Tíminn - 23.09.1972, Blaðsíða 19
Laugardagur 2li. september 1972
TÍMINN
Haraldur Kröyer
vara- forseti
allsherjarþ. SÞ
Miðvikudaginn 20. september
fór fram kjör varaforseta 27. alls-
herjarþings Sameinuðu þjóð-
anna. Var fastafulltrúi Islands
hjá Sameinuðu þjóðunum,
Haraldur Kröyer sendiherra,
kjörinn einn af vaí-áforsetum
þingsins.
Gróðurvernd
Framhald
af bls. 8.
og heilbrigðis- og hreinlætis-
hætti. Staðir þessir eru margir
undir verndarvæng skógrækt-
arinnar og skógræktarfélaga.
Það verður að vera skýlaus
krafa,að þessir aðilar þurfi ekki
að bera af þessu kostnað og að
ferðamannaþjónustan eða rikið
kosti þvi til sem þarf til að
skapa nauðsynlega þjónustu og
halda slfkum stöðum við á
menningarlegan hátt.
4. Fundurinn fagnar auknum á-
huga á gróðurverndar- og land-
græðslumálum og skiln-
ingi á þvi,að þetta sé einn mik-
ilvægasti þáttur umhverfis-
mála i landi okkar. Aþreifan-
legur vottur þess skilnings er
setning landnytja- og land-
græðslunefndar þeirrar, er
skipuð var á s.l. ári. Fundurinn
bendir á, að skógræktaráætlun
sú, sem unnið er að á vegum
Skógræktarfélags Islands og
Skógræktar rikisins er mikils-
verður hlekkur i gerð heildará-
ætlunar og treystir þvi, að sam-
vinna takist milli þeirra aðila,
sem að þessu vinna og skóg-
rækt fái eðlilegan sess i heildar
landgræðsluáætlun.
5. Fundurinn telur brýnt að efla
og stórauka leiðbeininga og
ráðunautaþjónustu i skóg- og
trjárækt meðal almennings
jafnt og bæjum sem sveitum og
beinir þvi til stjórnar félagsins
að taka þessi mál til gagn-
gerðrar ihugunar. Fundurinn
telur orðið nauðsynlegt, að fé-
lagið ráði eigin ráðunaut til
umsjónar i þessum málum.
Þá beinir fundurinn þvi til
Búnaðarfélags Islands að auka
leiðbeiningastörf i garð- og
trjárækt i sveitum landsins, og
telur samstarf heppilegt milli
félaganna um þessi mál.
6. Fundurinn beinir þeim tilmæl-
um til allra umráðamanna
kjarr- og skóglendis að friða
þau eftir föngum, þvi að viða
finnast birkirætur og fræplönt-
ur i jörðu, sem ekki komast upp
vegna of mikillar beitar og
traðks.
Framhald
af bls. 9.
rætur að rekja til óvandaðrar
skráningar. Héraðsákærandi
varð að ráða glæpamálasér-
fræðing til þess að kanna þau
rúmlega 150 gögn, sem safnað
hafði verið. Undirbúningur
réttarhaldanna hefir þegar
kostaö 200 þúsund dali að þvi
að talið er. Af þeim sökum
hefir Sutter-hérað, þar sem
varnarþing málsins átti upp-
haflega að vera, neyðzt til að
hækka fasteignagjöld að mun.
ÁKÆRANDINN á við veru-
lega erfiðleika að etja, en
Richard Hawk verjandi er
bjartsýnn. Hann bendir þó á,
að nokkur efi hrekkur ekki til i
máli, sem búið er að ræða
svona mikið opinberlega áður
en til réttarhalda kemur. Juan
Corona verður að hreinsa sig
af ákærunni og ég verð að
sanna, að hann sé heilbrigður
andlega”.
Verjandi heldur fram sak-
leysi Juans Corona, en sú
spurning. sem gerir honum
erfiðast fyrir, er vitanlega,
hver hafi framið morðin ef
Corona hafi ekki gert það.
Hawk hefir gefið i skyn að
hann kunni aö benda á Nativi-
dad hálfbróður Juans. Hann
fluttist á burt eftir að dómur
gerði honum að greiða 250
þúsund dali i útlitsspjöll, sem
hann vann á öðrum manni i ill-
deilum i sambandi við kyn-
Framhald
af bls. 1.
fram til siðustu stundar. Þetta
er versið:
Verk min, Drottinn,
þóknist þér,
þau láttu allvel takast mér,
ávaxtasöm sé iðjan min
yfir mér hvili blessun þin.
Aöeins þeir nánustu
Að lokinn ræðu biskups söng
dómkórinn sálminn ,,Hvað
bindur vorn hug” og siðan lék
Ragnar Björnsson á orgelið
„Jesus bleibet meine freude”
eftir J.S. Bach, og þar á eftir
söng dómkórinn 1. og 10. vers
úr sálminum ,,Allt eins og
blómstrið eina” eftir Hallgrim
Pétursson. Þá kastaði biskup
rekunum, og siðan söng dóm-
dórinn aftur tvö versúr „Allt
eins og blómstrið eina”. Að
lokum lék Ragnar Björnsson
sorgargöngulagið eftir
Hándel.
Meðan sorgargöngulagið
var leikið, var kistan borin úr
kirkju og út á götu, þar sem
Lúðrasveit Reykjavikur lék
þjóðsönginn. Þeir sem báru
kistuna úr kirkju voru ráð-
herrarnir Ólafur Jóhannes-
son, Hannibal Vaidimarsson,
Einar Ágústsson og Magnús
Kjartansson, og auk þeirra
Logi Einarsson, Eysteinn
Jónsson, Jóhann Hafstein og
Gylfi Þ. Gislason
Siðan ók likfylgdin af stað,
og fóru fyrir henni fjórir lög-
regluþjónar á bifhjólum. Ekið
var um Skólabrú og Lækar-
götu, og siðar sem leið lá að
Fossvogskapellu. Þar báru
félagar úr Frimúrareglunni
kistuna inn i kór og þeir
Sigurður Isólfsson og Þor
valdur Steingrimsson léku
tvö sorgarlög. Viðstaddir
þessa stuttu látlausu athöfn
voru aðeins nánust vinir og
ættingjar herra Ásgeirs
Ásgeirssonar fyrrverandi for-
seta tslands.
28 Blómakransar
Meðan á allri athöfninni stóð
var kistan sveipuð islenzka
fánanum og við hlið hennar i
krikjunni var komið fyrir
blómum og krönsum, sem
borizt höfðu frá þjóðarleið-
togum og félagasamtökum. I
allt voru kransarnir 28 talsins,
og var hinzta kveðja til hins
fyrrverandi forseta rituð á
borða þeirra, en kransarnir
komu frá eftirtöldum aðilum:
Forseta Islands, Rikisstjórn
Islands, Alþingi Islands,
Hæstarétti Islands Norrænu-
félögum á Islandi, Dan
mörku og Sviþjóð, Ólafi
Noregskonungi, Margréti
Danadrottningu Kekkonen
Finnlandsforseta, Heine-
mann, forseta sambandslýð-
veldisins Vestur-Þýzkalands,
Rikisstjórn Sviþjóðar, Rikis-
stjórn Danmerkur, banda-
riska sendiráðinu I Reykjavik,
Frimúrarareglu íslands, Fri-
múrareglu Noregs, Fri-
múrarareglu Danmerkur,
Frimúrarareglunni á Akur-
eyri, Reykjavikurborg, Sjálf-
stæðisflokknum, Iþróttasam-
bandi íslands, Slysavarna-
félagi Islands, Eimskipafélagi
Islands, Sambandi islenzkra
barnakennara, Braathens
fjölskyldunni i Noregi, Sigvald
M. Krag konsúl i Álaborg og
Juuranto aðalræðismanni
íslands i Finnlandi.
Útförin
ÖRUGGUR AKSTUR
á Austfjörðum
Um siðustu helgi voru haldnir
aðalfundir Klúbbanna
ÖRUGGUR AKSTUR á 3 stöðum
á Austurlandi. Á þessum fundum
voru m.a„ afhent um 80 viður-
kenningar- og verðlaunamerki
Samvinnutrygginga 1971 fyrir 5,
10 og 20 ára öruggan akstur.
Að venju voru umferðarmálin
heima fyrir eitt helzta umræðu
efni fundarmanna, og kom ber-
lega fram, að stjórnir klúbbanna
höfðu haft margháttuð afskipti af
þeim,enda þar um einn megintil-
gang samtakanna að ræða.
Gestur fundanna og aðalmál
flytjandi var Pétur Svein-
bjarnarson, framkvæmdastjóri
Umferðarráðs, en Baldvin Þ.
Kristjánsson félagsmálafulltrúi
sat einnig þessa fundi, tók til
máls og sýndi ameriska um-
ferðarslysamynd, sem vakt at-
hygli.
Að vanda voru allir boðnir vel-
komnir á fundina, en fundarsókn
var minni en ella vegna ein-
stærðar veðurbliðu fundar-
dagana. Alls staðar voru bornar
fram kaffiveitingar i boði
klúbbanna.
Stjórnir allra klúbbanna 3ja
voru endurkjörnar. Eru formenn
þeirra þessir menn.
Á FÁSKRÚÐSFIRÐI Jóhann
Antoniusson útgerðarmaður.
I NESKAUPSTAÐ Gunnar
Daviðsson bifreiðarstjóri.
Á EGILSSTÖÐUM Marinó
Sigurbjörnsson verzlunarstjóri á
Reyðarfirði.
Skar á víra
Framhald
af bls. 1.
búnir að hifa virahnifinn um borð,
þegar gripið var til hans aftur.
Þá höfðu varðskipsmenn verið á
siglinu i kring um togarann Wyre
Captain, sem var að veiðum á
sömu slóðum. Hlýðnaðist skip-
stjórinn á togaranum ekki fyrir-
skipunum óðinsmanna, svo aðför
var gerð að togaranum, og
heppnaðist hún að nokkru eða öllu
leyti eins og Hafsteinn Hafsteins-
son fulltrúi hjá Landhelgis-
gæzlunni orðaði það i gærkvöldi.
Þetta þýðir með öðrum orðum, að
annað hvort hefur verið skorið á
annan eða báða togvira Wyrc
Captain FD 228.
Meðan á þessum aðgerðum stóð
fylgdust bæði Miranda og þýzka
hjálparskipið Fridtjof ineð að-
gerðum Óðinsmanna, og einnig
einn brezkur togari.
Atta til tiu togarar hafa verið á
þcssum slóðum undanfarna daga
við veiðar, og hafa skipstjórar i
engu sinnt tilmælum Landhelgis-
gæzlunnar um að fara út fyrir 50
milurnar.
i gærkvöldi mátti hcyra hvar
skipsmcnn á Miröndu voru að
ræðast við um atburðinn og um
klukkan tiu var Miranda að sigla
upp að Kennedy FI) 139 og er ekki
óliklegt að skipstjórar hafi ætlað
að ræðast við um atburðinn aug-
litis til auglitis, en ekki um tal-
stöðvar skipanna i alþjóðar
áheyrn.
þeir kalla sig Rifsberja....
Rifsberja á fullri ferð
Stp—Reykjavík
Hljómsveitin Rifsberja er að
fara af stað aftur eftir nokkurt
hlé. Hún varð að hætta störfum
siðastliðinn vetur, vegna þess að
trommuleikara vantaði. Var þá
haldið i leit út fyrir landsteinana
og fundinn einn, ekki af lakara
taginu, i poppveldinu mikla,
Bretlandi. Er hér um mjög snjall-
an og þekktan náunga að ræða,
sem heitir Dave Dufort. Hann
hefur m.a. spilað með Crazy
World of Arthur Brown, East og
Eden, og einnig með mjög fræg-
um náunga i Bretlandi, Alex
Harvey. Þá hefur hann starfað
með þekktum session-köppum
eins og Gary Ryde og Strope-
mönnum. Hann hefur þvi mikil
sambönd i Bretlandi, sem geta
komiðsér vel fyrir hljómsveitina.
Hljómsveitin hefur æft af kappi
siðan Dave kom, eða tvær til
þrjár vikur. I næstu viku er ráð-
gert að halda konserta viðsvegar
um land, og i vetur hyggjast þeir
gefa út L.p.-plötu. Hefur hljóm-
plötufyrirtækið Island Record
m.a. sýnd þeim áhuga.
Hljómsveitina skipa sömu
menn og i sl. vetur auk Duforts,
eða þeir Tómas Tómasson, bassa,
Þórður Arnason, gitar, Jakob
Magnússon, orgel og pfanó og
Gylfi Kristinsson, söngvari, og
svo stórlaxinn Dave Dufort á
trommur.
...og þetta er garpurinn Dave i „aksjón”.
VarpUÖggíar heiífóður
Blandad hænsnakom
DANSKT ÚRVALSFÓÐUR FRÁ FAF
Samband isl. satnvinnufélaga
IN NFLUTNINGSDEILD