Fréttablaðið - 14.05.2004, Blaðsíða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Opnunartíminn er 08-18 alla virka daga • 10-16 Laugardaga 13-17 • Sunnudaginn 15.05.04 (Aðeins þennan eina sunnudag).
Gönguskór
-20%
Flíspeysur
-20%
Barnaflís
-20%
Jakkar
-20%
Svefnpokar
-20%
Gildir í Faxafeni til 20. maí 2004
Ný verslun í Faxafeni 12
20% afsláttur af öllu vörum!
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
´
M
A
C
K
S
11
5
1
Ég hef aldrei verið sérstak-lega staðfastur maður.
Alltaf þegar einhver stingur
upp á bíó, þá slæ ég til. Ef ein-
hver stingur upp á bjór, þá er
ég maður. Ég fer um lífið eins
og lauf í vindi. Fýk út um allt.
Samt kem ég hlutum í verk, jú
jú, mikil ósköp. Stundum. Ég er
ánægður með sveimhugahátt-
inn og tel hann auka gildi lífs-
ins. En því er ekki að neita að
manni hefur stundum fundist
maður vera hálf utanveltu á
þessum tímum þegar staðfastir
menn virðast öllu ráða.
ÉG SEGI og skrifa. Frekar vil
ég forseta Bandaríkjanna sem
potar vindli í frístundum upp í
sköp hjákonu sinnar heldur en
forseta sem sendir innrásarlið til
annarra landa til þess að pota
kústskafti upp í afturendann á
stríðsföngum. Ólíkt hafast þeir
að. Sá fyrri var ekki mjög stað-
fastur – óborganlegur sveimhugi
– en sá síðari stærir sig af stað-
festunni og segist trúa á Guð.
HVERS VIRÐI er staðfestan ef
hún snýst einkum og sér í lagi
um það að draga saklaust fólk um
allsbert í hundaólum og taka af
því myndir? Hvað þá ef hún
snýst um það að stafla því alls-
beru í hrúgu? Og svo er það hluti
af staðfestunni að forðast í
lengstu lög að axla nokkra
ábyrgð. „Við komum þeim vonda
manni Saddam Hussein frá!“
segja menn nú. „En hvað með
pyntingarnar þessa dagana?“ er
spurt. „Jú, afsakið það, en við
komum þeim vonda manni
Saddam Hussein frá!“
VIÐ ERUM að gera góða hluti,
segir Bush. Og hér eru menn líka
að gera góða hluti. Skera niður í
heilbrigðiskerfinu. Út með sjúk-
lingana. Það er ein staðfestan.
Koma Norðurljósum út úr biss-
ness. Það er ein staðfestan. Borða
matinn sinn á bak við skilrúm og
muldra „Jón Ásgeir, Jón Ásgeir“.
Þar er nú ein staðfestan. Stað-
fastir menn eru hvarvetna. Það
vantar ekki. En er það endilega
gott? Ég segi: Staðfesta er ofmet-
in. Það er staðfest. ■
Bakþankar
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
Staðfastir
menn
72 (52) bak 13.5.2004 20:29 Page 2