Tíminn - 24.09.1972, Blaðsíða 13
Sunnudagur 24. september 1972
TÍMINN
13
„Guðfaðirinn” kominn til landsins
— sýningar hefjast í næstu viku
Þannig er „typan” sköpuð. Hinn
ungi. íjönnikli Brando útbúinn
fyrir scnurnar sem hinn gamli,
veiki og þreytti Don Corleone.
Myndirnar skýra sig sjálfar.
Fórnardýri^b’. Sonur guðföðurins, Sonny, skotin i sigti meö vélbyssukúlum.
Hann sezt að i borgarhverfi
italskra innflytjenda i New York,
og brátt og eins og fyrir tilviljun
dregst hann inn á svið glæpaverk-
anna, þar sem hann skipar æðsta
sess innan skamms.
Aðspurður um það, hvort
myndin hefði ekki verið dýr i inn-
kaupi og miklu dýrari en aðrar
myndir, sagði Friðfinnur Ólafs-
son, forstjóri Háskólabiós, að svo
væri að sjálfsögðu, en vildi ann-
ars ekki gefa upp, hve dýr hún
var.
En þegar dauðinn heltekur hann, er sem eitthvað af hinum gamla
ógnarstyrk og krafti Mafiuleiðtogans snúi til baka — og hann tekur
griðarátak gegn hinum ósigrandi fjandmanni.
Vandamál innan fjölskyldunnar: Dóttir guðföðurins, Connie, barin af
manni sinum og reynir að verja sig.
Stp-Reykjavik
Hin langþráða mynd, Guðfaðir-
inn, er komin til landsins, og
verður farið að sýna hana upp úr
næstu mánaðamótum. Eftir er að
setja við hana texta, sem tekur
svona tiu daga, og þá hefjast sýn-
ingar á henni.
Myndin hefur gengið svo stór-
kostlega, að það hefur engin
mynd gengið eins frá upphafi.
Hún hefur slegið allt út i Banda-
rikjunum, og i Bretlandi hefur
hún slegið öll met, enda þótt hún
hafi aðeins verið sýnd þar i hálfan
mánuð. Myndin er byggð á sam-
nefndri metsölubók eftir Mario
Puzo, og kom hún fyrst út árið
1970. Hún greinir frá baráttu
fimm Mafiufjölskyldna i New
York og gerist að mestu upp úr
siðasta striði. Hinn greinda, hæg-
láta og mjög svo volduga Guðföð-
ur, höfðingja einnar fjölskyldunn-
ar, leikur Marlon Brando, og hef-
ur hann hlotið mikið lof fyrir
frammistöðu sina.
Guðfaðirinn er maður, sem all-
ir óttast, sumir hata og aðrir
elska. Hann hefur um sig geysi-
legt lið sauðtryggra manna, sem
hann hefur náð á sitt vald með
ýmsum greiða. Þessum mönnum
sýnir hann ævarandi tíyggð og
vináttu, svo fremi þeir svikja
hann ekki. Æðsti heiðurinn, sem
nokkrum i þjónustu hans getur
hlotnazt, er að eiga hann að guð-
föður. Hann lætur aldrei i ljós,
hvernig honum er innanbrjósts,
sýnir aldrei svipbrigði bræði
sinnar. Hann vinnur hægt og i
kyrrþey.
Inn i söguna léttast ótal atvik,
hinar ýmsu ástriður manna,
skapbrestir og veilur, sorg og
gleði. I heild er sagan snilldar-
verk að minum dómi, og virðist
lýsa af náinni reynslu starfsemi
hinnar amerisku Mafiu, Cosa
Nostra. Hún er ameriskt fyrir-
brigði, samofin amerisku þjóðlifi
i hinum ýmsu myndum þess,
fyrirbrigði, sem trauðla verður
upprætt. Hún hefur fleiri þing-
menn á bandi sinu og mútar lög-
reglumönnum i hrönnum. Hún
sýnir raðir af skemmtistöðum,
spilavitum og veðmálaskrifstof-.
um, og ófáar stjörnurnar eru að
miklu leyti taldar eiga henni
frama sinn að þakka.
Guðfaðirinn hafði miklar mæt-
ur á guðsyni sinum, Johnny Fon-
tane, og kom honum á toppinn að
lokum.
Eftir öllu að dæma hefur leik-
stjórum og leikurum tekizt að ná
magnþrunginni spennu og
„sjarma” sögunnar og er það vel
af sér vikið, þegar um svo við-
kvæmt og vandmeðfarið efni er
að ræða.
Hún verður að sýna Guðföður-
inn Corloeone, ,,the great Don”
og syni hans Sonny, hinn krafta-
mikla en fremur vitgranna, og
Michael, heilann, sem er eftir-
mynd föður réttu ljósi með
tilliti til aðstöðu þeirra i þjóð-
félaginu og ægivalds þeirra.
Einnig verða að koma fram þær
aðstæður, sem upphaflega lágu
að baki þess, að „itölsku
bandittarnir”, sem flestir komu
frá Sikiley, lögðu úti stórfellda
glæpastarfsemi, er þeir komu til
U.S.A. sem innflytjendur og
hvernig þeim tekst að halda þvi
uppi.
Af fleiri skemmtilegum persón-
um má nefna aðalráðgjafa
Guðföðurins, tryggðatröllið Tom
Hagen, lifverðina Clemenza og
Paul Gallico, Michael og unnustu
hans Kay West, sem berst inn i
hringiðuna frá smáborgaraheim-
ili.
Guðfaririnn, Vito Corleone,
flyzt um tólf ára gamall frá
Sikiley til U.S.A., en Mafian á
Sikiley hafði drepið föður hans.
Gamla kempan fellur þungt til jarðar innan um tómatplönturnar. Þessi
áhrifamikla scna Marlon Brando hefur komið heiminum á annan end-
ann.