún heíur sungið og leikið nokkur aðalhlutverk i óperum. sem fluttar voru i Djóðleikhúsinu. 1 sumar hefur hún sungið og dansað i leik- flokki. sem ferðaðist um Sviþjóð og sýndi ('an-Can. Kr sýningin byggð á tónlist eftir ('ole Forter. Can-Can hefur hvarvetna verið sýnt fyrir fullu húsi og áhorf- endur tekið óperettunni m e ð m i k i 11 i hrifningu. A efstu mynd- inni er lllla Sallert i hlut- verki La Mome l’istache og er að herkhrðast áður en hún tek- ur til við að for- færa einhvern dómara. A mið- myndinni er svolitið sýnis- horn af þvi. hvernig útlits er i sadugarðinum Kden. og á þcirri neðstu Can-Can. Góðar fréttir og slæmar Olsen fékk kolbrand í hægri fótinn og var lagður inn á sjúkrahús, þar sem fóturinn var tekinn af honum. begar Olsen vaknaði eftir að- gerðina stóðu læknar sjúkra- hússins yfir honum og sögðu að þeir hefðu bæði góðar fréttir að færa honum og slæmar. Bezt væri að segja honum hið illa fyrst. Á skurðarborðinu fóru þeir fótavillt og tóku heilbrigða fót- inn af Olsen. Þegar mistökin komu i ljós var ekki um að ræða en taka hinn fótinn af honum lika. Þá það, sagði Olsen, en hverj- ar eru góðu fréttirnar? — Sjúklingurinn í næsta rúmi vill gjarnan kaupa inniskóna þina. BBB Reið frú við ostasalann: Hvernig var það með ostinn, sem : þér selduð mér i gær? Var hann innfluttur frá Sviss, eða var honum visað úr landi þar? — Megum við kisa sjá hvitu mýsnar þinar? Tveir ungir menn sátu og skoðuðu það. sem fyrir augun bar i nektarnýlendu. Allt i einu segir annar og hnippir i hinn: — Sérðu þessa háu. ljóshærðu þarna. Sú væri aldeilis glæsileg i bikini. — Hvort þetta sé einasta huggun min? Nei, frú, ég er með aðra flösku i vasanum. — Kkki meira handa honum, hann keyrir i kvöld. Golfþjálfarinn var að setja nemanda sinn inn i þá list að hitta hvitu kúluna á réttan hátt. Hann þurfti að skreppa frá augnablik, og nemandinn sló á meðan. Þjálfarinn kom aftur og hrópaði: — Kúlan. sem þú slóst, fór út á þjóðveginn, braut rúðu i rútubil, sem siðan ók á hús. Bilstjórinn lézt og tiu manns eru slasaðir. — Ó. hvað á ég að gera, spuröi nemandinn i örvæntingu. — Þú átt að standa betur saman með fæturna og snúa þér betur til hægri... DENNI DÆMALAUSI Pabbi, þú komst alveg passlega. fcg veit ekki hvað ég ætti að setja á fjórða lagið.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.