Tíminn - 28.09.1972, Síða 1
I F GNIS RYSTIKISTUR
]
úMS&y RAFTORG SlMI: 26660 RAFIÐJAN SÍMI: 19294
ZJ/wn ftnrtAAÁCasi. A/
raftækjadeild
Hafnarstræti 23
Símar 18395 & 86500
,í nafni skólans ertu sklrður, busi minn” — engin miskunn hjá Magnúsi.
- Sjá myndir og frásögn á 16. sfðu. Ljósm. TIMINN — Róbert.
Busar skírðir
„Tíu umslög, þakka þér fyrir,,
Það kemst alltaf kvik á ein-
hverja, þegar gefin eru út ný
frimerki, og mest gætir þess
samt, þegar frimerkin eru
tengd óvenjulegum atburðum,
er menn ætla, að viða verði
eftir tekið og lengi höfð i minn-
um.
Tvisvar hafa i sumar verið
gefin út frimcrki af þessu tagi
— taflfrimerkið og landhelgis-
frimerkið, sem út kom i gær.
Veður var gott i Reykjavík,
aldrei þessu vant nú i haust,
og var verzlað með fyrsta-
dagsumslög á götuhornum i
miöbænum. A myndinni hér til
hliðar sést Óli blaðasali hjálpa
vegfarendum um fáein
umslög.
Alþjóðahafrannsóknarráðið:
Síldin í Norður-
■ w
sjo er í hættu
- minnka verður veiði um 25 til 50%
Samtökin og Alþýðuflokkur-
inn undirbúa sameiningu
t gær barst Timanum frétta-
tilkynning frá viðræðunefnd
þeirri, sem Alþýðuflokkurinn og
Samtök frjáislyndra og vinstri-
manna hafa skipað til þess að
ræða og kanna, hvort tiltækilegt
sé að steypa þessum flokkum
saman í eitt. Ber fréttatilkynning
með sér, að nú er að komast
skriður á þetta mál, og er þvi
beint til flokksþinga beggja aðila,
að þau lýsi yfir fylgi sinu við slik-
an samruna og marki þá stefnu,
aö sameining hafi framgang fyrir
næstu þingkosningar.
Fréttatilkynning er undirrituð
af tiu mönnum, sem sæti eiga i
viðræðunefndinni — Gylfa Þ.
Gislasyni, Benedikt Gröndal,
Björgvin Guðmundssy ni,
Kjartani Jóhannssyni og örlygi
Geirssyni frá Alþýðuflokknum og
Hannibal Valdimarssyni, Alfreð
Gislasyni, Bjarna Guðnasyni,
Birni Jónssyni og Halldóri S.
Magnússyni. Flokksþing þau,
sem viðræðunefndin skirskotar
til, verða bæði haldin innan
skamms — flokks Samtaka
frjálslyndra og vinstrimanna
hefst á morgun, en flokksþing Al-
þýðuflokksins 20. október.
Fréttatilkynning er i heild á
þessa leið:
„Viðræðunefndir, sem stjórnir
Alþýðuflokks og Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna hafa kos-
ið, eru sammála um að beina þvi
til flokksþinga þessara flokka, að
þau samþykki ályktun um að
sameina beri alla lýðræðis-
sinnaða jafnaðarmenn á Islandi i
einum stjórnmálaflokki og lýsi
yfir vilja sinum til þess að gerast
aðilar að þeirri sameiningu. Sam-
einingin skal koma til fram-
kvæmda fyrir næstu almennar
kosningar i landinu.
Sameiningunni skal haga þann-
ig, að sem bezt verði tryggð aðild
allra þeirra stjórnmálasamtaka
og einstaklinga, sem aðhyllast
stefnu jafnaðar, samvinnu og lýð-
ræðis að hinum nýja flokki jafn-
aðarmanna.
Þing Alþýðuflokksins og SFV
samþykki að kjósa fulltrúa i sér-
staka nefnd, er annist lokaundir-
búning sameiningarmálsins.
Þegar undirbúningsnefndin
telur timabært, skal kalla saman
Frh. á bls. 6
NTB-Kaupmannahöfn.
Síldveiðar I Norðursjó verða að
minnka um 25% -50% árið 1973 frá
þvi sem verið hefur, ef nokkur
von á að vera til þess að hægt
verði að vinna upp þá minnkun,
sem orðið hefur á síldarstofninum
siðustu árin. Þetta segir I yfir-
lýsingu alþjóða hafrannsóknar-
ráðsins, sem gefin var út eftir
fund ráðsins i Kaupmannahöfn i
gær.
Þegar Norðaustur-Atlanzhafs-
fiskveiðinefndin kemur saman i
mai á næsta ári, verða sennilega
samþykktar aflatakmarkanir.
Þegar hefur verið bannað að
veiöa sild i Norðursjó hluta
ársins, en hafrannsóknarráðið
telur, að nauðsynlegt sé að tak-
marka veiðarnar enn meira, ef
takast á að bjarga stofninum.
I gær var lögð fyrir fund ráðsins
itarleg skýrsla um málið, gerö af
visindamönnum frá öllum þeim
löndum, sem sildveiðar stunda i
Norðursjó. Þar kemur fram, að
árið 1965 komu i land 1,5 milljónir
lesta af sild úr Norðursjó, en i
fyrra var magniö aðeins 650 þús.
lestir. Þessi munur er ekki talinn
stafa af veiöitakmörkunum,
heldur minnkun stofnsins.
Greinilegt er að of hart er
gengið aö sildarstofninum Aður
var það stór sild.sem veiddist, en
nú orðið er þaö bara ung og smá
sild, sem kemur á land. Auk þess
hefur veiðisvæðið færst til, af -
óþekktum orsökum.
A6 lokum segir i yfirlýsingunni,
að ef haldið verði áfram að veiða
Norðursjávarsildina eins og verið
hefur, komi að þvi að varla fáist
nokkur æt sild, þótt ekki sé hægt
að tala um að Norðursjórinn verði
gjörsamlega tæmdur.
Hass í
Brúarfossi
KIp-Reykjavik.
I gær fundu tollverðir I Reykja-
vik um hálft kfló af hassi um borö
I Brúarfossi, sem nýkominn var
frá Bandarikjunum. Fannst
varningurinn i herbergi þvi,þar
sem stýrisvél skipsins er, en þar
hafði verið brotizt inn um nóttina.
Þegar Brúarfoss kom til lands-
ins féll grunur á einn skipverja,
sem hafði hagað sér allundarlega
á leiðinni heim. Var gerð leit i
vistarverumhans, svo og á öðrum
stöðum i skipinu, þar sem hann
hafði aðgang. Ekkert fannst við
þessa leit, en þegar skipverjar
komu um borð i gærmorgun, kom
i ljós, að brotizt hafði veriö inn i
stýrisvél skipsins, og við leit þar
fannst svo böggull, sem hafði inni
að halda nær hálft kiló af hassi.
Er talið, að skipverjinn, sem er
ungur maður, hafi falið það þar,
en einhver hafi truflað hann, er
hann var að reyna að ná þvi um
nóttina og hann orðið hræddur og
skilið það eftir.
Dalvíkurvegurinn og Akureyrarhraðbrautin:
Dagsektir verktaka 2 millj.
SB-Reykjavik.
Norðurverk hf. á Akureyri hef-
ur nú i tæpa tvo mánuði orðið að
greiða tugi þúsunda i dagsektir
vegna tveggja verka, sem fyrir-
tækið tók að sér og gat ekki skilaö
á tilsettum tima. Þarna er um að
ræða hraðbrautarspottann marg-
umrædda við Akureyri og nýjan
vegarkafla við Fagraskóg. Hvoru
tveggja átti að vera lokið um
mánaðamót júli-ágúst, en enn er
unnið.
Dagsektirnar eru 2 0/00 af
samningsupphæðinni, og nema
þær 13.000 krónum vagna hrað-
brautarinnar, en tölur um hitt
verkið voru ekki handbærar á
vegamálaskrifstofunni i gær.
Gerð hraðbrautarinnar, sem ligg-
ur frá Höepfnersbryggju inn að
flugvallarvegi, um 2 km. hófst i
fyrrahaust, með þvi að mikið og
lengi var rutt til jarðvegi og mok-
að upp úr sjónum. Ekki fór hins
vegar að móta fyrir sjálfum veg-
inum fyrr en i febrúar sl. Þegar
svo hraðbrautin vær næstum full-
gerð, tók hún að siga, jafnvel svo
að sjór flaut yfir hana i stór-
streymi. En ráð hafði verið fyrir
þessu gert og úr þvi bætt.
Þess má geta, að i sambandi
viðhraðbrautþessa hafa Akureyr
ingar eignazt sinn „Arnagarð”.
Er það 300 metra langur grjót-
garður, sem byggður var þvert á
hraðbrautina og i sjó fram og
skyldi sá gegna hlutverki brim-
brjóts. Nafnið hefur garðurinn frá
forstjóra Norðurverks, Arna
Arnasyni. Nú er allt útlit fyrir, að
hraðbrautargerðinni ljúki um
mánaðamótin næstu, tveimur
mánuðum á eftir áætlun. Slitlag
verður siðan sett á brautina á
næsta ári.
Um vegarkaflann við Fagra-
skóg er það að segja, að hæpið er
að framkvæmdum við hann ljúki
fyrr en i næsta mánuði. Vegur
þessi liggur frá Hjalteyrar-
afleggjaranum út fyrir Rauðu-
vik. Innan við Fagraskóg liggur
hann neðan gamla vegarins, en
fer siðan upp fyrir hann i brekk-
unum út að Rauðuvik. Þarna
hefur orðið mikið rask og kvarta
bændur sáran yfir þvi, að þeir
komist tæplega leiöar sinnar, þvi
að gamli vegurinn sé orðinn mjög
illa farinn eftir þungavinnuvélar
NORÐURVERKS/ Hafa kvart
anir borizt vegamálaskrif-
stofunni, sem siðan hefur rætt við
Norðurverksmenn um úrbætur.
Úr þessu rætist þó vonandi
bráðlega, og enn betur seinna
meir, þvi i ráði er að endurbyggja
veginn allt inn að Hörgá, áður en
mjög langt um liður.