Tíminn - 20.09.1972, Síða 16

Tíminn - 20.09.1972, Síða 16
16 aðilar óskuðu eftir að bjóða í Sigölduvirkjun c Miftvikudagur 20. septembcr 1972 J KJ—Keykjavík" Landsvirkjun stefnir nú að þvi, aö framkvæmdir við virkjun Tungnaár hjá Sigiildu geti hafizt næsta vor, og um þessar mundir fer fram forval á bjóðendum I byggingarhluta virkjunarinnar, en alls óskuðu sextán aðilar eftir að bjóöa I framkvæmdirnar. Standa vonir til,að forvaiinu verði lokiö I október. Verður þá hægt að afhenda hinum útvöldu bjóöendum útboðsgögn. 1 fréttatilkynningu frá Lands- virkjun segir, að fyrirtækið hafi nýlega fengiö heimild eignarað- ila sinna, rikisins og Reykja- vikurborgar, til að taka bráða- birgöalán að fjárhæð tvær milljónir Bandarikjadollara vegna undirbúnings virkjunar- innar við Sigöldu. Þá segir ennfremur: Með lögum nr. 37 frá 1971 veitti Alþingi Landsvirkjun heimild til virkjana I Tungnaá, og ákvaö stjórn Landsvirkjunar i sept- ember 1971 með samþykki eignaraöila fyrirtækisins, að haldið skyldi áfram undirbúningi aö 150 MW virkjun Tungnaár við Sigöldu. t framhaldi af þvi var geröur samningur viö verkfræöi- ráðunautana Electro-Watt og Virki um gerð útboösgagna vegna virkjunarinnar og aflað nauðsynlegs virkjunarleyfis iðnaöarráðherra. Gerð útboðs- gagna er lokiö fyrir véla- og raf- búnað virkjunarinnar og hafa þau verið send um 25 aðilum, sem i alþjóðlegu útboði hafa sýnt áhuga á að bjóða i hlutaðeigandi verk, en ráögert er aö opna tilboö i afhendingu og uppsetningu þessa búnaðar hinn 5. janúar n.k. Útboðsgögnin eru þannig úr garði gerö, aö stjórn Landsvirkjunar getur samið viö hlutaðeigandi verktaka um niðursetningu véla i áföngum, en útboðið gerir kröfu til þess, aö hver og einn bjóðandi bjóði i verkiö i heild að meðtalinni niöursetningu vélanna, sem Landsvirkjun er þó innan handar aö taka aö sér sjálf. Auk verkfræöiundirbúningsins á þessu ári hefur Landsvirkjun komið upp vinnubúöum við Sig- öldu fyrir um 250 manns, leitt þangað rafmagn og komið upp vegakerfi innan virkjunarsvæðis- ins. Eru þessar framkvæmdir liöur i þvi aö flýta fyrir, aö verktakinn við byggingarhlutann getihafizt handa á vori komanda, en vonir standa til, að þá verði út- boöi byggingarhlutans lokiö með gerö verksamnings við hlutað- eigandi verktaka. 1 þessum hluta verksins felst bæði stöövarhús Sigölduvirkjunar og stiflugerð. I útbúnaði véla- og rafbúnaðar fyrir virkjunina er óskað eftir, að tilboðum fylgi vörukauplán, en að öðru leyti verður leitaö til er- lendra lánastofnana og þá einkum Alþjóðabankans um lán til framkvæmdanna, auk þess sem til koma framlög eigenda og eigiö fé Landsvirkjunar. Núverandi framkvæmda- áætlanir gera ráö fyrir, að fyrsta vélasamstæða virkjunarinnar verði komin i rekstur 1. des- ember 1975, önnur vélasamstæða virkjunarinnar verði komin i rekstur 1. april 1976 og sú þriðja 1 desember 1976, en hver vélasam- stæöa er 50 MW. Stjórnarráðið lokað eftir hádegi föstudag Vegna útfarar herra Ásgeirs Ásgeirssonar, fyrrverandi for- seta tslands, verður Stjórnarráð- ið lokað frá hádegi föstudaginn 22. september n.k. Jafnframt er mælzt til þess, að aðrar opinberar stofnanir verði einnig lokaðar, þar sem þvi verð- ur við komið. Anna Aslaug Kagnarsdóttir til vinstri og Lára Rafnsdóttir til hægri verða fulltrúar islands i Norrænu tónlistarkeppninni, sem fer fram hér á landi 7.-8. október nk. Anna Áslaug hlaut fyrstu verðlaun i heimakcppn^scm lauk i gær, en Lára önnur. Það er Páll P. Pálsson, sem stendur I milliþeirra. Heyköggla- og þangverksmiðja taka til starfa í Dalasýslu að Stp—Keykjavík Vestur i Dalasýslu er um þessar mundir verið að leggja siðustu hönd aö heyköggla- og þangverksmiðju, sem áætlað er. að taki til starfa einhvern tima fyrir mánaðamótin næstu. Verk- smiðja þessi er I Litla-Hoiti i Saurbæjarhreppi. Er hún I 600 fermetra húsi, sem er tviskipt, annar hlutinn fyrir vclar og hinn notaöur sem fóðurgeymsla. Verk- smiöja þessi er nokkru stærri en hinar, sem fyrir eru i landinu þessarar tegundar, og er gizkaö á, að hún komi til með að þurrka um 2,8 tonn af vatni úr hráefninu á klukkustund. Upphaflega hugmyndin var sú, að verksmiöja þessi ynni bara þang, sem rekja má til tilraunar tveggja manna þar vestra fyrir nokkrum árum, er þeir keyptu vélar úr sfldarskipi og hugöu a þangvinnslu. Ekki varð þó mikið úr þeim framkvæmdum. Seinna var ákveöið að.nota verksmið- juna einnig til heyþurrkunar, og var þá keypt 200 hektara spilda úr Litla-Holts landi, sem nú er i ræktun. Er reiknaö með, aö fást muni um 800 tonn af heykögglum árlega úr þessari spildu, þegar hún er komin i fulla ræktun. I vor var sáð grænfóðri i 30 hektara, og verður byrjað að þurrka af þvi i haust. Það er hlutafélag,sem gengzt fyrir þessari verksmiðju, og eru hluthafar i Dalasýslu og viðar. Einnig er von á styrk frá Nýbýla- sjóð. Framkvæmdastjóri fyrst um sinn veröur vélvirki frá Reykja- vik, Sigurður Sigurðsson að nafni, en formaöur framkvæmda- nefndar er kaupfélagsstjórinn á Skriöulandi, Guðmundur Hjálmarsson. — Óhemjumikið af þangi er á strönd Gilsfjarðar og útmeðallri ströndinni til Stykkishólms,en svo stórstreymt er þarna, að fjaran geturorðiðá annan kilómetra. Er hugmyndin að vinna þang allan ársins hring, nema yfir hey- skapartimann. Þangmjöl hefúr ekki verið unnið áður hér á landi, en það er notað til fóðurs og einnig eitthvað i iðnaði, t.d. i matarlim. Sérfræðingar uggandi um olfuvinnslu Norðursjávar NTB—London Á fundi oliusérfræðinga, sem haldinn var i London i gær, var þvi haldið fram, að gera mætti ráð fyrir mjög mikilli aukningu i kostnaði við að vinna oliu af botni Norðursjávar. Dr. Jack Birch frá British Fetroleum (BP) sagði að meira en helmingur þeirra svæða á botni Norðursjávar, sem áætlað er að bora á, lægi á minnst 450 feta dýpi. Borpallar, sem geta náð upp oliu á svo miklu dýpi, eru mjög dýrir. Af þvi leiðir, að kost naðurinn við borunina á þessu myndi stiga verulega frá þvi, sem nú er, eða frá að meðaltali 60 milljónir isl. króna á holu upp i um 224 milljónir. T. White, sem er sérfræðingur i oliuhagfræði, kom fram með annan napran spádóm varðandi oliu- og gasvinnslu i Nðrðursjó i framtiðinni. Hannreiknar meö þvi, að kostnaðurinn við að halda uppi ákveðnu framleiðslumarki i Norðursjó myndi verða allt að tiu sinnum meiri en það, sem þarf til að halda uppi sama framleiðslu- marki i Austurlöndum nær. Samkvæmt útreikningum dr. Birchs á brezka oliusvæðið i Norðursjó að geta fullnægt hel- mingnum af oliu- og gasþörf Stóra-Bretlands á fyrstu árum næsta áratugs. T. White sagði ennfremur, að oliumagnið i Norðursjó væri talið vera undir 1.000 tonnum, sem er aðeins um það bil eitt prósent af oliumagni heimsins. — P'undur þessi var haldinn á vegum Financial Times, Investors Chronicle og Petroleum Times, og sátu hann um 1.000 oliusérfræðingar alls staðar að i heiminum. RÚSSAR LATA EKKI SLA SIG ÚT AF LAGINU Maurice Schumann til R eykjavíkur í dag NTB—Moskvu Sovétrikin lýstu þvi yfir i gær að þau muni auka vopnasend- ingar sinar til Irak og skuldbinda sig til aö veita palestinsku skæru- liöasveitunum aukin stuðning, bæði pólitiskan og efnahagslegan. Þetta kom fram i skýrslu, sem birt var i Moskvu i gær, við lok 5 daga heimsóknar forseta Iraks, Ahmen Hassan Al-Bakrs, i Sovét- rikjunum. „Það er mjög mikilvægt að styrkja einingu milli Araba- landanna og beita öllum ráðum i baráttunni gegn heimsvalda- stefnu og yfirgangssemi”, sagði i skýrslunni. Sovétrikin og trak urðu einnig sammálu um að styrkja i sameiningu varnir traks verulega. KJ—Reykjavik Franski utanrikisráöherrann, Maurice Schumann, kcmur til Reykjavikur siðari hluta dags i dag, og fer hann strax eftir kom- una hingaö til Ressastaða. 1 fyrramálið mun ráðherrann eiga viðræður við Ólaf Jóhannes- son forsætisráðherra og Einar Agústsson utanrikisráðherra, en héðan heldur franski utanrikis- ráðherrann til New York siðari hluta dags á morgun. Eftir við- ræðurnar við islenzku ráðherrana liggur leið franska utanrikisráð- herrans til Þingvalla, en blaða- mannafundur verður haldinn i franska sendiráðinu siðar um daginn. Yfirgangur Breta ÞB—Reykjavik Brezki togarinn Ben Lui A-166 gerði itrekaðar tilraunir til þess að sigla niður vélbátinn Fylki frá Neskaupstað i gær. Skipstjórinn á Mb. Fylki NK-102, sem er 92,3 brúttó- lestir, sagöi Landhelgis- gæzlunni, að rétt fyrir hádegi i gær hefði brezki togarinn Ben Lui A-166 gert tvær tilraunir til þess að sigla bátinn niður þrettán til fjórtán sjómilur suðaustur af Langanesi. Samkvæmt frásögn skip- stjórans fór fyrri tilraunin þannig fram, að togarinn sigldi á fullri ferð fram með stjórnborössiðu bátsins, og snarbeygði til bakborða fyrir bátinn, siðan kom togarinn á fullri ferð og stefndi beint á bakborðssiðu bátsihs, en báturinn komst undan. Ms. Hólmanes Su-102, 249 brúttólestir var einnig á þessu svæði. Málið mun verða kannað itarlega. BERJASPRETTA BREGZT ALGERLEGA A AUSTURLANDI Stp—Rcykjavík Slátrun er hafin i þremur hús- um hjá Kaupfélagi lléraðsbúa og verður hafin á Borgarfirði eystra i dag. Er útlit fyrir um 10% aukn- ingu á sláturfjártölu frá þvi i fyrra. Það sem búið er að slátra, hefur flokkzt sæmilega, og sums staðar vcl, en horfur eru á því, að dilkar verði heldur lakari en i fyrra. Uppskera á garðávöxtum var mjög góð austur á Héraði i sumar, þótt ekki sé mikið um garðyrkjubændur. Hins vegar hefur berjaspretta alveg brugð- izt, þannig aö undrum sætir. Til dæmis sjást varla ber i Hallorms- staðarskógi, þar sem löngum hef- ur verið gott berjaland. Ekki er auðsvarað, hverju þetta sætir, en nokkuð sennileg skýring er þó, að berjavisarnir hafi komiö of snemma i vor og siðan frosið. Berjaspretta hefur yfirleitt veriö góð á Austurlandi undanfarin ár, og má -þar nefna sérstaklega krækiberjasprettu i Borgarfirði eystra sem bregzt nú sem annars staðar i þessum landhluta. Þa8 verður sem sagt ekki um þaö að ræða, að Austfirðingar leggi i krækiberjasjóð „rikisins” þetta árið.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.