Tíminn - 24.09.1972, Síða 19
Sunnudagur 24. september 1972
TÍMINN
19
Vegfarandi fyrir bílum sem
lentu f árekstri
Klp-Reykjavik. laugard.
t morgun. milli kl. 10.00 og 10.30
urðu tveir harðir árekstrar i aust
urbænum i Reykjavik og voru
menn fluttir á slysadeildina frá
þeim báðum.
Annar áreksturinn varð á horni
LönguhliðarogHáteigsvegar^ar
ók bifreið inn i hliðina á annari
með þeim afleiðingum að hún
snérist i a.m.k. einn hring á göt-
unni og skall á vegfaranda, sem
stóð á gangstéttinni. Kastaðist
maðurinn, sem var nokkuð við
aldur. út á götuna og mun hafa
meiðzt illa, m.a. á höfði.
Hinn áreksturinn varð á mótum
Safamýrar og Háaleitisbrautar.
Var hann mjög harður að sögn
lögreglumanna sem komu á stað
inn. Var ökumaður annarar
bifreiðarinnar fluttur á Slysa-
deildina,en meiðsli hans voru ekki
talin alvarleg.
Þá varð telpa fyrir bil i gær-
kveldi viö Réttarholtsskóla og
mun hún hafa fótbrotnað.
Bernharður arbTshl‘1'iJ
og leiki barna. Hvaða leikföng
hentuðu hverju aldursskeiði og
hvernig heppilegast væri að leika
við börnin. Þar kom lika söng-
kennari og þar var talað um
kvöldvökur á heimilum. Og sið-
asta kvöldið var rætt um trúar-
uppeldi barnsins.
i staö gömlu kvöldvökunn-
ar.
— Hvað sögðu menn um kvöld-
vökurnar?
— Það var stungið upp á þvi, að
fólk notaði fimmtudagskvöldið,
þegar sjónvarpið er ekki, til þess
að vera saman i einu herbergi. öll
fjölskyldan. Menn ættu ekki að
lofa sér út á fund það kvöldið,
heldur vera heima og tala saman,
lesa eitthvað hver fyrir annan og
svo framvegis.
— Já, væri það ekki ráð, að við
notuðum dálitið betur en við ger-
um, þetta eina kvöld. sem okkur
er hlift við þvi að horfa á mis-
góðar biómyndir?
— Ég er nú mikill áhugamaður
um sjónvarp. og vil ekki láta tala
illa um það! Hitt er annað mál, að
menn verða að velja úr þvi efni,
sem þar er á boðstólum, en ekki
glápa á alla skapaða hluti. En
sjónvarpið gæti lika komið okkur
þar til hjálpar. Mér er kunnugt
um, að i Fóllandi er sá háttur á
haföur. að fyrri hluta kvölds er
flutt sjónvarpsefni, sem er við
hæfi allrar f jölskyldunnar. En svo
kemur þulurinn og segir: Jæja,
nú er kominn háttatimi fyrir litlu
börnin, og nú verður ekkert sjón-
varpað næstu tiu minúturnar. Þá
er hægt að fara með börnin i hátt-
inn. Þá þarf ekki að draga þau frá
einhverjum æsandi atriðum, sem
þau eru alveg að missa af, og allt
gengur miklu friðsamlegar fyrir
sig en ella. Ég er þess alveg full-
viss, að þvi yrði vel tekið, ef sjón-
varpið hérna tæki upp eitthvað
þessu likt.
En þegar barnið fer frá sjón-
varpinu og inn i barnaherbergið,
þarf það að eiga i vændum
skemmtilega stund þar. Þeir for-
eldrar, sem ekki sitja hjá börnum
sinum i róog næði, um leið og þau
fara i rúmið, svikja bæði börnin
og sjálfa sig um mjög dýrmæta
reynslu. Þau eiga að tala við
börnin um atburði dagsins, lesa
fyrir þau og siðan fara með eitt-
hvað fallegt með þeim á meðan
þau eru að hverfa inn i svefninn.
Ef manni tekst ekki að mynda
trúnaðarsamband við barn sitt á
þessum árum, þá fær maður það
ekki seinna. Það er meira en litið
átakanlegt, sem einn ungur piltur
sagði einu sinni við mig: ,,Pabbi
hafði aldrei neinn tima fyrir mig,
fyrr en ég var orðinn afbrota-
piltur, þá hafði hann ailt i einu
nógan tíma”. En þá var það bara
orðið of seint.
— Nú höfum við glatað kvöld-
vökunum okkar. en ekki fengið
neitt i staðinn.
— Þetta er ekki alveg rétt hjá
þér. Við höfum, jú, glatað bað-
stofunni með sinni kvöldvöku, en
við höfum reyndar fengiö nokkuð
i staðinn — nokkuð, sem fáum
dettur i huga að óathuguðu máli.
— Hvað er það?
— Það er sunnudagsbiltúrinn.
Hann er oft eina stundin. sem
fjölskylda borgarbúans er öll
saman komin á einum stað.
Faðirinn ekur og segir börnunum
sinum frá þvi. sem fyrir augu ber.
Það er jafnvel ekki óalgengt, að
allir i bilnum taki lagið, og þar
sem söngur fer fram. þar er sam-
hugur. Billinn er lokaður og
þarna kemst ekkert að til þess að
trufla samstillingu fjölskyld-
unnar. En þrátt fyrir sunnudags-
bilferðina held ég, að fólk ætti að
gera sér það að reglu, að bókstaf-
lega taka frá eitt kvöld i viku og
helga það fjölskyldunni alger-
lega.
— Má ég spyrja þig mjög
persónulegrar spurningar?
— Gerðu svo vel.
— Finnst þér ekki heillandi að
vinna að æskulýðsmálum?
— Jú heillandi er það, en það er
mjög krefjandi. Ungt fólk er mjög
opið. Það er ekki búið að fá
þessa grimu, sem við, hin eldri,
höfum sett upp. Unga fólkið er
ekki bundið af eins mörgum
hömlum og hinir eldri. Það getur
rætt opinskátt og af einlægni um
vandamál sin, til dæmis á sviði
trúmála og hjúskapar. Nú getur
hver maður sagt Jesús án þess að
roðna, og svo mætti lengi telja.
Vissulega er erfitt að vera
unglingur núna. Ungu fólki leið-
ist, það kvartar um, að ekki sé við
neitt að glima og finnst þá lifið
tómlegt að vonum. En einmitt af
þvi að þetta unga fólk hefur aldrei
kynnzt öðru en velmegun, finnst
mér liklegt, að það leiti sér ann-
arra verðmæta en þeirra efnis-
legu.
—- Getur verið.
— Já, sjáðu til. Það fólk, sem
nú er komið á miðjan aldur eða
meira, fólkið, sem ólst upp i torf-
bæjum og lifði ógnir kreppu og
allsleysis, það er meira en von, að
hugur þess sé að mestu bundinn
þvi brýna verkefni að vera nokk-
urn veginn öruggur fjárhagslega.
Það var blátt áfram lifsnauðsyn
að eiga þak yfir höfuðið og að búa
við atvinnulegt öryggi.
En mannkynið hættir aldrei leit
sinni að lifshamingju, sú leit er
okkur ásköpuð. Ég hef þá trú, að
það fólk, sem ekki hefur þurft að
heyja örvæntingarfulla baráttu
fyrir brýnustu lifsnauðsynjum,
muni leita sér lifsfyllingar i ein-
hverju, senj æðra er en fallegt
steinhús og gljáfægður bill.
—VS.
«<rjandsins grróðnr
- ydar hróðnr
iÖNAÐARBANKI
ÍSLANDS
Auglýsingasímar
Tímans eru
Frystiskápar og kistur
í úrvaii frá Bauknecht
(Bauknecht
veit hvers konan þarfnast
* Fljót og örugg frysting.
* Öruggar og ódýrar í rekstri.
* Sérstakt hraðfrystihólf.
* Einangraðar að innan með áli.
* Eru með inniljósi og læsingu.
* 3 öryggisljós.sem sýna ástand tækisins
og margir fleiri kostir.
Greiðsluskilmálar eða staðgreiðsluafsláttur.
Leitið upplýsinga strax.
Samband íslenzkra samvinnufélaga
VÉLADEILD
Ármúla 3 Reykjavík sími 38900
STJORNUNARFRÆÐSLAN
(Kynningarnámskeið um stjórnun fyrirtækja)
Á vetri komanda mun Stjórnunarfræðslan halda tvö námskeið i
Reykjavik á vegum iðnaðarráðuneytisins. Fyrra námskeiðið
hefst 2. október og lýkur 10. febrúar 1972. Siðara námskeiðið hefst
15. janúar og lýkur 26. mai 1972. Námskeiðið fer fram i húsakynn-
um Tækniskóla íslands, Skipholti 37, á mánudögum, miðvikudög-
um og föstudögum, kl. 15:30 til 19:00.
Námskeiðshlutar verða eftirfarandi:
Undirstöðuatriði almennrar
stjórnunar
Frumatriði rekstrarhagfræði
Framleiðsla
Sala
Fjármál
Skipulagning og hagræðing
skrifstofustarfa
Stjórnun og starfsmannamál
Stjórnunarleikur
Fyrra námskeið Siðara námskeiö
2. okt. — 6. okt. 15. jan. — 19. jan.
9. okt. — 20. okt. 22. jan. — 2. febr.
30. okt. — 10. nóv. 12. febr. — 23. febr.
13., nóv. — 24. nóv. 26. febr. — 9. marz
27. nóv. — 15. des. 19. marz — 6. april
17. jan. — 22. jan. 30. april — 4. mai
22. jan. — 9. febr. 4. mai — 23. mai
9. febr. — 10. febr. 25. mai — 26. maí
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu Stjórn-
unarfélags íslands, Skipholti 37, Reykjavik. Simi 82930. Umsóknir
þurfa að berast fyrir 28. september 1972.