Tíminn - 03.10.1972, Blaðsíða 5

Tíminn - 03.10.1972, Blaðsíða 5
Þriðjudagur :t. október 1972. TÍMINN 5 ,,Ég flyt til íslands ef svínin samþykkja inngöngu í EBE" Björn Bjarmann ræddi við fundarmenn á Ráðhústorgi Klukkan er um þrjúleytið og ég á Ráðhústorgi i Kaup- mannahöfn. Fólk er byrjað að þyrpast á fundarstað, því hér á að vera stórfundur, sem mótmælendur inngöngu I EBE standa að. Á fjórða timanum tekur gangan sem byrjaði á tsraeistorgi að velta niður Strikið og inn á torgið og nær- liggjandi götur og búlivarða. Litill hópur kemur neðan Vesterbrogötu og gengur yfir á rauðu ljósi. Nistandi bremsuhljóð og einn i götuna. Slys. Einhver segir, að ákeyrslan hafi verið viljandi. Risastórar J A-auglýsingar á öllum stórbyggingum, þar á meðal á BT-húsinu. Glfmu- skjálfti i fólki. Ungur piltur kemur til min og segir að þeir ætli að selja landið og þegar hann heyrir, að ég sé frá islandi þá segir hann: ,,fcg flyt til islands ef svinin sainþykkja inngöngu i EBE. Ég öfunda ykkur islendinga. Þið þorið að segja Nei og bjóða stórþjónunum byrginn. Við unga fólkið erum að reyna að liafa vit fyrir þjóðinni og taka fram fyrir hcndurnar á stjórn- málamönnunum. Norðmenn stóðu sig fint og allar Norður- landaþjóðirnar standa með okkur. Þið cruð fyrirmyndin. Getum við ekki fengið lánaða einhverja af ráðhcrrunum ykkar til að mynda þennan unga. Ég man ekki hvað hann heitir, þennan sem sagöi brezka sendiherranum að fara til helvitis.” Hækkerup segir að SF flokk- urin (Hannibalistar?) hafi ekki hugmynd um, hvað það geti kostað að missa af strætisvagninum, en SF-menn standa á móti inngöngu i EBE. Það fjölgar á torginu og fán- ar Norðurlanda blakta á tröppum Ráðhússins og fær- eyski fáninn er lika með. Lög- reglan stöðvar alla umferð að nærliggjandi götum. Ilávær Dixilandhljómsveit með bá- súnum, trompetum og klari- nettum i miðri göngunni og spjöld, þar seni á er letrað: „Stökk til að komast yfir auð- lindir Grænlands”, „Konur segið Nei” „Auðmanns- klúbbur i sveltandi heimi" „Amma segir Nei þó mamma scgi Já” „EBE-liðin til valds- ins” „Nei við EBE, Já við allri veröldinni". Raðirnar þéttast og Ráðhús- lorgið er þegar orðið alltof litið og ég gef mig á tal við roskinn mann, sem segir: „Þú þarft ekki að kynna Ilúnana fyrir mcr, ég man árið 1940. Ég var ósköp vcnjulegur póstmaður, bar út póst i Nörrebrogötu. Ég þekkti að- ferðina, fyrst að vera mjúkur á manninn, bjóða gull og græna skóga, svo er það snar- an og ef hún dugar ekki þá ofn- arnir og piningartækin. Þeir kunna lagið á þvi þcir þýzku,” og roskni maðurinn snýr sér að unguin Já-manni og er ekk- ert rnildur i tali: „Þú varst ekki einu sinni kominn i móðurkvið, þegar þýzku her- mcnnirnir komu uppúr skip- unuin hérna rétt fyrir neðan. Ég man vel eftir 10. april 1940. Var að bera út póst, þegar fyrstu dátarnir marséruðu niður Vesterbrogötu. Þið ætt- uð að skammast ykkar fyrir að bcra utaná ykkur landráða- markið”. Klukkan er fjögur og fyrsti ræðumaöur i stólinn. Oft klappað og hrópað hei, hei. Og enn sér ekki fyrir endann á göngunni niður Strikið. Litil börn með Nei merki, og lika hundar. Hópurinn, sem nú nálgast torgið, syngur: „Det er et yndigt land” og mann- fjöldinn tekur undir. Iláttsett- ur lögreglumaður vikur sér að mér og spyr mig, hvort ég sé blaöamaður. „Nei ég er islendingur, og ég hef gaman af þvi að sjá, hvaö unga fólkið kann vcl að koma á framfæri sinum málstað án átaka og of- beldis." „Við höfum lið tilbú- ið, ef hitnar i kolunum," segir danski pólitíoffisérinn. Leik- kona les upp kvæði og allir hlusta með andakt. i kvæðinu segir: „Varið ykkur á ógnun- um” „Hafið gát á loforðum” „Hugsið sjálf” „Það eruð þið, sem eigið að segja siöasta orð- ið". Leikkonan fær mikiö klapp og nú er klukkan aö halla i fimm og siðustu hópar göngunnar að koma fyrir hornið á Fredriksberggötunni og enn ný Dixilandhljómsveit spilar fjörugan mars. Norðmaður talar og hann segir: „Við treystum ykkur. Það var þungur róður heima, en við kunnum áralagið. Sú var tiðin að Danmörk og Noregur voru ein og sama þjónin, þá vorum við litlu karlarnir. Nú erum viö þeir stóru og bíöuin eftir ykkur. (íeriö skyldu ykkar og gleymiö ekki norrænni sam- vinnu. Við öll viljum alvöru- samvinnu ekki kokteilkjaftæði og injúk orð. Samvinna á borði cn ckki i orði. Lengi lifi norræn samvinna og norrænt efna- hagsbandalag.” Það hefur kólnað og iskyggi- leg ský á lofti. Gæti komið rigningardemba eða eitthvað verra, cn hitamæiir sýnir niu gráður. Konan min, sem stendur i skjóli við Faladshóteliö segir, að sér sé kalt og enn er nýr ræöumaöur aö tala. „Ég er sósialdemókrat og skammast min ckkert fyrir það, en Krag hefur svikið. Ég veit hann er ungur og hefur gleymt ýmsu, sem hann lærði, og það cr lika hans eina afsökun. Lát- um Krag staupa sig mcð Nató- ráðherrunum og sýna, hvað hann á fallega konu” og nú varö ræðumaöurinn aö stoppa þvi mannfjöldinn ætlaði aldrei að hætta að klappa og hrópa húrra. Fundarstjórinn baö aö sýna slillingu og gefa ræöumönnum sæmilegt hljóö. Konan min kvartaöi og sagðist inyndi fá lungnabólgu, cf við værum lengur á fundin- um. Við löbbuöum heim á Missiónshóteliö á Löngangs- strædc. Og við innl hlýjuna og hrollurinn úr okkur undir eins og við koinum i anddyriö og Tóinas Karlsson ritstjóri, sem er á leið til Rússlands,ætlar aö hringja i inig á eftir til aö scgja mér, hvernig bezt er aö koma þessu rabbi áleiöis heim fil islands, Vonandi skin sólin cnn yfir Faxaflóa og strákarnir halda áfram að striöa Bretunum, scm cru að basla við að stela frá okkur þorskunuin. Aö lok- um tek ég undir meö Lenu Vcdel - Petcrsen félagsmála- ráðgjafa, scm scgir: „Ég er hrædd uin að liætta leynist i inngöngu i EBE”. Sennilega liafa fundarincnn vcrið eitthvaö nálægt hundraö þúsundum, liigrcglan gizkar á 75-8» þúsund og scgir þetta l'jölmennasta úlifund, sem haldinn hefur vcrið hér i borg frá þvi striöinu lauk. h. Sex óku yfir kúna og margir fótbrutu hana Klp-lteykjavik Þessa viku stendur yfir á Akranesi umferðarvika á vegum umferðarnefndar Akraneskaup- staðar og i samráði við umferðar- nefnd. Hófst hún s.l. sunnudag með góðaksturskeppni, sem fram fór á götum Akraness og tókst hún mjög vel. Ekið var vitt og breitt um bæinn og lagðar þrautir fyrir keppendur sem voru 15 talsins. Var margt manna úti við til að fylgjast með keppninni og höfðu bæði lærdóm og skemmtun af. Það vakti athygli stjórnenda keppninnar, hvað Skagamenn voru lagnir við að aka eftir 10 metra löngum planka, sem komið var fyrir á einum stað og einnig hvað þeir óku oft yfir bréfspjald, sem var á veginum, en var dregið þaðan, þegar ökutækið var i hæfilegri fjarlægð. Atti spjaldið að tákna kú, en fyrir henni báru Skaga- menn litla virðingu, þvi þeir óku 6 sinnum yfir hana, og hún var fót- brotin hvað eftir annað. Úrslit i keppninni urðu þau, að Ornólfur Sveinsson, Höfðabraut 16 varð sigurvegari. Annar varð Atli Helgason Krókatúni 7 og þriðji Ólafur Óskarsson Beiti- stöðum, Leirarsveit, og fengu þeir allir verðlaun. Umferðarvikan stendur fram til næsta laugardags. Á miðviku- dags- og fimmtudagskvöldið verðuropið hús i Slysavarnarhús- inu, þar sem sýndar verða m.a. kvikmyndir og fl. Þá fer fram umferðarfræðsla i öllum skólum ogá föstudaginn, verða unglingar úr gagnfræðaskólanum á öllum götuhornum, þar sem þeir munu leiðbeina fólki við að komast yfir götu. Þeir, sem ekki fara rétt að, fá aðvörunarspjöld frá unglingunum. en engar skammir. Á laugardaginn er svo fyrirhugað að hafa góðaksturskeppni á reið- hjólum fyrir börn og unglinga, en slik keppni hefur ekki farið fram áður. Veruleg gatnagerð á Dalvík Stp-Reykjavik — Framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins eru sjálfsagt meiri en oftast áður, og er þar fyrst og fremst um gatnagerð að ræða — sagði Hilmar Danielsson, sveitarstjóri á Dalvik i viðtali við fréttamann. Steyptur hefur verið kafli af Hafnarbraut og Skiða- braut samtals um 400 iengdar- metrar. Siðan voru undirbyggðar tvær nýjar götur, eitthvað álika langur kafli. Núna stendur yfir bygging brúar á Brimnesá, sem verður væntanlega lokið i haust, og frá þessari nýju brú, sem er á Ólafs- kaupstaðarréttindi á næsta þingi fjarðarvegi, þarf að leggja nýja götu, sem verður um 400 metrar. Er verið að byrja á þvi verki um þessar mundir, og þess vænzt, að það verði klárað fyrir haustið. Að sögn Hilmars er ákaflega mikill áhugi fyrir að gera veru- legt átak i gatnagerð á komandi árum, en ekki hefur verið gerð kostnaðaráætlun ennþá um þær framkvæmdir. Ekkert hefur verið malbikaö á Dalvik, en alls hafa verið steyptir einir 600 lengdarmetrar. Ekki hefur verið mikið um ibúðarbyggingar á Dalvik i sumar, en hins vegar var byggð i sumar nokkuð stór viðbygging við frystihús kaupfélagsins, og er hún nú komin undir þak. Atvinna hefur verið næg á Dalvik og frekar vantað starfsfólk heldur en hitt. — tbúar á Dalvik voru i desem- bermánuði á siðasta ári alls 1085 og hefur þeim farið heldur fjölgandi siðan, þannig að gera má ráð fyrir að þeir séu nú rétt um 1100. Skilyrði þess, að „pláss” geti fengið kaupstaðarréttindi, eru m.a. að ibúar séu minnst 1000. t þvi sambandi má nefna, að á siðasta fundi hreppsnefndar Dal- vikur, var gerð samþykkt um að athuga möguleika á kaupstaöa- réttindum á komandi þingi. Einar ríki fær 5 skip Akureyri Fjalla um áhrif kjarnorkunnar á lífverur og kerfi — þegar búinn að fá 3 ÞÓ—Reykjavik. Slippstöðin á Akureyri afhenti eigendum 150 lesta stálfiskiskip s.l. fimmtudag. Skipið ber nafnið Gunnar Jónsson VE 500, og eigendur þess eru Einar Sigurðs- son útgm. og Jón V. Guðjónsson skipstjóri i Vestmannaeyjum. Er þetta þriðja skipið, sem stöðin af- hendir til Einars Sigurðssonar á þessu ári. Einr er siðan eigandi að tveimur næstu skipum að sömu stærð og gerð og Gunnar Jónsson, þannig að Slippstöðin h.f. hefur þá smiðað fimm fiski- skip i röðfyrir Einar, sem öll bæt- ast i flota Vestmanneyinga. Gunnar Jónsson er útbúinn til linu-, neta-, tog- og nótaveiða. Hann er fyrsta skipið i röð 150 lesta fiskiskipa, sem stöðin hefur samið um, en undanfarið hefur stærð skipanna miðazt við 105 lestir. Skipið er búið öllum nýj- ustu siglingar- og fiskileitartækj- um. Allar ibúðir sem eru fyrir 12 manns, eru á afturskipi. Slippstöðin h.f. hefur nú gert samninga um smiði á 4-5 150 lesta fiskiskipum. Tvö á Einar Sigurðs- son, eins og áöur er sagt, en hin aðilar á Þingeyri, i ólafsvik og i Vestmannaeyjum. Verkefni þessi munu endast stöðinni fram á árið 1974. t Slippstöðinni starfa nú um 200 manns, og er alltaf skortur á starfsfólki, bæði iðnaðarmönnum og verkamönnum. KJ—-Reykjavik 1 gærmorgun hófst á Hótel Loft- leiðum fundur á vegum Alþjóða- kjarnorkumálastofnunarinnar, og sækja fund þennan vistfræð- ingar og liffræðingar viða að úr heiminum. Nokkrir Islendingar sitja fundinn sem áheyrnarfull- trúar. Á fundinum er til umræðu geisl- un og áhrif geislunar og geisla- virkra efna á lifverur og lifkerfi, og önnur áhrif kjarnorkunnar á lifkerfi. Sérfræðingar þeir, sem þarna hittast, hafa áöur borið saman bækur sinar og er þetta framhaldsfundur um sama etni. Á þessum fundi mun vera lögð áherzla á áhrif kjarnorkunnar á lifkerfi sjávar, og mun ísland i og með hafa verið valið sem fundar- staður þess vegna. Þeir dr. Sturla Friðriksson og dr. Gunnar Jónsson munu flytja stutt erindi á fundinum um is- lenzk efni. Þannig mun dr. Sturla kynna hinum erlendu sérfræð- ingum þær rannsóknir, sem farið hafa fram i og við Surtsey á undanförnum árum. 1 fundarbyrjun ávarpaði menntamálaráðherra, Magnús Torfi ólafsson, fundinn. Sfldveiðarnar ganga nú sæmilega Loftur Baldvinsson búinn að selja fyrir 5,3 millj. kr. á 2 vikum ÞÓ-Reykjavfk Á fimm dögum eða frá 26. - 30. sept. seldu 14 islenzk sildveiði- skip afla sinn i Danmörku. Alls var afli sildveiðiskipanna 1.114 lestir og seldist aflinn fyrir 19,3 milljónir. Meðalverðiö i vikunni var 17.32 kr. pr. kiló, og hefur það ekki verið hærra á þessu ári. Hæsta meðalverðið i vikunni fékk örfirisey RE, en hún seldi 67,7 lestir fyrir 1.365.791 kr. hinn 26. september, og meðalverðið er 20.20 kr. pr. kiló. Hæstu heildarsöluna fékk hinsvegar Loftur Baldvinsson EA, þegar hann seldi 114,7 lestir fyrir 2.023.664 kr. 27. september. Sölur bátanna voru yfirleitt mjög góðar, og sést það bezt á þvi, að allir bátarnir nema einn, seldu fyrir meira en 1 milljón kr. en i sumar, þegar sölurnar voru al- gengastar, var það hending ef sala fór yfir 1 milljón kr. Loftur Baldvinsson EA er búinn að selja fyrir 5,3 milljónir kr. á tveim vikum. Eins og fyrr segir, seldi hann fyrir rúmar 2 milljónir i s.l. viku, og i vikunni á undan seldi hann fyrir 3.3 milljónir kr.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.