Tíminn - 29.09.1972, Qupperneq 8
8
TíMINN
Föstudagur 29. september 1972
Nýtt 30 milljón kr. félagsheim-
ili tekið í nofkun í Grindavík
Þeir, sem aka á
BRIDGESTONE snjódekkjum, negldum
með SANDVIK snjónöglum,
komast leiðar sinnar í snjó og hálku.
Sendum gegn póstkröfu um land ailt
Verkstæðið opið alla daga kl. 7.30 til kl. 22,
J.
SKIPHOLTI 35 REYKJAVÍK SÍMI 31055
Nýja félagsheimiliöí Grindavík er reisuiegt hús og myndarlegt eins og sjá má.
Ein mynda Kagnars Kjartanssonar i anddyrinu. Máfarnir svifa yfir fiskibátum á veiðum, tákn um aðal-
atvinnuveg Grindvikinga.
Viðskiptaráðuneytið.
Sendisveinn óskast
Viðskiptaráðuneytið vill ráða sendi-
svein eftir hádegi. Þarf að hafa reiðhjól.
Upplýsingar veittar i viðskiptaráðu-
neytinu, Arnarhvoli, simi 25000.
ikmmmmmmmm
Til sölu
þriggja fermetra
k e t i 1 1 , m e ð
innibyggðum hita-
spiral.
Simi 21962.
Stp—Reykjavík.
Siðastliðið föstudagskvöld var
tekinn i notkun annar af tveim
áföngum við nýtt félagsheimili i
Grindavik. Þessi áfangi er fyrst
og fremst samkomusalur, sem
tekur 350 manns. Þá er einnig i
honum fundarsalur, bókaher-
bergi og annar minni samkomu-
salur fyrir 100 manns i sæti. i
siðari áfanganum, sem ekki er
enn vitað, hvenær kemst i gagnið,
verður aðstaða fyrir bió og leik-
starfsemi. Smáeidhús eru i sam-
bandi viö báða samkomusalina.
Byrjað var á byggingunni fyrir
fjórum árum. Sú kostnaðaráætl-
un, sem þá var gerð, stenzt að
sjálfsögðu ekki nú, en þegar hefur
verið byggt fyrir um 30 milljónir
króna.
Það samsæti, sem haldið var i
hinu nýja félagsheimili á föstu-
dagskvöldið 22/9, var ætlað þeim
hreppsbúum og öðrum, er eitt-
hvað hafa unnið við bygginguna,
og öllum þeim félögum, sem eiga
i húsinu. Það er fyrst og fremst
hreppsfélagið, en einnig kven-
félagið, sem átti gamla
félagsheimilið, er notað hefur
verið siðan 1930. Þetta var talið
ágætishús 1930, er það var byggt,
en þá voru i hreppnum 400 manns.
Nú er hreppsbúar, alls um 1300,
svo gamla húsið var orðið allt of
þröngt.
Auk áðurnefndra aðila eiga i
húsinu iþróttafélag, ungmenna-
félag og verkalýðsfélag i Grinda-
vik.
Á laugardags- og sunnudags-
kvöld, var haldin skemmtun fyrir
hreppsbúa i nýja félagsheimilinu,
sem hefur hlotiö nafnið Festv þar
sem þeim var einnig veitt tæki-
færi til að skoða það.
Þá ber að geta þess, aö i and-
dyri hússins eru glæsileg lista-
verk, sem Ragnar Kjartansson
myndhöggvari hefur gert. Eru
þetta svokallaðar rismyndir (lág-
myndir), sem mótaðar eru i
steypu á veggina. Skiptast mynd-
irnar i þrjár heildir. Er ein af sjó-
mönnum, sem eru að draga net,
önnur af fiskibátum, en sú þriöja
af æskufólki i boltaleik. Eru þess-
ar myndir staðnum mjög til
prýði, og óvenjulegar að gerð,
eftir þvi sem þekkist hér á landi.
Listamaðurinn gerði þær úr
steinleir heima á vinnustofu
sinni, og brenndi þær,áður en þær
voru settar upp.
Er þetta framtak Grindvikinga
til fyrirmyndar og verður von-
andi öðrum til hvatningar i
framtiðinni að prýða samkomu-
staði sina og aðrar stórbyggingar
góðum og varanlegum listaverk-
um.
Tilboð óskast
i nokkrar fólksbifreiðar, er verða sýndar
að Grensásvegi 9, þriðjudaginn 3. október
kl. 12-3.
Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl.
5.
Sölunefnd Varnarliðseigna.
Ingólfsstræti 2. Sími 13271.
ARISTO
léttir námið
Með aukinni stærðfræðikennslu og vaxandi
kröfum nútíma tækniþjóðfélags er sérhverjum
námsmanni nauðsynlegt að vera búinn full-
komnum hjálpargögnum við námið.
Aristo reiknistokkurinn er gerður fyrir náms-
fólk með kröfur skólanna í huga.
Aristo reiknistokkur á heima í hverri skóla-
tösku.
PENNAVIÐGERÐIN