Tíminn - 29.09.1972, Síða 17
Föstudagur 29. september 1972
TtMINN
17
Islenzkum Judo-mönnum
boðið til Tékkóslóvakíu
Tekst Fram að sigra
v-þýzka meistaraliðið
Göppingen í kvöld?
- bæði liðin taka þátt í Evrópubikar-
keppnini í keppninni í handknatt leik.
Leikurinn hefst kl. 20.30 f Laugardalshöllinni
i kvöld fer fram i Laugardals-
höilinni fyrsti handknattleikur á
komandi keppnistimabili og þar
er ekki leikur af verri endanum,
þá mætast isiandsmeistararnir
Fram og v-þýzku meistararnir
Göppingen. Leikurinn hefst kl.
20.:i0 og má búast viö fjörugum
leik og spennandi. Bæði liðin,sem
leika í kvöld, taka þátt i Evrópu-
keppni i handknattleik i vetur og
er þessi heimsókn liður í undir-
búningi liðanna fyrir Evrópu-
keppnina. Framliðið leikur með
sitt sterkasta lið i kvöld og hafa
mikinn hug á að vinna v-þýzku
meistarana — Framliðið hefur
æft vel i sumar undir stjórn Karls
Benediktssonar og Páls Jónsson-
ar, en þeir fóru i sumar á þjálf-
aranámskeið i Júgóslaviu og
lærðu þar ýmsar nýjungar i hand-
knattleik. 1 kvöld fæst úr þvi skor-
ið,hvort islenzkur handknattleik-
ur er betri en v-þýzkur og verður
fróðlegt að sjá, hvort Fram tekst
að sigra liðið, sem sigraði
Gummersbach i úrslitaleik um v-
þýzka meistaratitilinn.
Hér rekjum við i stuttu máli
sögu Göppingen:
TPSG FRISCH GÖPPINGEN
var stofnað árið 1896 og hét upp-
haflega Turn Club Frisch Auf
Göppingen, en i marz 1972 var
nafni félagsins breytt i TURN
UND POLIZEI SPORTGENEIN-
SCHAFT FRISCH AUF GöPP-
INGEN.
Fyrstu fimmtiu árin var félagið
smátt i sniðum en upp úr 1950 fó r
félaginu að vaxa fiskur um hrygg
og tók upp fleiri iþróttagreinar og
hefur i dag 10 deildir. Judo,
karate, hnefaleika, blak, frjálsar
iþróttir, knattspyrnu, borðtennis,
leikfimi, badminton svo og hand-
knattleik.
Arið 1954 vinnur félagið sina
fyrstu meistaratign i handknatt-
leik. Sigrar Polizei Hamburg i
úrslitaleik, en frá 1959 má segja
að félagið hafi verið stórveldi i
þýzkum handknattleik, allt fram
til ársins 1965, en þá hafði félagið
orðið fimm sinnum þýzkur
meistari i handknattleik innan-
húss 1959, 1960, 1962, 1963 og 1965,
auk þess varð félagið Evrópubik-
armeistari árin 1960 og 1962.
Arið 1970 tókst félaginu að
endurheimta titilinn og aftur árið
Tekst Axel Axelssyni að skjóta Þjóðverjana i kaf I kvöld. Hann og
fiestir leikmenn Fram eru i mjög góðri æfingu um þessar mundir.
1972 og nú segja forystumenn
félagsins, að annað velgengnis-
timabil sé i vændum og veldi góð-
kunningja islenzkra handknatt-
leiksmanna, Gummersbach, sé
að hnigna.
Frisch Auf Göppingen, sigraði
Gummersbach nú i úrslitaleik um
meistaratignina 14:12 og átti
markvörður liðsins Uwe Rathjen
mestan þátt i þeim sigri með frá-
bærri markvörzlu.
Þekktustu leikmenn f.A.
Göppingen eru:
Nr. 1 Uwe Rathjen, markvörður,
29 ára, hefur leikið 30 landsleiki
var i þýzka olympiuliðinu i
Munchen.
No. 2. Paul Epple, bakvörður, 25
ára, hefur leikið 1 landsleik og 5
sinnum með B landsliði, var
markahæsti maður liðsins á
siðasta keppnistimabili.
No. 3. Walter Pfliiger, bakvörður,
33 ára, hefur leikið 5 landsleiki og
er elzti maður liðsins.
No. 5. Christian Patzer, bakvörð-
ur, 28 ára Austurrikismaður hef-
ur leikið 62 landsleiki, m.a. gegn
tslandi i undankeppni Heims-
meistarakeppninnar 1969 og á
Spáni 1972.
No. 6. Max Miiller, fyrirliði, 27
ára, hefur leikið 51 landsleik.álit-
inn bezti maður liðsins. A tti við
meiðsli að striða fyrri hluta
keppnistimabilsins og komst þvi
ekki i þýzka olympiuliðið, lék með
þýzka landsliðinu i Heims-
meistarakeppninni 1970.
No. 7. Pcter Bucher, framvöröur,
25 ára, hefur leikið 46 landsleiki,
þekktasti og vinsælasti leikmaður
liðsins, örvhentur linuspilari. Lék
með þýzka olympiuliðinu i
Munchen.
Aðrir leikmenn eru:
No. 4. Wolfgang Don, 23 ára, ný-
liði.
No. 8. Giinter Schweikardt, 24
ára.
No. 9. Werner Fischer, 21 árs.
No. 10. Werner Arndt, 28 ára.
No. 11. Sigmund Seeger, 24 ára,
nýliði.
No. 13. Dieter Gross, 22 ára.
No. 14. Frank Wohlrabe, 20 ára.
Þjálfari liðsins er Edmund
Meister.
Form. deildarinnar er Anton
Burkhardtsmaier.
Keppnislimabilið hefst i Þýzka-
landi þann 7. okt. og hafa leik-
menn stundað æfingar frá þvi i
april og má gera ráð fyrir, að þeir
séu i mjög góðri æfingu og sé
þessi ferð til íslands lokaáfangi
fyrir 1. deildar keppnina.
Þessar skemmtilegu myndir tók Ijósmyndari Tímans, Róbert, i úr-
slitaleik islandsmótsins i kvennaknattspyrnu. A myndunum sést bezta J.
knattspyrnukona landsiiðsins Ólöf ólafsdóttir, Armann — leika á eina .J
stúlkuna úr FII og skjóta með vinstri fætinum á markið, en það fór eins
og svo oft i leiknum, Armannsstúlkurnar skutu rétt fram hjá. Ólöf hef-
ur átt erfitt með að sækja æfingar hjá Armanni I sumar, ástæðan fyrir
þvi, er að hún er búsett i Eyjum. Til gamans má geta þess, að þegar 1.
dcildar lið Vestnianncyja komst ekki til Reykjavikur i sumar vegna J.
þess að flugveður var ckki, þá kom Ólöf með Herjólfi og lék einn ieik
með Ármannsstúlkunum, einmitt á sama tima og þurfti að fresta leik "■
Eyjamanna.
Vetrardagskrá Judofélags
Reykjavikur hefst mánudaginn 2.
okt. n.k. Kennt verður i þremur
byrjendaflokkum: Drengjafl.
stúlknafl. og fullorðinna karlm.
Þá verður einnig lögð sérstök
áherzla á þjálfun keppnismanna,
þvi að bæði er, að framundan eru
mörg mót, íslandsmót o.fl. og að
borizt hefur mjög athyglisvert
boð frá Tékkóslóvakiu um gagn-
kvæm heimboð judomanna. Bjóð-
ast Tékkar til að senda hingað 12
manna keppnislið, gegn þvi að við
sjáum um uppihald þeirra hér i
nokkra daga, og siðar fari svo
álika hópur héðan til Tékkósló-
vakiu. Boð þetta er hið athyglis-
verðasta, oghið fyrsta, sem okkur
berst um gagnkvæm heimboð
með viðráðanlegum kostnaði.
Fram til þessa hafa judomenn
héðan aðeins tekið þátt i tveim
alþjóðlegum mótum, árið 1968
kepptu tveir frá Judofélagi R-vik-
ur á Norðurlandameistaramóti i
Judo, unnu þá Norðmenn, og þrir
frá sama félagi kepptu á Evróu-
meistaramótinu 1970. Hér heima
hefur aðeins einu sinni farið fram
keppni með þátttöku útlendinga,
voru það tveir Skotar, sem kepptu
hér sem gestir, og töpuðu þeir
tveim glimum hér fyrir félögum
J.R.
Æfingatimar Judofélagsins
verða sem hér segir: Mánudagar
kl. 6,45 s.d. almenn æfing.
Þriðjud. kl. 6-6,45drengir. Kl. 6,45
til 8 almenn æfing, 8-9 byrjendur
karlafl. Miðvikud. kl. 6.30 stúlkur.
Fimmtud. kl. 6,45 almenn æfing,
kl. 8-9 byrj. karlafl. Laugardag -
ar kl. 1,30 stúlkur, kl. 2,30 almenn
æfing.
Judofélag'- Reykjavikur er að
Skipholti 21, 3. h. inng. frá Nóat.
Aðalþjálfari félagsins verður
Nobuaki Yamamoto 5. dan
Kodokan.
.■.■.V.V.V.V.V.W.W.W.V.
4 Fyrst með hægri og
svo með vinstri...skot!
ÍR-liðið æfir
á fullum
krafti
- Anton og Pétur leika
með liðinu í vetur
Körfuknattleikslið 1R, sem
mætir Real Madrid i Evrópu-
keppni meistaraliða, er byrjað
að æfa af fullum krafti og er
mætt mjög vel á æfingar liðs-
ins. Þegar við litum inn á
æfingu hjá liðinu á þriðjudags-
kvöldið, voru um 25 menn á
æfingu. Allir sterkustu leik-
menn liðsins voru þar og er
mikill hugur í leikmönnum
liðsins. Anton Bjarnason, er
ekki byrjaöur að æfa vegna
meiðsla, en hann getur fljót-
lega hafiö æfingar. Pétur
Böðvarsson, sem var á Seyðis-
firði s.l. vetur, hefur mætt á
æfingar hjá liðinu og er hann
að byrja æfingar af fullum
krafti með sinum gömlu félög-
um. Það er ekki að efa, að þeir
Pétur og Anton, koma til með
að styrkja IR-liðið mikið i vet-
ur. SOS
Karl
þjálfar
Hauka
Miklar likur eru á þvi að
hinn kunni handknattleisþjálf-
ari Karl Benediktsson, þjálf-
ari Fram — þjálfi 2. deildarlið
Hauka i vetur. Það er ekki enn
ákveöið, þvi að Karl tekur
ekki aö sér að þjálfa Hauka, ef
fjölgað verður i 1. deild. Karl
getur ekki verið með tvö 1.
deildarlið i vetur, eins og gef-
ur að skilja. Ef verður horfið
að þvi að fjölga i 1. deild, þá
leika Haukar, sem féllu, og
Grótta um sætið, sem verður
laust.
Gunnlaugur
þjálfar Þrótt
Gunnlaugur Hjálmarsson,
hinn kunni handknattleiks-
maður úr IR, hefur tekið að
sér að þjálfa 2. deildarliðið
Þrótt i handknattleik. Eins og
flestir vita, þá er Gunnlaugur
einn frægasti handknattleiks-
maður, sem Island hefur átt
og var hann fyrirliði islenzka
landsliðsins i handknattleik
um árabil, hann hefur einnig
leikið með B-landsliði íslands i
knattspyrnu sem markvörö-
ur. Þetta er ekki fyrsta liðið,
sem Gunnlaugur gerist þjálf-
ari hjá, hann hefur þjálfað
meistaraflokk Fram og
siðastliðin tvö ár hefur hann
þjálfað meistaraflokk Fram
og siðastliðin tvö ár hefur
hann leikiö með og þjálfað 1.
deildarlið IR. Gunnlaugur
mun leika með IR-liðinu i vet-
ur og er hann um þessar
-mundir i mjög góðri æfingu.
Það er hægt að segja að dr.
Ingimar Jónsson og Gunn-
laugur Hjálmarsson, hafi haft
verkaskiptingusem þjálfarar i
vetur. Ingimar, sem þjálfaði
lið Þróttar s.l. keppnistimabil,
þjálfar nú IR-liðið, en Gunn-
laugur, sem þjálfaði IR-liðið,
mun þjálfa hjá Þrótti i vet-
ur. SOS.