Tíminn - 24.09.1972, Qupperneq 1

Tíminn - 24.09.1972, Qupperneq 1
IGNIS FRYSTIKISTUR -Eí-j —J RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐJAN SIMI: 19294 Blysfarir og bálkestir gegn aðild Noregs að EBE Talið að sjá megi úrslitin fyrir á mánudagskvöld SB- ReykjaVik. í dag fer fram i Noregi þjóð- aratkvæðagreiðsla um, hvort landið skuli gerast aðili að Efnahagsbandalagi Evrópu eða ekki. Úrslit eru afar tvisýn og hefur verið mikil harka i baráttunni á báða bóga. Sið- ustu skoðanakannanir þykja þó benda til, að nokkru fleiri séu á móti aðild en með, en það kemur væntaniega i ijós strax um miðnætti i kvöld, en þá er talið að sjá megi úrsiitin, þó ckki liggi fyrir endanlegar tölur. Fyrstu tölur verða birtar um kl. 14 á morgun að isl. tima, en hinar siðustu, norðan úr Finnmörki^koma ekki fyrr en á þriðjudagsmorgun. Af utankjörstaðaratkvæð- um, sem þegar hafa borizt, er ljóst, að kosningaþátttaka er mjög mikil, mun meiri en i venjulegum kosningum og verði veður skaplegt kosn- ingadagana, er búizt vifv að næstum hver einasti þeirra, sem atkvæðisrétt hafa neyti hans. Alls eru það 2.647.000 manns. í Noregi eru 444 sveitarfélög og i 200 þeirra er kosið bæði i dag og á morgun. i hinum er aðeins kosið á morgun. Auk allra þeirra, sem starfa við kosningarnar sjálfar, má geta þess, að 300 manns sjá um það eitt að koma fréttum og kosningatölum sem fljót- legast á framfæri við almenn- ing. Eru til þess notaðir raf- magnsheilar og alls kyns tæki, sem eiga að tryggja, að þrátt fyrir miklu meiri kosninga- þátttöku, en áður eru dæmi til, komist allar upplýsingar út hraðar og greiðar en nokkru sinni. Þegar kjósendur koma á kjörstað, þurfa þeir að sýna persónuskilriki og siðan fá þeir seðla, sem á er prentað ,,já” og „nei”. Auðir seðlar eru einnig til reiðu, ef hinir prentuöu skyldu ganga til þurrðar. Athyglisvert er, að flest skuli benda til þess,að aöildin að EBE verði felld i Noregi, þegar tekið er tillit til þess, að rikisstjórnin og 90% blaða landsins eru henni fylgjandi. Rikisstjórnin hefur meira að segja lýst þvi yfir, að verði að- ildin felld, muni hún segja af sér. Þjóðarhreyfingin gegn aðild að EBE hélt á föstudags- kvöldið geysifjölmennan úti- fund i Osló. Mörg þúsund manns fóru blysför frtf Youngstorgi að ráðhúsinu, þar sem ræður kvöldsins voru fluttar. Gangan tók hálfa aðra klukkustund og fór allt mjög vel og friðsamlega fram, enda var áður en lagt var af stað dreift miðum til göngufólks, þar sem stóð, að umfram allt skyldi sýna virðulega rósemi og alls ekki hrópa slagorð. Þjóðarhreyfingin hafði og fundi viðar um landið sama kvöld , farnar voru blysfarir og kveikt i bálköstum. 1 norska sjónvarpinu var umræöuþáttur á föstudags- kvöldið og að sögn NTB- fréttastofunnar voru umræður harðar mjög, einkum um oliuna i Norðursjónum og þau ummæli Ferdinands Spaak, yfirmanns orkumála EBE, að öll Norðursjávarolia v.æri eign EBE.enekki einstakra landa. c u r f l r r f f f p Mörg þúsund andstæðingar aðildar Noregs fóru i mótmæiagöngu, og efndu ti útifundar i Osló á föstudagskvöidið, og var myndin tekin við upphaf göngunnar. (Simamynd NTB/UPI) Manstu fyrri jarðvist? Sigvaldi Hjálmarsson ræðir við Bandaríkjamann, sem leitar sannanna hér á landi. Sjá grein á bls. 6. Risalaxar úr Lárósi ÞÓ-Reykjavik. I fyrradag luku starfsmenn Veiðimálastofnunarinnar við rannsóknir á hreistursprufum, sem þeir gerðu á 10-12 punda löx- um frá eldisstöðinni viö Lárós. — Hreistursprufurnar sýndu, að þessir laxar voru allir eins árs gamlir úr sjó,og er þessi þyngd á löxunum alveg einstök. Vanalega er laxinn ekki þyngri en 6-7 pund, þegar hann kemur eins árs úr sjó. Veiðimálastofnunin rannsakaði nokkra laxa frá Lárósi, og út- koman var alltaf sú, að laxarnir voru eins ár, og ótrúlega þungir miðað við aldur. Semi dæmi má nefna, að tvö gönguseiði, sem gengu til sjávar 17 cm löng komu aftur inn rúm- lega ári seinna. Þá var annar lax- inn orðinn 74 cm á lengd og 5 kg. á þyngd, hinn laxinn var 78 cm á lengd og 5.6 kg á þyngd. Jón Sveinsson frá Látravik, sagði i viðtali við Timanaað hann hefði gert sér vonir um^að hann fengi eins árs lax úr sjó þetta stóran. Sagði Jón, að hann hefði gert tilraunir með að fá laxinn svona þungan i nokkur ár. Hann hefur skipt hrognum úr hverri hrygnu i fjögur ilát og frjógvað með sitt hvorum hængnum.Þessa' aðferð hafa þeir notaö við frjógvunina i Lárósi i auknum mæli undanfarið og árangurinn virðist ekki ætla að láta á sér standa. -kæli- skápar X>/MJÖbbtccUM^étoLfv. A/ RAFTÆKJADEILD Hafnarstræti 23 Símar 18395 & 86500 -/ Stuðnings- kortin seld — dgóðinn til landhelgissjóðs ÞÓ-Reykjavik. Norömenn senda okkur stanz- laus kort til stuðnings landhelgis- málinu. Munu Timanum hafa borizt um 1300 kort, og búast má við fleiri á næstunni. Alls munu um 4000 manns i Noregi hafa ritað nöfn sin á kort- in, og er þetta fólk úr öllum byggðarlögum Noregs og öllum stéttum. Á kortunum sést þvi vel, hve mikinn stuðning lslendingar eiga i landhelgismálinu i Noregi. Nú er komið á daginn, að safn- arar eru farnir að fá ágrind á þessum kortum, enda er ha'pið, að þau komi i mikið meira en 2 þúsund eintökum. Mjög margir hringdu á ritstjórn Timans i ga'r og i fyrradag og spurðu, hvort hægt væri að fá kortin.eða ein- hvern hluta af þeim, og vildu sumir borga vel fyrir, þótt ekki væri um að ræða nema örfá ein- tök. óllum þessum bónum var synj- að, og við hér á Timanum hölum helzt hugsaö okkur að selja kort- in, þegar vitað er að öll eru komin til landsins. Ætlunin er, að allur ágóði af sölu þeirra renni þá til landhelgissjóðsins. Tvær trillur sukku í Reykjavíkurhöfn Klp-Reykjavik. laugard. I gærkveldi og nótt var nokkuð hvasst i Reykjavik og gerði þá nokkra kviku við höfnina. Tvær trillur, sem þar lágu þoldu þetta ekki og hálffylltust af sjó. Sökk önnur þeirraen hin maraði i hálfu kafi^þegar að var komið. Eigend- ur þeirra komu fljótlega á vett- vang og náðu þeim upp litið skemmdum. Guðni Þórðarson, forstjóri Ferðaskrifstofunnar Sunnu: „Spánarfluginu forklúðrað af íslenzku flugmálastjórninni” Sjá grein á bls. 15

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.