Tíminn - 29.09.1972, Page 5

Tíminn - 29.09.1972, Page 5
Föstudagur 2!). september 1972 TÍMINN Neðan við hamrana á miðri myndinni er sláturhúsið og þar fyrir framan leggja Flugfélagsmcnn flugvélunum i kjöll'lutningunum, svo vart er nema cinn ineter á milli vængbrodds og húss. Til hægri er „flugstöðin" á Fagurhólsmýri, en ibúðarhús og útihús staðarins efst á myndinui. (Tiinamyndir Kári) Kjötið handlangað úr geymslunni á vagn, en fyrir utan bíður „Faxi Kristján", og flytur afurðirnar til Reykjavikur. KJ-Reykjavik. Sláturhúsið á Fagurhölsmýri, stendur á milli Blesakletts og flugbrautarinnar, og ástæðan fyrir þvi, að þar hefur þvf verið valinn staður er eflaust sú að frá þvi haustið 1948, hefur kjöt og sláturafurðir úr öræfunum verið flutt flugleiðis til Reykjavíkur. Lengst af hafa „þristarnir” hjá Flugfélaginu liaft þetta árvissa verkefni, en i ár er kjöt og inn- matur flutt i fyrsta skipti í Fokker Fricndship skrúfuþotum Flugfél- agsins. Þegar þessir einstæðu loftflutn- ingar hér á landi hófust 1948, var öræfasveitin mun einangraðri en húner núna. Þá voru óbrúuð stór- fljót báðum megin sveitarinnar, og reyndar innan hennar lika. Nú eru aftur á móti greiðar sam- göngur við sveitina austan frá, og það hefur m.a. haft i för með sér, að öræfin eru nú á félagssvæði Kaupfélags Austur-Skaftfellinga á Höfn i Hornafirði, en voru áður á félagssvæði Kaupfélags Skaft» fellinga i Vik. En þrátt fyrir að nú séu greiðar samgöngur á landi við Höfn i Hornafirði, er ennþá sett upp loftbrú á haustin á milli Fagurhólsmýrar og Reykjavikur. Núverandi sláturhús á Höfn myndi vart geta tekið við fé til slátrunar úr öræfum, og frysti- geymslur fyrir kjöt eru af skornum skammti á Höfn, en með nýju frystihúsi rætist væntanlega úr þvi. ÞA VAR KJÖTIÐ SALTAÐ Þorsteinn Jóhannsson bóndi á Svinafelli er sláturhússtjóri á Fagurhólsmýri, og er blaða- maður Timans brá sér þangað austur i gærmorgun, sagði Þorsteinn frá ýmsu i sambandi við slátrun og kjötflutninga þeirra öræfinga. Þorsteinn sagði.að fyrst hefði verið slátrað á Fagurhólsmýri árið 1928, og stóð þá sláturhúsið töluvert austar en núverandi hús. Arið 1948 hófust loftflutningarnir, og árið 1958 var núverandi slátur- hús tekið i notkun. En hvernig var svo kjötið geymt og flutt áður en loftbrúin kom til sögunnar? — Jú, þá var kjötið saltað i tunnur og flutt þannig á markað. 1 fyrstunni var þvi skipað um borð i skip, sem lögðust við akkeri skammt undan sandströndinni al- ræmdu, og á þeim timum kom það fyrir að geyma yrði kjötið i öræfunum i heilt ár, þvi að ekki er alltaf hægt að fara á milli skips og lands þarna við hafnlausa Suðurströndina. Þegar geyma þurfti kjötið i heilt ár, þurfti að rifa það upp og umsalta, á miðjum vetri, til að forða þvi frá skemmdum. Reynt var að flytja saltkjöts- tunnurnar landleiðina frá Fagur- hólsmýri og vestur yfir sandana, en það þótti ekki gefast sem bezt, þvi að bæði var þetta þungur og erfiður flutningur. En það er ekki aðeins að kjöt- skrokkar og innmatur hafi verið fluttur flugleiðis frá Fagurhóls- mýri, þvi þegar fjárskiptin stóðu yfir vegna mæðiveikiniður- skurðarins, var fé flutt á fæti flugleiðis úr öræfunum. Þetta eru nokkur atriði frá lið- inni tið um kjötflutninga þeirra öræfinga. Það hefur vist oft verið sagt, „að þetta er siðasta haustið sem loftflutningarnir fara fram,” en samt halda þeir áfram, og ekki vildu þeir öræfingar, sem blaða- maður ræddi við i gær, fullyrða neitt um það, að þetta væri siðasta haustið, heldur mátti á þeim heyra, að enn ættu þessir loftflutningar eftir að fara fram. VINNA IIEFST KLUKKAN FJÖGUR A MORGNANA. Aður en öræfin komust i vega- samband við þjóðvegakerfi landsins, urðu þeir i sláturhúsinu á Fagurhólsmýri að vera við þvi búnir að salta kjötið sem til féll, ef flug féll niður þann daginn. Nú aftur á móti sagði Þorsteinn að i neyðværi sjálfsagt hægt að koma. þessum 300 skrokkum, sem til falla á hverjum sláturdegi, i frysti á Höfn. Þorsteinn fræddi blaðamann á þvi, að vinna hæfist i sláturhús inu klukkan fjögur á morgnana, og er þá byrjað á þvi að búa kjötið til flutnings, vigta og setja i grisjupoka, en um klukkan tiu þarf þvi að vera lokið, þvi þá kemur flugvélin að sunnan. I hverri ferð með Fokker Friend- ship vélunum eru flutt um fimm tonn af áburði, en alls mun um einn þriðji af áburðinum i öræfin vera flutt loftleiðis. Það þarf þvi að byrja á þvi að afferma flugvélina, sem gengur nokkuð fljótt fyrir sig, þvi að þarna eru vanar hendur að störfum. Þegar áburðurinn er kominn á bil, er vélin hreinsuð, og kjötinu siðan staflað i stólalaust farþegarýmið. Reiknað er með 300skrokkum, hausum og innmat i hverri ferð, en i gær voru þó skrokkarnir 10 færri en venju- lega, þvi að gera þurfti ráð fyrir tveim blaðamönnum við ferm- ingu vélarinnar. Ferðin i gær var sú fimmta á þessu hausti, en alls má gera ráð fyrirum 15ferðum, þvi Þorsteinn bjóst við að 3.700 - 4.000 fjár yrði slátrað á Fagurhólsmýri i haust. KASKEITUNUM SLEPPT Friendship vélin, sem er i þessum flutningum i haust, er „Faxi Kristján”, og þetta kjöt- flug hlýtur að vera svolitil til- breyting frá hinu venjulega far- þegaflugi. Flugstjórinn i gær var Geir Garðarsson og flugmaður Sigurður Elli Guðnason. 1 kjöt- fluginu sleppa þeir bindum og kaskeitum, en klæðast gjarnan is- lenzkum lopapeysum, þvi að það getur verið kalsamt að biða i nærri tvo tima á Fagurhólsmýri á meðan afferming og ferming á sér stað. Skýjahæðin var nú ekki mikið meira en 11-1200 fet i gær, og blindflug alla leið úr Reykja- vik og að Skarðsfjöruvita. Þá loks komum við niður úr skýjaþykkn- inu, og það fyrsta, sem við blasti var Núpsvatnaósinn. Siðan var liogið sjónflug beinustu leið i átt- ina að Fagurhólsmýri, og lent þar i austan vindi með áburðarfarm- inn. Skyggnið á Fagurhólsmýri var nú ekki meira en það, að Ingólfshöfði sást ekki i mestu skúrunum, en um það leyti sem afferming hófst, stytti ’ann upp, og hélzt þurr þar til búið var að l'erma vélina 300 vænum dilka- skrokkum. Það var ekki til setunnar boðið, hjá bændum og búaliði, sem verið höl'ðu við störf frá þvi klukkan fjögur um morguninn, þvi að rétt fyrir tólf luku þeir við aö afgreiða vélina, og eftir hádegið átti slátrun að hef jast, og stendur hún venjulega yfir fram að kvöldmat. Um 35 manns vinnur i sláturhús- inu þegar slátrað er, en ekki er þar þó alltaf sama fólkið, svo alls munu um 60 manns komast á launaskrá hjá Þorsteini slátur- hússtjóra á hverju hausti. 27,4 KÍLÖA DILKUR Við fyrstu sýn, virðist meðal- vigtin ætla að verða nokkuð góð hjá öræfingum i haust, þrátt fyrir að margt var tvilembt hjá þeim i vor. Þá kom nú á dögunum þyngsti dilkur, sem komið hefur i sláturhúsið á Fagurhólsmýri, og vóg hann hvorki meira né minna en 27.4 kiló. Eigandi dilksins hann Ingimundur Gislason á Hnappa- völlum, sagði, að dilkurinn hefði gengið á Brimfjalli i sumar. Það er ekki til setunnar boðið, þvi i Reykjavik biða kjötbilar frá Sambandinu eftir dilka- skrokkunum austan úr öræfa- sveit. Þegar Sigurður Elli flug- maður hefur fengið upp veður og annaö hjá Oddi Jónssyni, flugaf- greiðslumanni og útibússtjóra kaupfélagsins, er haldið vestur á brautarendann, og i bakaleiðinni kemur það i hlut blaðamanns Timans að vera spenntur niður i salernisklefa flugvélarinnar, en á austurleiðinni var það sætið á milli flugstjóra og flugmanns, sem hann yljaði, og fékk þar góða yfirsýn yfir vandasamt starf flug- mannanna. KR. 4.05 A KÍLÓIÐ Eðlilegt er að margir spyrji nú, hvað þessir flutningar kosti. Samkvæmt upplýsingum Einars Helgasonar yfirmanns innan- landsflugs Flugfélagsins, þá er gjaldið i ár kr. 4.05 á kilóið, en til samanburðar þá er venjulegt lægst gjald fyrir kilóið á þessari flugleið fimm krónur, og hæsta gjald kr. 6.60. Þetta haustgjald er við það miðað, að vélin sé full- fermd báðar leiðir, en vél sú, sem tekin er til þessara flutninga, getur litlu öðru annað i um tvær vikur, nema um sé að ræða vöru- flutningaflug til annarra staða á landinu. Yzt til vinstri er Geir Garðarsson flugstjóri, þá Sigurður Elli flugmaður, Þorsteinn Jóhannsson slátur- hússtjóri og starfsfólk i sláturhúsinu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.